Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Qupperneq 39

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Qupperneq 39
ÖBÍ áfram I 39 Stefán Jón Hafstein, verkefnisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar íslands í Namibíu og Valgerður Stefánsdóttir, forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra fyrir miðri mynd. Verkefni íslendinga í landinu eru ekki síst félagsleg - og þar er aðstoð við heyrnarlausa áherslumál. Heyrnarlausir í Namibíu fá aðstoð frá íslendingum: Þróunarsamvinnustofnun íslands skipuleggur nú heildstætt verkefni til aðstoðar heyrnarlaus- um Namibíumönnum. Heyrnarlausir í land- inu njóta fárra réttinda og eru mjög afskiptir í skólakerfinu og almennt í samfélaginu. „Segja má að ástandið hér sé líkt því sem var á íslandi fyrir 30 til 40 árum” segir Stefán Jón Hafstein, verkefnisstjóri hjá ÞSSÍ í Namibíu. ,,Það er eins og fundist hafi nýr þjóðflokkur sem lítil sem engin samskipti hefur við hið almenna samfélag," segir Stefán Jón. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra á íslandi hefur verið til ráðgjafar um skipulag verkefna og hefur Valgerður Stefánsdótt- ir forstöðumaður komið í nokkrar heimsóknir til landsins. Einn fullburða leikskóli í landinu Þróunarsamvinustofnun íslands hefur einnig stutt þá tvo skóla og eina leikskóla landsins sem starfa fyrir heyrnarlaus börn. Nú í haust fara af stað þrjú námskeið til að byggja upp þekkingu og hæfni heyrnarlausra og bæta kennslu í þeim skólum sem til eru. Júlía Hreinsdóttir, sem er heyrnarlaus, stjórnar þriggja mánaða námskeiði fyrir heyrn- arlausa, sem ætlunin er að verði kennurum í skól- unum tveimur til aðstoðar við kennslu í framtíðinni. Eyrún Aradóttir mun kenna á túlkanámskeiði, en mikill skortur er á hæfum túlkum í landinu. Stefán Jón Hafstein segir að þau Valgerður vinni nú að verkefnisáætlun fyrir næstu þrjú ár þar sem leitast verður við að efla kennslu og rannsóknir á namibísku táknmáli, auk þess sem ætlunin sé að Á vinnufundi. Áætlað erað í Namibíu séu um 3.000 heyrnarlaus börn á leikskólaaldri og 6.000 börn á grunn- skólaaldri. Aðeins 300 börn komast í grunnskóla. fjölga leikskólum fyrir heyrnarlaus börn. ,,Við áætl- um að í landinu séu um 3000 heyrnarlaus börn á leikskólaaldri og 6000 börn á grunnskólaaldri, en aðeins 300 börn komast í grunnskóla. Ástand- ið er ennþá verra í leikskólamálum, því segja má að aðeins einn fullburða leikskóli fyrir 10 börn sé til í landinu. Það er nauðsynlegt að ung börn læri snemma táknmál og foreldrar geri sér grein fyrir menntunarmöguleikum þeirra og því er leikskólinn mjög mikilvægur," segir Stefán Jón. Mörg Ijón í veginum Þróunarsamvinnustofnun gekkst fyrir viðamikilli ráðstefnu í vor í Namibíu að undirlagi Vilhjálms Wii- um umdæmisstjóra þar sem kallaðir voru tii leiks allir þeir sem á einhvern hátt tengjast málefnum heyrnarlausra. Sú ráðstefna skilaði tillögum í 30 lið- um til stjórnvalda, og kom fram í máli Vilhjálms á ráðstefnunni að ÞSSÍ vildi leggja sitt af mörkum til að hrinda þeim hugmyndum í framkvæmd. „Þetta verður viðamikið verkefni og það eru mörg Ijón á veginum, sem er einkar viðeigandi myndlíking hér í landi villidýra. En einhvers staðar verður að byrja og það er Ijóst að ísland hefur af miklum reynslusjóði að miðla. Á vinnufundi, sem við héldum í byrjun september, sagði Júlía Hreins- dóttir frá því á táknmáli hvernig réttindamálum heyrnarlausra heima hefur miðað og vakti sú frá- sögn mikla athygli og aðdáun. Sú saga er hvatn- ing hér, og sú þekking sem við getum miðlað með þessu ágæta fólki að heiman er mikilvæg,“ segir Stefán Jón að lokum. Eins og fundist hafi nýr þjóðflokkur

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.