Víkurfréttir - 13.05.2020, Qupperneq 62
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Hálfsdags-herbergi skilst mér
að hægt sé að fá í nágrenni Leifs-
stöðvar, Ragnheiður mín!
Sameinaður Lífeyrissjóður Suðurlands, Suðurnesja og Vesturlands Sími: 420 2100 - netfang: festa@festa.is
Ársfundur sjóðsins verður haldinn á Grand
Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, fimmtudaginn
28. maí 2020 og hefst kl. 18:00.
Ársfundur
2020
Dagskrá fundar:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
3. Önnur mál
Í stjórn sjóðsins eru:
Örvar Ólafsson, formaður
Halldóra Sigr. Sveinsdóttir, varaformaður
Anna Halldórsdóttir
Dagbjört Hannesdóttir
Ólafur Magnússon
Sigurður Ólafsson
Framkvæmdastjóri:
Gylfi Jónasson
Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum en til að tryggja núgildandi samkomubann verður einnig hægt að
fylgjast með fundinum í beinni útsendingu meðan á honum stendur. Þeir sjóðfélagar sem hyggast nýta sér
það eru beðnir um að skrá sig á festa@festa.is í síðasta lagi kl. 12 á ársfundardegi og fá þá uppgefna slóð til
að tengjast.
Ávöxtun séreignardeildar 2019
Hrein eign séreignardeildar nam 705 milljónum króna í árslok 2019, þ.a. námu eignir sparnaðarleiðar II 678
milljónum króna. Hrein nafnávöxtun Sparnaðarleiðar I, sem hóf starfsemi á miðju ári 2018, nam 6,3% eða
3,6% í hreina raunávöxtun. Sparnaðarleið II skilaði 12,6% í hreina nafnávöxtun eða 9,7% í hreina raunávöxtun.
Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sparnaðarleiðar II undanfarin tíu ár er 4,7%.
2019 2018
Breytingar á hreinni eign:
Iðgjöld . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 11.822 11.066
Lífeyrir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . -4.279 -3.887
Hreinar fjárfestingatekjur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20.415 8.599
Rekstrarkostnaður . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . -306 -295
Breyting á hreinni eign til greiðslu lífeyris 27.651 15.483
Hrein eign frá fyrra ári 148.928 133.445
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris 176.579 148.928
Efnahagsreikningur:
Eignahlutir í félögum og sjóðum 85.839 64.324
Skuldabréf og aðrar fjárfestingar 84.386 79.283
Fjárfestingar 170.225 143.607
Kröfur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.501 1.587
Innlán og aðrar eignir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5.005 3.829
Viðskiptaskuldir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 152 96
Annað 6.354 5.320
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris 176.579 148.928
Ýmsar kennitölur
Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar . . . . . . . . . . . . . . . . 13,2% 6,1%
Hrein raunávöxtun samtryggingardeildar . . . . . . . . . . . . . . . . 10,2% 2,7%
Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu fimm ára . . . . . . . . . . . 5,4% 4,7%
Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu tíu ára . . . . . . . . . . . . . . 4,9% 3,3%
Tryggingafræðileg staða . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . -0,5% -1,3%
* fjárhæðir í milljónum króna
Frelsi með öryggi
Í vikunni bárust þær fréttir að unnið sé að því að aflétta ferðatakmörk-
unum til landsins, með skilyrðum þó. Það er mikilvægt að vel takist til
í því að finna þetta gullna jafnvægi á milli þess að auka frelsið sem við
öll þráum án þess að kvika hvergi frá mikilvægasta markmiðinu sem er
að tryggja öryggi borgaranna gegn þessari skæðu veiru sem engu eirir.
Þetta er gríðarlega stórt skref og ríkisstjórnin sýnir mikið hugrekki með
þessari ákvörðun, sem er í senn brött og varfærin.
Nú sem aldrei fyrr þarf að hugsa í
lausnum og hugsa hratt. Það er óhjá-
kvæmilegt að þetta skimunarferli á
flugvellinum taki einhvern tíma og
valdi farþegum óhagræði, til viðbót-
ar við allt það sem við höfum þurft
að venja okkur við til þessa og er
hefðbundin vopnaleit orðin hluti af
ferðalaginu. Þess vegna þarf að leita
allra leiða til að þetta ferli taki sem
stystan tíma og verði eins snuðru-
laust og mögulegt er. Eins og þetta
hefur verið kynnt er hugmyndin sú
að farþegar verði skimaðir við komu
til landsins, yfirgefi svo flugvöllinn
og haldi kyrru fyrir á áfangastað þar
til niðurstaða úr skimuninni liggur
fyrir og þeim veitt leyfi til að ferðast
um landið.
Samkvæmt því sem fram hefur
komið er áætlað að það gæti tekið
fjóra til átta tíma þar til farþegar geti
vænst þess að fá niðurstöðu, ekið
verði með sýnin á veirufræðideild
Landsspítalans og þau greind þar. Nú
er unnið að útfærslunni, þetta hefur
aldrei verið gert og ég efast ekki um
að allar leiðir verði skoðaðar til þess
að spara tíma. Nú er ég ekki veiru-
fræðingur og set þann mikilvæga
fyrirvara á það sem ég velti hér fyrir
mér en gæti verið skynsamlegt að
skoða að setja upp færanlega veiru-
deild í nágrenni flugstöðvarinnar
til að stytta greiningartímann?
Kári Stefánsson greindi allt í Turn-
inum í Kópavogi þannig að þetta er
greinilega hægt. Ef það gæti stytt
úrlausnartímann um allt að klukku-
tíma að setja þetta upp hér væri til
mikils að vinna.
Ef vel tekst til og ferðamenn byrja
að koma til landsins með þessum
skilyrðum gætu falist í þeim mögu-
leikar fyrir ferðaþjónustufyrirtæki
hér á svæðinu til að bjóða fram
„biðtíma áfangastað“, sérstaklega til
þeirra ferðamanna sem vilja sneiða
hjá borginni og fara beint í fámennið
og víðernið úti á landi. Hálfsdagsher-
bergi með „Room Service“ á meðan
beðið er gæti verið söluvara ferða-
sumarsins 2020.
En allt veltur þetta auðvitað á
því að fólk almennt, hérlendis sem
erlendis, vilji byrja að ferðast aftur
og að framboð verði á flugi á milli
landa. Óvissan er mikil en henni
verður ekki eytt nema með því að
fara af stað. Þessi bröttu en varfærnu
skref eru vonandi upphafið að við-
spyrnunni.
LO
KAO
RÐ
RAGNHEIÐAR ELÍNAR