Fréttablaðið - 03.06.2020, Page 33

Fréttablaðið - 03.06.2020, Page 33
Magnesíum er fjórða mikilvægasta steinefni líkamans og er gríðar- lega mikilvægt fyrir heilsu okkar. Það kemur við sögu í yfir 300 mismunandi efnaskiptaferlum í líkamanum og getur magnesíum- skortur haft mjög alvarlegar af leiðingar í för með sér. Magn- esíum er nauðsynlegt til orku- framleiðslu í líkamanum ásamt því að stuðla að betri andlegri og líkamlegri heilsu. Merki um magnesíumskort Við fáum magnesíum úr ýmsum matvælum og almennt er hægt að fá nægjanlegt magn úr fjöl- breyttri eða rétt samsettri fæðu. Ef um magnesíumskort er að ræða má helst rekja hann til lélegs og rangs mataræðis, mikillar streitu, ýmissa lyfja og mikillar koffín- neyslu. Einnig skolast steinefni út úr líkamanum þegar við svitnum, þannig að ef við æfum mikið þá töpum við steinefnum sem við þurfum að passa upp á að bæta upp aftur. Einkenni magnesíum- skorts geta verið: n Svefnerfiðleikar n Sinadráttur n Vöðvakrampi n Aukin næmni fyrir stressi n Síþreyta n Orkuleysi n Fjörfiskur Krampar og fótaóeirð Magnesíum frá Better You er til á úðaformi, sem gel til að nudda á þreytta vöðva og sem f lögur til að setja í baðið, allt eftir því hvað hentar. Magnesíum sleep-kremið inniheldur auk magnesíum laven- der ilmkjarnaolíu sem er slakandi og hentar vel fyrir svefninn, til að slaka betur á og/eða losna við fótaóeirð. Recovery er sérstaklega hannað með íþrótta- og afreksfólk í huga en það inniheldur einnig kamfóru, svartan pipar og sítrus- olíur til að hraða endurheimt. Original-úðinn inniheldur hreint magnesíum og hentar öllum. Nýjasta varan frá Better You er svo Magnesíum Joint-úðinn sem er blanda af hreinu magnesíum -klóríði sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og glúkósamíni til að styðja við liðastarfsemina. Vel hefur verið tekið á móti þessari nýju vöru bæði af íþrótta- fólki og fólki sem á við liðverki að stríða. Magnesíum salt í sérflokki Magnesíumklóríð er ein sú ríkasta og hreinasta náttúrulega upp- spretta salts sem þekkt er. Það frásogast auðveldlega og nýtist líkamanum til lengdar, sem setur þetta gæðasalt því í sérflokk. Mikil upplausn á sér stað þegast magnesíum blandast vatni en það er nauðsynlegt til þess að efnasam- böndin komist inn í gegnum húða- lagið og út í blóðrásina. Steinefnið magnesíum stuðlar m.a. að: n Eðlilegum orkugæfum efnaskiptum n Eðlilegri starfsemi taugakerfis n Eðlilegri vöðvastarfsemi n Eðlilegri prótínmyndun n Viðhaldi eðlilegra beina og tanna n Eðlilegri sálfræðilegri starfsemi n Dregur úr þreytu og lúa Slökun í heita pottinum Magnesíumsalt er einstaklega slakandi og róandi fyrir sál og líkama. Það slær á þreytuverki og getur linað harðsperrur sem og slegið á fótapirring og bætt svefn. Magnesíumflögur eru einstaklega einfaldar í notkun. Þær koma í 1 kg pokum og eru fjölmargir farnir að nota þær í heita pottinn. Flögurnar henta einnig vel í baðið og í fóta- baðið, en húðin drekkur í sig þetta mikilvæga steinefni. Magnesíum- flögurnar eru hreinasta form af magnesíum sem hægt er að fá. Fyrir gott jafnvægi, er mælt með að fara í magnesíumbað tvisvar í viku til að auka og viðhalda magnesíum gildi líkamans. Útsölustaðir: Apótek, heilsuversl- anir og heilsuhillur stórmarkaða Ekkert jafnast á við djúpa slökun Magnesíum-olíur, krem og flögur frá Better You hafa reynst vel fyrir börn og fullorðna. Magnesi- um Joint hefur slegið í gegn hjá íþróttafólki og þeim sem hafa fundið fyrir óþægindum í liðum. Magnesíum er einstaklega slakandi og róandi fyrir sál og líkama. Það slær á þreytuverki og getur linað harðsperrur, slegið á fótapirring og bætt svefn. Magnesíum ólíuspreyin frá Fyrir alla sem finna fyrir eymslum eða þreytu í vöðvum. Fyrir viðkvæma húð. Dregur úr þreytu og lúa og flýtir endurheimt vöðva. Stuðlar að eðlilegri vöðva- og liðastarfsemi. Kælir og hjálpar til við að halda liðunum mjúkum, ásamt því að flýta endurheimt. Fyrir svefninn. Stuðlar að meiri ró og hefur reynst vel við fótaóerið. Fyrir íþróttafólk og þá sem stunda mikla hreyfingu. Flýtir endurheimt vöðva. Getur verið slakandi, dregið úr krömpum og fótapirringi ásamt því að bæta svefn. Fást í apóteku m heilsubú ðum og stórmör kuðum FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 3 . J Ú N Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.