Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Page 37
ÖBÍ áfram I 37
„Aldraðir og öryrkjar eru í erfiðri stöðu að berjast
fyrir sínum rétti, þó samtök þeirra séu vissulega
öflug. Þess vegna leggjum við áherslu á að leið-
rétta kjör og stöðu þessara hópa. Þetta eru for-
eldrar okkar - þetta eru félagar okkar - , þetta eru
bræður og systur - og þetta eru börnin okkar. Við
höfum sagt að lausnin felist í að treysta stoðir vel-
ferðarkerfisins að norrænni fyrirmynd. Á hinum
Norðurlöndunum eru sterkustu og manneskjuleg-
ustu velferðarkerfin. Um leið eru þetta framsækn-
ustu og samkeppnishæfustu þjóðfélög í heimi ...
Það er sama hvernig á það er litið - velferðin borg-
ar sig.“
Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ
í ávarpi á 1. maí sl.
„Læknisfræðilegar skilgreiningar einblína gjarnan
á einstaklinginn, líkamlega eða andlega skerð-
ingu hans og hvað hann getur ekki í samanburði
við þá sem eru álitnir „eðlilegir”. Samkvæmt þess-
um skilningi er litið svo á að fötlun sé persónuleg-
ur harmleikur og að einstaklingurinn sé ólánsamt
fórnarlamb. Hins vegar eru félagslegar nálganir
þar sem litið er á fötlun sem hluta af mannlegum
margbreytileika. Það sé ekkert óeðlilegt við að vera
fatlaður, fötlun sé fullkomlega eðlilegur hlutur. Hins
vegar verði einstaklingar fatlaðir af samfélaginu.
Það er að segja að samfélagið gerir ekki ráð fyrir
þeim og því eiga þeir í erfiðleikum."
Rannveig Traustadóttir í grein á
Vísindavef Háskóla íslands.
„Gera þarf átak í uppbyggingu á þjónustu fyrir
geðsjúka utan og innan stofnana. Margfalda þarf
möguleika til starfsþjálfunar og fjölga vernduðum
vinnustöðum. Þeir sem reka fyrirtæki verða að
axla meiri ábyrgð og bjóða þeim sem hafa skerta
starfsorku upp á fleiri og varanlegri atvinnuúrræði.
Læknar þurfa að þekkja alla meðferðarmöguleika
og vinna með öðru sérhæfðu starfsfólki þannig að
allir leggist á eitt hinum veiku til aðstoðar. Mark-
miðið ætti að vera skýrt: Að koma sem flestum út
á almennan vinnumarkað og til betra lífs. Enginn
vill búa í allsnægtaþjóðfélagi þar sem þeim sem
standa höllum fæti er ekki vel sinnt.“
Tómas Zöega geðlæknir
í grein í Læknablaðinu í janúar sl.
Lyfjaskömmtun og persónuleg þjónusta í Laugarnesapóteki:
Sjálfstæðir lyfsalar með tromp á hendi
„Eftirspurn eftir lyfjaskömmtun er mikil og fer
stöðugt vaxandi. Mörgum finnst þægilegt að
fá skammtana tilbúna fyrir hverja inntöku, en
við útbúum lyfin í slíkum pakkningum, sem við
köllum bollur, til allt að fjögurra vikna í senn. í
krafti smæðar okkar getum við einnig veitt við-
skiptavinum okkar mun persónulegri þjónustu
en apótek innan stóru lyfsölukeðjanna gera
og það kann fólk vel að meta,“ segir Hanna
María Siggeirsdóttir lyfsali í Laugarnesapóteki
í Reykjavík.
Laugarnesapótek, sem var stofnað árið 1961,
er við Kirkjuteig 21 í Reykjavík. Hanna María tók
við rekstrinum fyrir réttum tíu árum og hefur síðan
þá bryddað upp á ýmsum nýjungum - Laugarnes-
apótek var til dæmis frumkvöðull í að bjóða lyfja-
skömmtunina. Þá er einnig boðið upp á ókeypis
heimsendingarþjónustu lyfja sem hefur fengið mjög
góðar viðtökur.
„Fólki sem er mjög veikt, nokkuð við aldur eða
býr við einhverskonar fötlun, finnst afar þægilegt
að geta fengið lyfin send heim og það í tilbúnum
pakkningum til inntöku. Slíkt stuðlar í senn að því
að fólk gleymir síður að taka lyfin sín og geti verið
lengur heima. Þá auðveldar þetta mjög starf þess
fólks sem fæst við heimahjúkrun," segir Hanna
María.
Styðja samkeppnina
Margir skipta við Laugarnesapótek til að styrkja
hina frjálsu samkeppni. „Stundum koma viðskipta-
vinir hér í gáttina og spyrja hvort við séum ekki
áreiðaniega utan stóru lyfsölukeðjanna, sem við að
sjálfsögðu erum” segir Hanna María.
Konurnar í apótekinu. Steinunn Geirmundsdóttir, Margrét Harðardóttir, Kristín Geirsdóttir og Hanna María
Siggeirsdóttir.
„Að finna þetta viðhorf og stuðning við það er
mjög góð tilfinning,. Það eru ekki mörg sjálfstætt
starfandi apótek eftir á landinu. Eigi að síður er
mikilvægt að hafa í huga að lyfjamarkaðurinn all-
ur er bundinn á klafa margvíslegra hafta, boða og
banna. Læknarnir, sem skrifa lyfseðlana, starfa
flestir samkvæmt samningum við ríkið eða eru
opinberir starfsmenn, Tryggingastofnun greiðir um
r--------------------------------------------\
Eirberg
V
J
60% af lyfjaverði og Lyfjaverðsnefnd tekur ákvörð-
un um verð lyfja. Svigrúmið á markaðnum er því
ekki mikið, enda þótt við hér í Laugarnesapóteki
bjóðum mjög hagstætt verð. Þá höfum við sjálf-
stæðu lyfsalarnir það tromp á hendi að geta veitt
viðskiptavinum persónulega þjónustu sem við-
skiptavinir okkar kunna svo sannarlega að meta.“