Mosfellingur - 14.05.2020, Síða 32
- Steinaeyjan og aðsendar greinar32
Kvartanir og leiðindi sendist á steinaeyjan@gmail.com
Kebab staður – Shavarmá
Hinsta ósk Steinaeyjunnar er
að reisa kebab-stað við Varmá
sem kallast Shavarmá þar sem
maður getur japlað á volgri
shawarma-vefju og kjúklinga-
kebab beint eftir æfingu.
Money Sim hlýtur að geta
pungað út nokkrum kúlum
fyrir einum kebab-stað og væri
það ekki svo slæm fjárfesting.
nýr þjóðarleikvangur – Steina-Stadium
Það þarf nýjan þjóðarleikvang
og erum við í Steinaeyjunni
komnir með fullkomna lausn:
Henda bara í eitt stykki 60.000
manna völl á Tungubökkum
og erum við komnir með nafn
á völlinn líka! Við hvetjum
Halla bæjó að fara beint í að
plögga þessu á næsta fundi.
casino
Þar sem Mosfellsbær er með
flesta spilafíkla miðað við
höfðatölu í Norður-Evrópu þá
vonumst við eftir því að fá eitt
Casino við hliðina á hinum
virðulega Fmos. Það þarf
aðeins að lífga uppá miðbæ
Mosfellsbæjar og er góð
lausn að henda einu spilavíti
í bæinn. Svo er alltaf hægt að
hoppa yfir á Olís og taka einn
lengjuseðil í leiðinni.
stytta af Halla bæjó
Er til betri leið að heiðra
bæjarstjórann okkar en að
byggja styttu af honum á golf-
vellinum? Nei, held ekki. Það
bráðvantar eina svona styttu
af okkar manni og er golfvöll-
urinn fullkomið heimili fyrir
hana. Hún verður gífurlega
vinsæll ferðamannastaður
og mun borga sig margfalt til
baka!
Hollur veitingastaður
Síðast en ekki síst þá þarf
lífsnauðsynlega hollan
veitingastað hér í bæ og
höfum við ákveðið að best
væri að sameina KFC og
Local á einn stað. Það er
löngu orðið tímabært að fá
hollan skyndibitastað hér í
Mosfellsveitina.
5 staðir
sem þarf í mosó
1
2
3
4
5
Þvílík forréttindi eru að búa í nánd
við náttúru, í bæjarfélagi sem um-
kringt er fallegum gönguleiðum
hvort sem er við sjávarsíðu, í skóg-
lendi eða upp á fjalli. Fuglasöngur
og hófadynur fylla loftið í kvöld-
kyrrðinni. Ríkidæmi sem ekki er
sjálfgefið og ber að varðveita. Passa
þarf upp á að stækkandi bær glati
ekki sérstöðu sinni sem sveit í borg.
Umhverfismál eru sífellt fyrirferðarmeiri
í hugum flestra. Margir bæjarbúar láta sér
ekki nægja að fegra og snyrta garðinn sinn,
heldur taka til hendinni í nærumhverfi og
leggja sitt af mörkum, til dæmis með því að
plokka. Þeim fjölgar sem líta á reiðhjól sem
raunhæfan kost í samgöngum.
Það sem af er kjörtímabilinu hefur gott
samstarf milli fulltrúa allra lista náðst á
vettvangi umhverfisnefndar bæjarins og
hefur það meðal annars skilað sér í metn-
aðarfullri umhverfisstefnu Mosfellsbæjar,
sem samþykkt var síðasta haust.
En mikilvægt er að efndir fylgi orðum og
stefnan sé höfð að leiðarljósi í allri starf-
semi sveitarfélagsins.
Spennandi áfangar eru í sjón-
máli, svo sem langþráð opnun
gas- og jarðgerðarstöðvar SORPU
í Álfsnesi, sem mun umbylta
meðhöndlun lífræns úrgangs frá
heimilum höfuðborgarsvæðisins
og stórauka framboð á vistvænu
svansvottuðu íslensku eldsneyti,
metani.
Unnið er með Umhverfisstofnun að gerð
stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Ála-
foss og Tungufoss og horft er til mögulegrar
stækkunar á friðlýstu svæði við Varmárósa.
Leitað er varanlegra leiða til að tryggja
vernd og notagildi Varmár sem útivistar-
svæðis í hjarta bæjarins. Mörg önnur verk-
efni á sviði umhverfismála bíða okkar og ég
hlakka til þeirra.
Göngum vel um náttúru og njótum sum-
arsins í fallega bænum okkar.
