Víkurfréttir - 13.05.2020, Síða 10
Auka þarf fjölbreytni í atvinnulífi Suðurnesja svo áföll hafi ekki jafn sterk
áhrif á atvinnustig eins og nú er að gerast á tímum COVID19. Jóhann Frið
rik Friðriksson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, segir að þegar stór
sveitarfélög eins og Reykjanesbæ séu svona háð ferðaþjónustu og sam
göngum séu áhrif áfalla, eins og nú dynja á okkur, miklu meiri.
„Þetta er okkar veruleiki. Samgöngur
og ferðaþjónusta eru mjög stór
þáttur í atvinnulífi á Suðurnesjum
og kemur þetta ástand því mjög illa
við okkur, verr en marga aðra. Þó svo
það megi sjá hærri atvinnuleysistölur
í minni sveitarfélögum úti á landi er
fjöldinn sem verður fyrir slæmum
áhrifum af svona stóru áfalli eins og
COVID-19 svo mikill því stærstur
hluti atvinnubærra manna vinnur
störf tengd ferðaþjónustu.
Auðvitað höfum við verið að reyna
að auka á fjölbreytni í atvinnulífi í
gegnum tíðina en gengið misjafn-
lega vel. Það hefur gengið ótrúlega
vel í ferðaþjónustunni undanfarinn
áratug, sérstaklega síðustu fimm
árin, og fólksfjölgun að sama skapi
verið mjög mikil en þetta sýnir þó
svart á hvítu að þetta er of einhæft.
Við þurfum að halda áfram að vinna
að því að atvinnulíf sé fjölbreyttara.
Þegar stærsti vinnustaður landsins
stoppar á svona stuttum tíma og
stærsti hluti fólks sem þar vinnur
býr hér hefur það augljóslega mikil
áhrif. Þetta er sláandi staða,“ segir
forseti bæjarstjórnar.
Nýta tímann vel
Jóhann segir að það sé mikil áskorun
að vinna úr stöðunni sem upp er
komin. „Við gerum okkur grein
fyrir stöðunni og bæjarfélagið brást
snemma við með ýmsum aðgerðum
fyrir fólk og fyrirtæki. Sumt er þó
ekki hægt að gera, eins og að fella
niður fasteignagjöld. Við þurfum
að nýta tímann vel sem framundan
er og vera raunsæ hvað framtíðina
varðar. Við þurfum líka að vera
tilbúin þegar þessum veirutíma
lýkur en það er ljóst að áhrifin af
COVID-19 munu vara lengur en við
vorum að vonast. Staðan á næstunni
er því ekki góð og það er spurning
hvernig við vinnum úr henni.“
Samheldni í bæjarstjórn
„Við þurfum að stofna nýsköpunar-
setur, sækja fjármagn í það og þróa
fleiri og fjölbreyttari atvinnutæki-
færi sem kalla á fólk með menntun.
COVID-19 er fjórða stóra áfallið
sem dynur á Suðurnesjum frá árinu
2006. Við vorum með Varnarliðið
og svo ferðaþjónustuna og þessi áföll
tengjast þessum tveimur þáttum. Þó
eru nokkur nýsköpunarfyrirtæki á
svæðinu en við þurfum fleiri tæki-
Þurfum að auka fjölbreytnina í atvinnulífinu
– segir Jóhann Friðrik Friðriksson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
10 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.