Víkurfréttir - 13.05.2020, Side 58
„Fyrsta vikan eftir að hefja mátti æfingar gekk vonum framar en 98%
iðkenda komu aftur í þeirri viku. Það var gífurlega gaman að sjá iðkendur
koma til baka og langflestir betri en þeir voru fyrir sex vikum enda hafa
næstum allir verið duglegir að nýta æfingarnar sem voru í boði,“ segir
Helgi Rafn Guðmundsson, þjálfari hjá Taekwondo-deild Keflavíkur, en
þegar samkomubann var í gangi bauð deildin öllum fjölskyldum iðkenda
sinna upp á ókeypis heimaæfingar auk þess sem fjöldi úrlausna voru í
boði fyrir iðkendur deildarinnar.
Allir iðkendur fengu í það minnsta
sex heimaæfingar á viku sem þeir
gátu valið úr og í hverri viku fengu
þau nýjar æfingar. Æfingarnar voru
sendar með XPS-æfingaforritinu
og iðkendur merktu við hvað þau
voru að gera á æfingum. Þannig
gátu þjálfarar fylgst með hverjir eru
að æfa og heimaæfingar gilda sem
mæting á æfingu. Yfir 100 iðkendur
tóku þátt í þessum æfingum.
Þá skiptu þjálfara með sér ZOOM-
æfingum þrisvar sinnum í viku þar
sem iðkendur gátu verið með heima
og þær æfingar voru vel sóttar. Meira
að segja iðkendur utan af landi tóku
þátt í æfingunum.
Þjálfarar buðu líka upp á einka-
tíma í gegnum ZOOM. Þar gátu
iðkendur verið í beinni með þjálfara
sem hjálpaði þeim með æfingarnar
sínar. Einnig voru þjálfara í sam-
skiptum við iðkendur og fjölskyldur
þeirra með æfingar og beltagráðanir.
Það hafa tveir iðkendur fengið nýja
beltagráðu í gegnum netið og það er
í fyrsta skipti hjá félaginu sem iðk-
endur ná belti í gegnum einkatíma
á netinu.
Það voru reglulegar áskoranir, t.d.
myndasamkeppni og iðkendur senda
inn hvernig þeir brjóta páskaaegg
með taekwondo-sparki svo dæmi
séu tekin.
„Þjálfarar eru mjög stoltir af því
hversu vel gekk að halda iðkendum
virkum í sex vikur í samkomubanni
en einnig hafa foreldrar og systkini
tekið þátt í æfingunum við mikinn
fögnuð,“ sagði Helgi Rafn.
Laus störf við leikskólann Laut
Sérkennslustjóra, deildarstjóra, leikskólakennara, þroskaþjálfa eða
annað uppeldismenntað fólk vantar til starfa í leikskólanum Laut í
Grindavík frá 12. ágúst næstkomandi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Leikskólinn er fjögra deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða til
6 ára. Við erum „Skóli á grænni grein“ og vinnum eftir Uppbygg-
ingarstefnunni – Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing eru
einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að
finna á heimasíðu.
Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörf-
um með ungum börnum æskileg
• Færni í samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til
greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160
og 847-9859. Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið
frida@grindavik.is
Endurnýja þarf eldri umsóknir. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2020.
Taekwondo
æft á fullu þrátt fyrir æfingabann
Krakkarnir voru duglegir að æfa heima í stofu.
Helgi Rafn að þjálfa
Taekwondo-iðkanda
yfir netið með
XPS-æfingaforritinu.
Heiða Dís og Nói gleðjast að lokinni góðri æfingu.
58 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.