Víkurfréttir - 13.05.2020, Page 42
Sjómannadagsráð hefur falið Sigurði Garðarssyni, framkvæmdastjóra
Sjómannadagsráðs og Nausta varar, og Maríu Fjólu Harðardóttur, fram-
kvæmdastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistu, að taka tímabundið við starf-
inu og munu þau leiða áframhaldandi starfsemi, þróun og uppbyggingu
Hrafnistuheimilanna sem eru alls átta að tölu á suðvesturhorni lands-
ins. Pétur Magnússon hefur óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri
Hrafnistu eftir tólf ára farsæl störf fyrir Sjómannadagsráð höfuðborgar-
svæðisins við daglega stjórn og mikla uppbyggingu og umbætur í starfsemi
Hrafnistu sem leiðandi fyrirtækis á sviði öldrunarþjónustu hér á landi.
Stjórn Sjómannadagsráðs er afar
þakklát Pétri fyrir framlag hans í
þágu félagsins og fyrir þann árangur
sem hann hefur náð í starfi sem bætt
hafa gæði öldrunarþjónustu í landinu
og óskar ráðið honum alls velfarn-
aðar á nýjum vettvangi. Jafnframt er
stjórn ráðsins þess fullviss að undir
stjórn Sigurðar Garðarssonar og
Maríu Fjólu Harðardóttur í starfi for-
stjóra verði engir hnökrar á daglegri
og mikilvægri starfsemi Hrafnistu og
því skipulagi sem þróað hefur verið
til að hámarka gæði þjónustunnar í
þágu íbúa Hrafnistu og þeirra fjöl-
mörgu sem sækja þangað daglega
þjónustu, segir í frétt frá Hrafnistu.
Sjómannadagsráð
höfuðborgarsvæðisins
Sjómannadagsráð höfuðborgar-
svæðisins er móðurfélag Hrafn-
istu, Naustavarar og Happdrættis
DAS. Á vegum félagsins eru rekin
átta hjúkrunarheimili Hrafnistu í
fimm sveitarfélögum á suðvestur-
horni landsins. Hrafnista er stærsta
einstaka öldrunareining landsins,
með um fjórðung hjúkrunarrýma á
landsvísu þar sem íbúar eru um 800
auk þess sem um tvö hundruð ein-
staklingar sækja þangað þjónustu í
dagdvöl. Þessum stóra og góða
hópi þjónustar vel á annað þúsund
breiður hópur starfsmanna Hrafnistu
með einum eða öðrum hætti árið um
kring. Auk íbúa og dagdvalarþega
Hrafnistu rekur Naustavör um 250
leiguíbúðir í Reykjavík, Hafnarfirði
og Kópavogi.
„Margir að komast á þann aldur að þeir
þurfi meiri aðstoð við athafnir daglegs lífs“
– segir Sigurður Garðarsson. Starfið á Nesvöllum gengur vel. Bygging 60 rúma
hjúkrunarheimilis við Nesvelli mun auka lífsgæði og þjónustu við íbúa.
„Starfsemin hefur vaxið mjög mikið undanfarin ár og það leggst vel í
mig að taka við því ásamt Maríu Fjólu Harðardóttur sem er snillingur í
öldrunarþjónustu,“ segir Sigurður Garðarsson en hann hefur tekið við
starfi forstjóra Hrafnistu ásamt Maríu Fjólu. Sigurður hefur undanfarin
ár starfað í framlínu félagsins sem framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs
höfuðborgarsvæðisins.
Starfsemi Hrafnistu er gríðarlega
umfangsmikil en hún rekur um
850 hjúkrunarrými og um 200 dag-
dvalarrými. Þar að auki búa um 350
í leiguíbúðum Naustavarar. „Það má
þá segja að það séu vel á annað þús-
und aldraðir sem leggja traust sitt á
okkur til að sinna þeirra þörfum. Við
þessa þjónustu starfa síðan ríflega
1500 starfsmenn sem sinna þeirri
þjónustu,“ segir Sigurður.
Sigurður segir ýmsar áskoranir
í rekstri Hrafnistu þegar til fram-
tíðar sé litið. „Það blasir við okkur
að það er mjög stór hópur af fólki
sem er að komast á þann aldur að
það þurfi meiri aðstoð við athafnir
daglegs lífs. Þessum þörfum þarf að
mæta og við munum taka þátt í að
sinna því í framtíðinni.“
– Hvernig hefur starfið gengið
á tímum COVID-19?
„Fram til þessa hefur starfsmönnum
Hafnistu tekist framúrskarandi vel
að ráða við COVID-19. Það er fórn-
fýsi og einbeitingu þeirra sem vinna
á hjúkrunarheimilinum að þakka að
engin smit hafa komið upp hjá heim-
ilisfólki fram til þessa.“
Nú hefur Hrafnista verið með
rekstur hjúkrunarheimila á Suður-
nesjum undanfarin ár. Hvernig hefur
það gengið og hvaða þýðingu mun
það hafa þegar 30 ný herbergi verða
tekin í notkun og 30 herbergi frá
Hlévangi flytja í nýja heimilið?
„Það gengur mjög vel hjá Þuríði
Elíasdóttur og starfsfólki hennar á
Hrafnistu að veita þjónustu á Nes-
völlum. Sú aðstaða sem þar er búið
að koma upp hefur skipt sköpum
með meiri lífsgæði fyrir íbúana og
það mun batna enn meira þegar
að nýju hjúkrunarheimili með 60
rýmum hefur verið bætt við,“ segir
Sigurður.
Sigurður Garðarsson er Keflvík-
ingur og starfaði lengi hjá Kefla-
víkurverktökum á Keflavíkurflug-
velli, þá starfaði hann einnig sem
ráðgjafi, m.a. hjá Flugstöð Leifs
Eiríkssonar, og nú síðast sem fram-
kvæmdastjóri Sjómannadagsráðs
höfuðborgarsvæðisins.
Hann hefur verið ötull félagsmála-
maður á Suðurnesjum, var um tíma
formaður Golfklúbbs Suðurnesja og
er nú formaður Knattspyrnudeildar
Keflavíkur.
Sigurður Garðarsson í
starf forstjóra Hrafnistu
– tekur við starfinu ásamt Maríu Fjólu Harðardóttur
42 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.