Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Qupperneq 33
ÖBÍáfram I 33
Nuddstólarnir Human Touch slá í gegn:
Mýkja stífa og stirða vöðva
„Stólarnir eru afskaplega þægilegir og hafa
reynst mörgum vel. Þeir hafa fengið mjög
góðar dóma fagfólks, til dæmis hafa samtök
hnykkjarar í Bandaríkjunum mælt með þeim og
segja þá gera fólki virkilega gott. Sjálfur hef ég
átt við bakerfiðleika að stríða og haft af stól-
unum mikið gagn. Þegar ég reyndi nuddstól-
inn í fyrsta skipti á ferð minni í Bandaríkjunum
var það mér mikil uppgötvun, sem varð til þess
að ég trúði á gagn stólanna og hóf í framhaldi
af því innflutning á þeim,“ segir Jón Amarson,
framkvæmdastjóri Jóns Bergssonar ehf. við
Klettháls í Reykjavík.
Bandaríska fyrirtækið Human Touch hefur á
undanförnum árum náð miklum og góðum árangri
við þróun nuddstóla sem nálgast mannlegt hand-
bragð sjúkraþjálfara og nuddara, hvort heldur er til
slökunar eða lækninga.
Mannleg snerting
Human Touch Technology heita stólarnir sem
þýða mætti sem „mannleg snerting" en með
einfaldri snertingu á hnappa stjórnþorðs stólsins
hefst nuddmeðferð, sem hefur fengið afar góðar
umsögn. Einkaleyfisframleiðsla á stólunum líkir eftir
lækningartækni sem notuð er við bak- og hryggja-
meðferðir sérfræðinga. Stólarnir eru hannaðir til að
fylgja eftir náttúrulegri legu hryggjarins og mýkja
stífa og stirða vöðva líkamans. Nuddstólarnir líkja
eftir fjórum ólíkum nuddaðferðum sem geta farið
vítt og breitt um bakið. „Þinn eigin nuddari er allt-
af til staðar og það allan sólarhringinn," segir Jón
Arnarson.
Margar stillingar
Nuddstólarnir góðu bjóða upp á þrjár stillingar
baknudds, hálsnudd, þrjár breiðstillingar yfir bak-
ið, rafdrifið stólbak og fótaskemil, hæðarstillingar
fyrir axlir, tvöfaldan höfuðpúða og fjarstýringu fyrir
nudd, stólbak og fótaskemilinn góða. „Allar leið-
beiningar eru mjög auðskildar og fólk er sömuleið-
is fljótt að finna út hvaða nuddaðferð við hverjum
kvilla. Það er sama hvort þú ert með vöðvabólgu,
ert slæmur í bakinu eða vantar blóðflæði fram í
fæturna vegna æðaþrengsla, nuddið í stólnum
er alltaf til bóta. Fyrirtækið Human touch er með
afgerandi markaðshlutdeild í sölu á nuddstólum í
Bandaríkjunum og er því leiðandi á þessu sviði,"
segir Jón Arnarson sem hefur selt mikið af stól-
num og býður á sambærilegu verði við það sem
þeir eru boðnir á í Bandaríkjunum.
Sjá nánar www.jonbergsson.is
„Trúði á gagn stólanna og hófí framhaldi afþvíinn-
flutning á þeim, “ segir Jón Arnarson, framkvæmda-
stjóriJóns Bergssonar ehf. við Klettháls í Reykjavík,
hér sitjandi í stólnum góða.