Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2020, Side 42

Víkurfréttir - 13.05.2020, Side 42
Sjómannadagsráð hefur falið Sigurði Garðarssyni, framkvæmdastjóra Sjómannadagsráðs og Nausta varar, og Maríu Fjólu Harðardóttur, fram- kvæmdastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistu, að taka tímabundið við starf- inu og munu þau leiða áframhaldandi starfsemi, þróun og uppbyggingu Hrafnistuheimilanna sem eru alls átta að tölu á suðvesturhorni lands- ins. Pétur Magnússon hefur óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri Hrafnistu eftir tólf ára farsæl störf fyrir Sjómannadagsráð höfuðborgar- svæðisins við daglega stjórn og mikla uppbyggingu og umbætur í starfsemi Hrafnistu sem leiðandi fyrirtækis á sviði öldrunarþjónustu hér á landi. Stjórn Sjómannadagsráðs er afar þakklát Pétri fyrir framlag hans í þágu félagsins og fyrir þann árangur sem hann hefur náð í starfi sem bætt hafa gæði öldrunarþjónustu í landinu og óskar ráðið honum alls velfarn- aðar á nýjum vettvangi. Jafnframt er stjórn ráðsins þess fullviss að undir stjórn Sigurðar Garðarssonar og Maríu Fjólu Harðardóttur í starfi for- stjóra verði engir hnökrar á daglegri og mikilvægri starfsemi Hrafnistu og því skipulagi sem þróað hefur verið til að hámarka gæði þjónustunnar í þágu íbúa Hrafnistu og þeirra fjöl- mörgu sem sækja þangað daglega þjónustu, segir í frétt frá Hrafnistu. Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins Sjómannadagsráð höfuðborgar- svæðisins er móðurfélag Hrafn- istu, Naustavarar og Happdrættis DAS. Á vegum félagsins eru rekin átta hjúkrunarheimili Hrafnistu í fimm sveitarfélögum á suðvestur- horni landsins. Hrafnista er stærsta einstaka öldrunareining landsins, með um fjórðung hjúkrunarrýma á landsvísu þar sem íbúar eru um 800 auk þess sem um tvö hundruð ein- staklingar sækja þangað þjónustu í dagdvöl. Þessum stóra og góða hópi þjónustar vel á annað þúsund breiður hópur starfsmanna Hrafnistu með einum eða öðrum hætti árið um kring. Auk íbúa og dagdvalarþega Hrafnistu rekur Naustavör um 250 leiguíbúðir í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi. „Margir að komast á þann aldur að þeir þurfi meiri aðstoð við athafnir daglegs lífs“ – segir Sigurður Garðarsson. Starfið á Nesvöllum gengur vel. Bygging 60 rúma hjúkrunarheimilis við Nesvelli mun auka lífsgæði og þjónustu við íbúa. „Starfsemin hefur vaxið mjög mikið undanfarin ár og það leggst vel í mig að taka við því ásamt Maríu Fjólu Harðardóttur sem er snillingur í öldrunarþjónustu,“ segir Sigurður Garðarsson en hann hefur tekið við starfi forstjóra Hrafnistu ásamt Maríu Fjólu. Sigurður hefur undanfarin ár starfað í framlínu félagsins sem framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins. Starfsemi Hrafnistu er gríðarlega umfangsmikil en hún rekur um 850 hjúkrunarrými og um 200 dag- dvalarrými. Þar að auki búa um 350 í leiguíbúðum Naustavarar. „Það má þá segja að það séu vel á annað þús- und aldraðir sem leggja traust sitt á okkur til að sinna þeirra þörfum. Við þessa þjónustu starfa síðan ríflega 1500 starfsmenn sem sinna þeirri þjónustu,“ segir Sigurður. Sigurður segir ýmsar áskoranir í rekstri Hrafnistu þegar til fram- tíðar sé litið. „Það blasir við okkur að það er mjög stór hópur af fólki sem er að komast á þann aldur að það þurfi meiri aðstoð við athafnir daglegs lífs. Þessum þörfum þarf að mæta og við munum taka þátt í að sinna því í framtíðinni.“ – Hvernig hefur starfið gengið á tímum COVID-19? „Fram til þessa hefur starfsmönnum Hafnistu tekist framúrskarandi vel að ráða við COVID-19. Það er fórn- fýsi og einbeitingu þeirra sem vinna á hjúkrunarheimilinum að þakka að engin smit hafa komið upp hjá heim- ilisfólki fram til þessa.“ Nú hefur Hrafnista verið með rekstur hjúkrunarheimila á Suður- nesjum undanfarin ár. Hvernig hefur það gengið og hvaða þýðingu mun það hafa þegar 30 ný herbergi verða tekin í notkun og 30 herbergi frá Hlévangi flytja í nýja heimilið? „Það gengur mjög vel hjá Þuríði Elíasdóttur og starfsfólki hennar á Hrafnistu að veita þjónustu á Nes- völlum. Sú aðstaða sem þar er búið að koma upp hefur skipt sköpum með meiri lífsgæði fyrir íbúana og það mun batna enn meira þegar að nýju hjúkrunarheimili með 60 rýmum hefur verið bætt við,“ segir Sigurður. Sigurður Garðarsson er Keflvík- ingur og starfaði lengi hjá Kefla- víkurverktökum á Keflavíkurflug- velli, þá starfaði hann einnig sem ráðgjafi, m.a. hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar, og nú síðast sem fram- kvæmdastjóri Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins. Hann hefur verið ötull félagsmála- maður á Suðurnesjum, var um tíma formaður Golfklúbbs Suðurnesja og er nú formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur. Sigurður Garðarsson í starf forstjóra Hrafnistu – tekur við starfinu ásamt Maríu Fjólu Harðardóttur 42 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.