Spássían - 2011, Page 42

Spássían - 2011, Page 42
 42 Skáld mála ljóðmyndir af sjálfum sér í hálfgerðu óhófi – bera sig og afhjúpa, rýna í sálir sínar öskrandi og hjalandi á víxl og leggja blæðandi hjörtu sín á borðið svo aðrir megi sjá hve þau þjást. Og þau mála ljóðmyndir af náttúrunni allt um kring – spegla sig og heiminn gervallan í lækjarsprænum, hvirfilbyljum, fjallgörðum, hafinu, húsum og skipum og skepnum. En þau mála líka myndir af öðrum – bestu ástarljóðin eru líklega þau sem mála hinn elskaða en þau verstu hin sem ná aldrei út fyrir tilfinningasemi skáldsins. Það flýr enginn sjálfan sig, en öllum er hollt að gefa öðrum hlutdeild í sér – það er auðvelt að verða ástfanginn af eigin tilfinningum en erfitt að elska aðra. Auk þess má mín vegna halda því fram að enginn sé fær um að elska einn – óendurgoldin ást sé einfaldlega ekki til. En ég er áreiðanlega til í að gefa mig með það ef á mig er gengið. En það breytir því ekki að hið expressjóníska ástarljóð er eins konar rúnk á almannafæri. * * * Ef ég segði honum kynni hann við það. Kynni hann við það ef ég segði honum. Kynni hann við það kynni Napóleón kynni Napóleón kynni kynni hann við það. Ef Napóleón ef ég segði honum ef ég segði honum ef Napóleón. Kynni hann við það ef ég segði honum ef ég segði honum ef Napóleón. Kynni hann við það ef Napóleón ef Napóleón ef ég segði honum. Ef ég segði honum ef Napóleón ef Napóleón ef ég segði honum. Ef ég segði honum kynni hann við það kynni hann við það ef ég segði honum. Núna. Ekki núna. Og núna. Ef ég segði honum eftir Gertrude Stein frá árinu 1923 er ljóð um og fyrir listmálarann Pablo Picasso. Hann er ekki nefndur á nafn í ljóðinu, hann er ekki ávarpaður og kemur ekki beint við sögu á nokkurn hátt. Það mætti jafnvel spyrja: Hvað í ósköpunum hefur þetta með Pablo Picasso að gera? Ljóðið er eitt af mörgum portrettum sem Gertrude Stein málaði af misfrægum samferðamönnum sínum – en líkt og alkunna er var hún hjartað í lista- og bókmenntakreðsum Parísarborgar á þriðja og fjórða áratugnum. Picasso var sjálfsagt þeirra frægastur og alveg áreiðanlega sá sem stóð henni næst. * * * Ó þú, sem elskuð ert af mínum tuttuguogsjö skilningarvitum, ég elska þér! – Þú þína þig þér, ég þér, þú mér. – Við? Þetta á annars (í framhjáhlaupi) ekki að vera hér. Hver ert þú, ótalda kvenpersóna? Þú ert - - ert þú? – Fólkið sagði að þú værir – leyfum – því segja, það veit ekkert hvað kirkjuklukkan slær. Þú berð hattinn á fótum þér og gengur á höndum, á höndunum gengur þú. Anna Blóm eftir Kurt Schwitters frá árinu 1919 er portrett af óþekktri konu sem var líklega aldrei til. Höfundurinn (ég meina „ljóðmælandinn“!) er ekki einu sinni viss um tilvist þessarar ástkonu sinnar, sem hann málar engu að síður svona sterkum litum, svona sterkum tilfinningum. Ljóðið sló umsvifalaust í gegn og ku hafa gert Schwitters að frægum manni á einni nóttu. En Textar sem dansa aðra orðum Eftir Eirík Örn Norðdahl Pablo Picasso. Gertrude Stein. 1905-6.

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.