Víkurfréttir - 13.05.2020, Síða 36
– Hvernig stóð á því að þú
fluttir til útlanda?
„Ég flutti til Ástralíu eftir að við
Matt giftum okkur. Á þeim tíma
var auðveldara fyrir mig að halda
áfram með námið mitt í Ástralíu
en fyrir hann að flytja til Íslands.“
– Var erfið ákvörðun að söðla
um og flytja í annað land?
„Já, það var það svo sannarlega
en líka ákveðið ævintýri að prófa
eitthvað nýtt og kynnast nýrri
menningu og siðum. Læknar fara
gjarnan erlendis í sérnám svo
margir vinir mínir fluttu erlendis á
svipuðum tíma.“
Saknar fjölskyldu
og vina á Íslandi
– Saknarðu einhvers frá Íslandi?
„Þetta er svo langur listi að ég get
ekki nefnt allt hér. Ég sakna fjöl-
skyldunnar minnar og vina mjög
mikið og finnst ofboðslega erfitt að
vera svona langt í burtu frá þeim.
Svo er það auðvitað sundlaugin
í Keflavík og heitu pottarnir. Við
erum yfirleitt mætt í laugina um
leið og við komum til landsins. Ég
sakna þess líka hvað það er sjaldan
vindur hérna, eitthvað sem ég veit
að fáir Suðurnesjamenn eru sam-
mála mér um. Ég sakna frelsisins
sem börn búa við heima á Íslandi.
Sakna þess að fara í berjamó á
haustin og vera úti í náttúrunni á
löngum sumarkvöldum. Svo sakna
ég líka tónlistarinnar heima, sér-
staklega söng- og kórastarfsins.“
– Er eitthvað framandi sem
hefur komið þér á óvart þar
sem þú býrð núna?
„Þó að ég vissi að Ástralía saman-
stæði af mörgum mismunandi
þjóðarbrotum kom það mér á óvart
hvað hefðirnar frá öllum þessum
móðurlöndum ríkja sterkt. Hér i
Sydney búa innflytjendur frá sama
landi oft í sama hverfi svo það
skapast svæði þar sem ákveðnar
hefðir, menning og trúarbrögð
ráða ríkjum. Sem heimilislæknir er
mjög mikilvægt fyrir mig að hafa
góða þekkingu á öllum þessum
mismunandi siðum og venjum því
þeir geta haft svo mótandi áhrif
á heilsu fólks, bæði líkamlega og
andlega.
– Hefurðu alltaf búið á sömu
slóðum?
„Já, ég hef alltaf búið í Sydney en í
nokkrum mismunandi hverfum.“
– Hverjir eru helstu kostir þess
að búa þar sem þú býrð?
„Ég bý í úthverfi Sydney og helstu
kostir þess að búa hér er meira
rými og nálægð við skóla fyrir
strákana okkar. Hér er mikið af
trjám og gróðri og æðisleg svæði til
útivistar.“ Vinnudagurinn
oft langur
– Hvernig er að vera með fjöl-
skyldu og börn þarna?
„Við búum í mjög fjölskyldu-
vænu hverfi og auðvelt fyrir
strákana að ganga í skólann á
morgnana. Hér er mikið íþrótta-
og tónlistarstarf og margt í boði
fyrir börn.
Almennt séð þá er Ástralía þó
langt á eftir Íslandi þegar kemur að
fjölskyldumálum. Vinnudagurinn
er langur og oft þarf annað for-
eldrið að vera heima til að sinna
börnum því leikskólapláss eru svo
rándýr.“
Eydís Konráðsdóttir býr í Sydney í Ástralíu með
manninum sínum, Matthew Dunn og strákunum
þeirra, Alexander, þrettán ára, Lúkas, tíu ára og
Adam, átta ára. Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn
er hundurinn Sesar. Eydís er heimilislæknir og
starfar á einkarekinni heilsugæslu í nágrenni við
heimili sitt en Eydís hefur búið í Ástralíu síðan árið
2004.
36 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.