Fréttablaðið - 03.06.2020, Qupperneq 12
Við getum komið
okkar skilaboðum
áleiðis án þess að brenna
heilu hverfin þar sem við
búum.
Tiger Woods
Ef ég væri Michael
Jordan sem væri að
vinna frá 9-17 og væri
venjulegur maður væri
ekkert mál að vera saman.
Úr bréfi Jordan til Amy Hunter
3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KÖRFUBOLTI Á sunnudag seldist
ástarbréf sem Michael Jordan sendi
leikkonunni Amy Hunter fyrir 25
þúsund dali og 703 dollurum betur
á uppboði. Bréfið seldist á rúma tvö
þúsund dollara árið 2014 en vin-
sældir Jordans og alls sem honum
tengist hafa aukist mikið eftir Last
Dance-þáttaröðina.
Hunter lék lítil hlutverk í nokkr-
um þáttum af The Cosby Show, The
Sinbad Show og The Fresh Prince of
Bel-Air þar sem stjarna Wills Smith
skein skært. Hún lék í tvö ár í Pacific
Blue, þeirri stórkostlegu seríu.
Bréfið er heilar 20 síður og í New
York Post er birtur útdráttur úr
því. Þar segir Jordan meðal annars
frá Jeffrey syni sínum og virðast
sérfræðingar á vegum blaðsins
meta að Jordan hafi skrifað bréfið
í kringum 1989. „Ef ég væri Michael
Jordan sem væri að vinna frá 9-17 og
væri venjulegur maður væri ekkert
mál að vera saman. En í staðinn er
ég Michael Jordan, sem er settur á
pall og skoðaður eins og ég sé hin
fullkomna fyrirmynd. Ekki aðeins
krakkar heldur fjölskyldur. Sérðu
ábyrgðina sem því fylgir. Svo ég
tali nú ekki um lítið barn sem ég á
með konu sem ég hef elskað í þrjú og
hálft ár.“ Blaðamenn NY Post segja
að þarna eigi Jordan við Juanitu sem
hann giftist árið 1989 en þau skildu
síðar. – bb
SPORT
KÖRFUBOLTI Sigríður H. Kristjáns-
dóttir, fráfarandi formaður stjórnar
körfuknattleiksdeildar Breiðabliks,
skrifaði nokkuð harðorðan pistil í
ársskýrslu deildarinnar sem lögð
var fram á aðalfundi félagsins.
Hún segir að mörgu þurfi verulega
að bæta úr. Til dæmis að körfubolta-
deildin í Breiðabliki geti þjónustað
börn í efri byggðum Kópavogs en
HK er ekki með körfuboltadeild.
„Deildin er með íþróttahús Smárans
frá 15 alla virka daga en frá hádegi
á laugardögum. Þá eru deildinni
úthlutaðir tímar í íþróttahúsum
Fagralundar, Lindaskóla og Kárs-
nesskóla.
Hins vegar hefur deildin sótt það
fast að fá aðstöðu í efri byggðum
Kópavogs og ár eftir ár er sóst eftir
tímum í íþróttahúsi Digraness sem
og Kórnum og Vatnsendaskóla en
þeirri beiðni er ávallt hafnað án
þess að rök séu færð fyrir þeirri
ákvörðun bæjarins.
Stjórnin telur mikilvægt að fá
æfingatíma í öðrum íþróttahúsum
til að þjónusta börn í efri byggðum
betur. Tímar sem deildinni hafa
verið úthlutaðir til dæmis í Fagra-
lundi eru afleitir og nýtast deildinni
illa,“ skrifaði Sigríður.
Hún tiltók líka stúkuna í Smár-
anum og segir hana hafa verið til
vandræða svo árum skiptir. „Eftir
mót og heimaleiki getur tekið allt
frá hálftíma upp í tvær klukku-
stundir að koma stúkunni inn á
sinn stað. Það segir sig sjálft að
slíkt er hreint ekki boðlegt og ekki
leggjandi á sjálf boðaliða að standa
í slíku, sjálf boðaliða sem almennt
eru foreldrar yngri iðkenda sem og
iðkendurnir sjálfir.“
Hún skrifar að viðræður við
bæjaryfirvöld síðustu ár hafi verið
fyrir daufum eyrum. „Að mínu mati
þarf nú að fara í harðar aðgerðir og
viðræður er snúa að því að deildin
fái aðgang að íþróttahúsum í efri
byggðum svosem Digranesi, þá þarf
deildin f leiri og betri tíma í Fagra-
lundi og úrlausn á stúkumálum í
Smáranum, áður en einhver hrein-
lega slasast.“
Sigríður lét af formennsku fyrir
skemmstu og vildi lítið bæta við
pistilinn þegar eftir því var leitað.
