Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Blaðsíða 29

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Blaðsíða 29
Öryrkjabandalagið og ferðaþjónustan í samstarf: ÖBÍáfram I 29 Samið um bætt aðgengi Fyrr á árinu var undirritaður samstarfssamning- ur milli Ferðamálastofu, Öryrkjabandalags ís- lands, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðaþjón- ustu bænda og Ferðamálasamtaka íslands um að bæta aðgengi allra, annars vegar að áning- ar- og útivistarstöðum og hins vegar að gisti- og veitingastöðum um land allt. Til að ná þessum markmiðum hafa samnings- aðilar unnið viðmið varðandi ásættanlegt aðgengi fyrir hreyfihamlaða að ferðamannastöðum og unn- ið er að því að semja slík viðmið fyrir gisti- og veit- ingastaði. Samstarf þetta hófst árið 2005 og var hald- in sameiginleg ráðstefna í febrúar 2006. í kjölfar- ið var ákveðið að vinna að því að hreyfihamlaðir eigi aðgang að sem flestum stöðum og hægt sé að ganga að upplýsingum um aðgengi á Netinu. í samkomulaginu er kveðið á um að þeir sem eru að skipuleggja ferðir geti leitað upplýsinga á netinu. Ljóst er að það er mikið verk framundan að taka út staðina og vinna þessar upplýsingar en samstarfs- samningurinn er stórt fyrsta skref. Skrifað undir samninginn. Frá vinstri: Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF, Pétur Rafnsson, formaður Ferðamálasamtaka íslands, Sturla Böðvarsson þáverandi samgönguráðherra, Magnús Oddsson ferðamála- stjóri, Hafdís Gísladóttir, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags íslands og Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri Ferðaþjónustu bænda. eftir Mary M. Robertson og Simon Baron-Cohen Bók þessi er gefin út á íslandi í júní 2007 og er íslensk þýðing bresku bókarinnar TS: the facts. Tourette: staðreyndir er nauðsynleg heimild fyrir alla þá sem hafa Tourette og aðstandendur þeirra og er einnig gagnleg læknum, kennurum og þeim sem vilja kynna sér heilkennið. Bókin er samin af sálfræðingi og geðlækni sem árum saman hafa rannsakað Tourette. Fjallað er um orsakir þessarar röskunar, greiningu og meðhöndlun, auk þess sem algengustu spurningum um Tourette er svarað. Bókin er seld hjá Tourette samtökunum, www.tourette.is, og hana má panta í tölvupósti, tourette@tourette.is eða síma 840-2210. Athugið að verð hennar er aðeins 1.500 krónur. Bókin mun einnig verða seld í nokkrum bókaverslunum og er heldur dýrari í verslununum sem nemur bæði virðisaukaskatti og verslunarálagningu. ™ 'ciÆ |þÆi-j- v Þessifrábæra bák kemstbeint að kjarna málsins, hún tekur á öllum htiðum þess, er mjög notadrjúg og hér er engu gleymt sem skiptir máti. OliverSacks Tourette samtSkin i Bretlandi og \ Bandaríkjunum mæta með bókinni m. staðreyndir MARY M. ROBERTSON SIMON BARON-COHEN

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.