Michele Rebora
Aðalmaður Vina Mosfellsbæjar í umhverfisnefnd
vorið kemur, heimur hlýnar
Fátt er skemmtilegra en að
leika sér í skóginum. Fyrir
neðan Arnartanga hér í bæn-
um hefur vaxið upp mynd-
arlegt skógarsvæði þar sem
áður fyrr voru bara gróður-
snauðir melar. Þar sér maður
oft börn á leik og er það hið
besta mál.
En undanfarið hefur borið
á því að „duglegir skógar-
höggsmenn“ hafa dundað sér
við að höggva, saga eða rífa
niður tré og runna. Þarna eru
væntanlega stálpaðir krakkar
að verki sem kannski hafa
fengið sög í jólagjöf.
Spurning er hvort þessir at-
hafnamenn gætu ekki fengið
vinnu í sumar við að hjálpa til
í skógræktarsvæðunum bæj-
arins við að grisja – auðvitað
undir leiðsögn fagmanna.
Alla vega er æskilegt að
foreldrar kenni börnunum
sínum að bera virðingu fyrir
umhverfinu og gróðrinum.
Það tekur mörg ár fyrir tré að
vaxa en einungis örfáar mín-
útur að rífa það niður.
Úrsúla Jünemann
Mikið hefur gengið á í samfélagi
okkar síðustu mánuði og má segja
að allt hafi breyst á einni nóttu.
Bregðast þurfti hratt og vel við
kröfum Almannavarna og tókst
skólafólki í Mosfellsbæ að stokka
upp í skólastarfinu á met tíma.
Unnið var dag og nótt við að und-
irbúa breytta kennslu og jafnframt
tryggja öryggi nemenda og starfsfólks.
Mikilvægt var að halda starfsemi leik- og
grunnskólanna gangandi þrátt fyrir erfið-
leika og því er að þakka þolgæði, útsjónar-
semi og forgangsröðun okkar kennara og
skólafólks.
Skólinn í framlínu
Það var óbærileg tilhugsun að skólahald
yrði lagt niður um tíma og tókst að bjóða
öllum nemendum kennslu eftir þeim að-
stæðum sem skólarnir hafa upp á að bjóða.
Skólarnir í Mosfellsbæ eru fjölbreyttir og
tókst að nýta húsnæði hvers skóla eins og
kostur var miðað við kröfurnar sem gerðar
voru um fjöldatakmörkun í hverju rými.
Gott skipulag og úrræðagott starfsfólk sá
til þess að hægt var að halda úti kennslu
eins og kostur var. Einnig tókst að bjóða öll-
um leikskólabörnum dvöl hluta úr viku og
var frekar reynt að lengja vistina yfir dag-
inn en að bjóða upp á fáar klukkustundir
á hverjum degi.
Enn og aftur sannast það hve skólinn
spilar stóran þátt í lífi okkar allra. Skólinn
er meginstoð samfélagsins og miðjan í lífi
fjölskyldna. Skólafólk er í framlínu alla daga
og sannast það best þegar á reynir.
Velferð barna
Fátt er mikilvægara börnum og ungl-
ingum en að halda rútínu, stunda
námið sitt og hitta vinina eins og
kostur er. Að hafa unglinga heima í
reiðuleysi getur kallað fram önnur
vandamál sem erfitt getur verið að
vinda ofan af. Skólinn er ramminn
utan um líf barna og unglinga þar
sem þau læra nýja hluti, takast á við
áskoranir og styrkja sjálfsmyndina.
Þó að skólastarf sé hafið að fullu að
nýju eru erfiðleikarnir ekki að baki. Kór-
ónuveirufaraldurinn hefur haft áhrif á
andlega líðan fólks og er mikilvægt er að
vera vakandi yfir velferð barna og unglinga
á erfiðum tímum.
Skólaþróun á methraða
Í Mosfellsbæ tókst að halda úti starfsemi
í skólum og leikskólum í samkomubanninu
án þess að nokkur vandræði kæmu upp.
Skólafólk hélt þétt utan um hvert annað en
það skiptir miklu máli að samstarfsfólk hlúi
hvert að öðru og gæti þess að börnunum
líði sem best. Þetta var áskorun og sýndi
það sig að gott samstarf og samskipti gera
kraftaverk.
4. maí rann upp og nemendur á öllum
skólastigum mættu í skólann eins og þau
þekkja hann best. Við lærðum öll heilmikið
á þessu tímabili og má segja að mörg stór
skref hafi verið stigin í skólaþróun á Ís-
landi.
Að lokum vil ég koma á framfæri að í
bókunum fræðslunefndar og bæjarstjórnar
Mosfellsbæjar er gríðarsterku skólasamfé-
lagi færðar miklar þakkir fyrir ómetanlega
vinnu á erfiðum tímum.
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir,
formaður fræðslunefndar
Þakkir til skólafólks
í mosfellsbæ
sög í jólagjöf?
Birkir og Eyþór Wöhler