Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2020, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 13.05.2020, Qupperneq 10
Auka þarf fjölbreytni í atvinnulífi Suðurnesja svo áföll hafi ekki jafn sterk áhrif á atvinnustig eins og nú er að gerast á tímum COVID­19. Jóhann Frið­ rik Friðriksson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, segir að þegar stór sveitarfélög eins og Reykjanesbæ séu svona háð ferðaþjónustu og sam­ göngum séu áhrif áfalla, eins og nú dynja á okkur, miklu meiri. „Þetta er okkar veruleiki. Samgöngur og ferðaþjónusta eru mjög stór þáttur í atvinnulífi á Suðurnesjum og kemur þetta ástand því mjög illa við okkur, verr en marga aðra. Þó svo það megi sjá hærri atvinnuleysistölur í minni sveitarfélögum úti á landi er fjöldinn sem verður fyrir slæmum áhrifum af svona stóru áfalli eins og COVID-19 svo mikill því stærstur hluti atvinnubærra manna vinnur störf tengd ferðaþjónustu. Auðvitað höfum við verið að reyna að auka á fjölbreytni í atvinnulífi í gegnum tíðina en gengið misjafn- lega vel. Það hefur gengið ótrúlega vel í ferðaþjónustunni undanfarinn áratug, sérstaklega síðustu fimm árin, og fólksfjölgun að sama skapi verið mjög mikil en þetta sýnir þó svart á hvítu að þetta er of einhæft. Við þurfum að halda áfram að vinna að því að atvinnulíf sé fjölbreyttara. Þegar stærsti vinnustaður landsins stoppar á svona stuttum tíma og stærsti hluti fólks sem þar vinnur býr hér hefur það augljóslega mikil áhrif. Þetta er sláandi staða,“ segir forseti bæjarstjórnar. Nýta tímann vel Jóhann segir að það sé mikil áskorun að vinna úr stöðunni sem upp er komin. „Við gerum okkur grein fyrir stöðunni og bæjarfélagið brást snemma við með ýmsum aðgerðum fyrir fólk og fyrirtæki. Sumt er þó ekki hægt að gera, eins og að fella niður fasteignagjöld. Við þurfum að nýta tímann vel sem framundan er og vera raunsæ hvað framtíðina varðar. Við þurfum líka að vera tilbúin þegar þessum veirutíma lýkur en það er ljóst að áhrifin af COVID-19 munu vara lengur en við vorum að vonast. Staðan á næstunni er því ekki góð og það er spurning hvernig við vinnum úr henni.“ Samheldni í bæjarstjórn „Við þurfum að stofna nýsköpunar- setur, sækja fjármagn í það og þróa fleiri og fjölbreyttari atvinnutæki- færi sem kalla á fólk með menntun. COVID-19 er fjórða stóra áfallið sem dynur á Suðurnesjum frá árinu 2006. Við vorum með Varnarliðið og svo ferðaþjónustuna og þessi áföll tengjast þessum tveimur þáttum. Þó eru nokkur nýsköpunarfyrirtæki á svæðinu en við þurfum fleiri tæki- Þurfum að auka fjölbreytnina í atvinnulífinu – segir Jóhann Friðrik Friðriksson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. 10 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.