Aðrir stjórnarmenn vildu ekki tjá
sig mikið opinberlega, sögðu málið
vera á viðkvæmu stigi og að ekki
mætti stíga á tærnar á pólitíkusum
því þeir gætu einfaldlega farið í fýlu
– sem væri ekki gott.
Jón Finnbogason, formaður
Íþróttanefndar Kópavogs, sagði ein-
faldlega: „Ég spjalla ekki við blaða-
menn.“ benediktboas@frettabladid.is
Slysagildran í Smáranum
Stúkan í Smáranum er úr sér gengin og orðin að slysagildru. Körfubolti er olnbogabarn í Kópavogi og
bæjarfulltrúar hlusta ekki á stjórnarmenn í körfuboltadeild Blika sem vilja sækja iðkendur í efri byggðir.
Erfitt með utandeildina
Í skýrslu körfuboltadeildarinnar
kemur fram að umsjón með
utandeildinni fylgi töluverð
vinna og mikið kvabb. „Almenn
ánægja er með framkvæmdina
en leikmenn meistaraflokka
sjá um að manna ritaraborð á
heimaleikjum, sem og dóm-
gæslu og ritaraborð í Utandeild
auk dómgæslu í (Póst)mótinu,
turneringum og leikjum yngri
flokka. Utan ofangreinds taka
leikmenn meistaraflokka einnig
þátt vinnu við aðrar fjáraflanir
sem til falla, svosem teppa-
lagningu og slíkt.
Ljóst er að finna verður aðrar
leiðir til að manna utandeild
eða hreinlega leggja hana niður
þar sem vinnuframlag meistara-
flokksleikmanna er líklega með
því mesta sem þekkist í körfu-
knattleikshreyfingunni.“
Frá heimaleik Blika. Stúkan sést í bakgrunni en það getur tekið sjálfboðaliða, iðkendur og foreldra allt að tvo tíma að ganga frá henni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ég spjalla ekki
við blaðamenn.
Jón Finnbogason,
formaður
Íþróttanefndar
Kópavogs
ÍÞRÓTTIR Boxarinn Floyd Mayweat-
her hefur boðið fjölskyldu George
Floyd að borga fyrir útför hans.
Lögregluþjóninn Derek Chauvin
myrti Floyd í Minn eapolis með því
að krjúpa á hálsinum á honum í
átta mínútur og 46 sekúndur.
Samkvæmt Hollywood Unloc-
ked fannst May weather hann
verða að gera eitthvað fyrir syrgj-
andi fjölskylduna og hefur að sögn
miðilsins boðið henni að hafa þrjár
útfarir. Eina í Houston, þar sem
Floyd ólst upp, auk Minnesota og
Charlotte.
Á samfélagsreikningi Mayweat-
her Promotions segir að boxarinn
hafi hringt í ekkju Floyds, Roxie
Williams, og tilkynnt að hún þyrfti
ekki að hafa neinar áhyggjur af
kostnaði við útför hans.
Mayweather bætist í hóp íþrótta-
stjarna sem hafa látið sig málið
varða en íþróttafólk hefur yfirleitt
verið frekar lokað þegar kemur að
því að leggja orð í belg. Liverpool-
liðið myndaði hring á Anfield,
Chelsea skrifaði yfirlýsingu og
Manchester United tvíeykið Mar-
cus Rashford og Paul Pogba tjáði sig
á Instagram-reikningi sínum.
Þá steig Tiger Woods fram á
Twitt er og bað fyrir f jölskyldu
Floyds og bað um að mótmælin
yrðu friðsamleg. „Ég man eftir
óeirðunum í Los Angeles þar sem ég
lærði að upplýsing er besta leiðin.
Við getum komið okkar skilaboð-
um áleiðis án þess að brenna heilu
hverfin þar sem við búum. Vonandi
náum við að búa til sameinaðra
samfélag með því að eiga uppbyggi-
legt og heiðarlegt samtal.“ – bb
Floyd Mayweather hefur boðist til að borga fyrir útför George Floyd
Floyd Mayweather ásamt Conor McGregor fyrir bardaga þeirra félaga. May
weather ætlar að borga allan kostnað við útför George Floyd. MYND/GETTY
Ástarbréf
Jordans seldist
fyrir milljónir
Michael Jordan var góður penni og
sendi 20 síðna bréf. MYND/GETTY