Víkurfréttir - 13.05.2020, Qupperneq 48
til þess að það er allt lokað og ekkert má
gera, svo það er ekkert minigolf, engir
göngutúrar og þeir tóku vatnið úr sund-
lauginni til að nota tíma í viðhald þar sem
ekki mátti nota hana hvort sem var. Svo
er ekkert flug eins og er, svo ekki hægt að
fljúga til Íslands né annað með ásættan-
legri áhættu.“
– Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi
og hver er ástæðan?
„Íslenska sveitin og kyrrðin.“
– Hvað stefnirðu á að gera í sumar?
„Ferðast innanlands.“
– Hver voru plönin áður en veiran
setti strik í reikninginn?
„Að ferðast um eyjuna og með vorinu
að kaupa flugmiða til Íslands.“
– Hvernig hefur COVID-19 verið
að hafa áhrif þar sem þú býrð?
„Mikil áhrif. Allir lokaðir inn og nán-
ast engin á ferli þar sem það var sett
á útgöngubann og allt lokað nema
sumar matvörubúðir, apótek, banki
og pósthús.“
– Hvernig hefur tilveran verið
hjá þér undanfarnar vikur, hefur
margt breyst?
Það er allt breitt en tilveran hefur
verið fín. Frábært frí án nokkurs
áreitis frá umhverfinu eins og ég
segi.“
– Hvaða lærdóm getum við dregið af
heimsfaraldrinum?
„Að það er í lagi að hægja á sér og þurfum
ekki alltaf að vera á harðahlaupum eftir
veraldlegum gæðum. Njótum dagsins.“
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að
eiga í samskiptum við fólk?
„Símann, Messenger, Snapchat, E-mail,
FaceTime og Zoom.“
– Ef þú fengir bara að hringja eitt
símtal í dag, hver fengi það símtal og
hvers vegna?
„Mundi nota Zoom og hringja í tvíbbana
mína, tveir fyrir einn.“
Að vera í hita og blíðu allt
árið hefur svo að sjálfsögðu
mikil áhrif á kropp og
anda. Mikið og gott félagslíf
og alls konar klúbbar/
hópar og frábært fólk. ...
48 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.