Víkurfréttir - 13.05.2020, Síða 46
Guðbjörg Bjarnadóttir er úr Grindavík en hún og sambýlismaður hennar, Viðar Sigurðs
son, búa hálft árið á Gran Canaria og hálft árið í Grindavík. Samtals eiga þau fimm börn
og ellefu barnabörn.
Guðbjörg rak prjónabúðina Gallery Spuna
í Grindavík og einnig Bókhaldþjónustuna
og skólann Control Alt ehf. í Grindavík. Í
dag starfar hún aðeins í bókhaldi, reikn-
ingsgerð, launaútreikningum og kennslu.
„Ég er að leita fyrir mér eftir verkefnum
sem ég get unnið í fjarvinnslu þar sem ég
er mikið á ferðinni og eiginleg ekki tilbúin
að festa mig einhvers staðar í vinnu,“ segir
hún í samtali við Víkurfréttir.
– Hvernig stóð á því að þú fluttir til
útlanda?
„Bóndinn er hættur að vinna og okkur
langar að vera laus við íslenska veturinn
og njóta útiveru þar sem hægt er að fara út
dagsdaglega án þessa að vera í slysahættu.“
– Var erfið ákvörðun að söðla um og
flytja í annað land?
„Nei, mjög auðvelt og mjög spennandi.“
– Saknarðu einhvers frá Íslandi?
„Það væri þá helst sá partur af fjölskyld-
unni sem enn er á Íslandi og vinanna en við
notum tæknina og erum mikið í sambandi
á FaceTime og svo er auðvitað Zoom sem
er algjörlega frábært. Það er mikill lúxus frá
því að við höfðum bara símann og faxið!
Það varð algjör bylting þegar Skype kom
og tala nú ekki um eins og þetta er orðið
í dag. Fjölskyldan mín hefur alltaf verið
mjög tvístruð. Við erum fimm systkinin
og búum á mjög ólíkum slóðum, ein systir
í Bretlandi, önnur á Bali og sú þriðja upp
í Mosó. Bróðir minn í Stavanger og dóttir
mín í Kragerø en það er hvort tveggja í
Noregi og langt á milli þeirra. Foreldrar
okkar eru með annan fótinn á Íslandi en
hinn í Englandi. Fjölskylda Viðars er svo
á Íslandi og í Vestmannaeyjum.
Við erum til dæmis með prjónahitting á
Zoom og í mörg ár höfum við verið mæðg-
urnar verið saman á FaceTime meðan við
erum að græja matinn á kvöldin.“
– Er eitthvað framandi sem hefur
komið þér á óvart þar sem þú býrð
núna?
„Það væri þá helst að að geta vaknað hér á
hverjum morgni í blíðskapaveðri og skrítið
að fatta það að 6. janúar er mesti hátíðis-
dagurinn hjá þeim vegna jólahalds.“
Sama veður allt árið
og allt annað
verðlag í búðum
Guðbjörg Bjarnadóttir og Viðar Sigurðsson búa á Gran Canaria hálft árið:
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
46 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.