Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Page 30
30 I ÖBÍáfram
Sigursteinn Másson ræddi við Möru Gabrilli
sem hefur umsjón með málefnum fatlaðra í
einni af stærstu borgum heims Sao Paolo í
Brasilíu
Klukkan var að verða átta um kvöld og Mara
Gabrilli búin að vera að frá klukkan átta um morg-
uninn. Hún bar ekki þreytuna utan á sér. Geisl-
andi augun og hlýtt brosið tók á móti mér. Eftir
að hafa boðið mér inn á skrifstofu sína bað hún
mig að hafa sig afskaða vegna þess að hún þyrfti
að vera við atkvæðagreiðslu í þorgarstjórninni. Á
meðan fletti ég í gegnum myndir af Möru við hin
ýmsu tækifæri. Greinilegt er að hún nýtur virðingar
og vináttu margra mjög háttsettra aðila í brasilísku
samfélagi. Margar myndir eru af henni með borg-
arstjóra Sao Paolo sem og fylkisstjóranum.
Fyrir (fimm árum) lenti hún í alvarlegu bílslysi og
lamaðist niður fyrir háls. Alla tíð síðan hefur hún
lagt áherslu á endurhæfingu og byrjar hvern ein-
asta morgun á stífum æfingum. Á skjá á skrifstof-
unni sé ég Möru greiða atkvæði í salnum en veit
ekkert um hvað málið snýst. Nokkrar mínútur líða
og ég er á kafi að lýsa aðstæðum á íslandi og út-
skýra starfsemi ÖBÍ fyrir skrifstofustjóra hennar
og þá kemur Mara þrosandi til baka með afsök-
unarorð á vörum. Hún lítur aftur á skjáinn og segir
eitthvað við samstarfsfólkið og er svo rokin aftur á
braut ásamt aðstoðarmanni. Enn á ný birtist Mara
í salnum átta hæðum neðar og greiðir atkvæði sitt.
Klukkan að verða hálf níu og ég hugsa með mér
að fundur okkar hljóti nú að vera farinn út um þúf-
ur.
Fimmtán mínútum síðar er hún kominn til baka
og og ég spyr hvort allir dagar séu svona. Nú gæt-
ir dálítillar þreytu í brosinu þegar hún jánkar því og
samstarfsfólkið tekur einum rómi undir það. Mara
er fyrirmynd fyrir aðra fatlaða í Brasilíu. Hún kem-
ur oft fram í fjölmiðlum og er þjóðþekkt fyrir atorku
sína og óbilandi baráttuþrek. Hún er mjög forvit-
in um ísland. Hvernig er veðrið eiginlega? Er ekki
rosalega kalt þarna? Fyrstu spurningarnar sem allir
Brasilíumenn spyrja. Eftir hefðbundna útskýringu á
því að það sé kalt en samt ekkert svo kalt á vet-
urna miðað við N-Evrópu spyr ég hana hve marga
umbjóðendur hún hafi. „1,3 milljónir," svarar hún
afdráttarlaust. „Fatlaðir eru hér miklu fleiri en þetta
en þeir eru því miður ekki allir skráðir," bætir hún
við ákveðið.