Spássían - 2011, Side 50

Spássían - 2011, Side 50
 50 ÞAÐ ER NOKKUÐ LJÓST að skoðanir beggja hópa stjórnast af vana og hefðum þess lands sem alist er upp í. Þannig finnst Þjóðverjum (og líklega Frökkum, Ítölum og Spánverjum) ekkert að því að hlusta á „leiklestur“ yfir upprunalega efninu á meðan Íslendingar (og líklega Hollendingar, Svíar og Norðmenn) eru vanir því að „lesa“ kvikmyndir og hlusta um leið á upprunamálið. Það verður þó að segjast að fyrir þá sem neyta helst efnis á ensku hefur skjátextinn frekar virkni þýðingarhækju. Skilningur á frummálinu er oft nægilegur, og ekki þarf að lesa allan textann heldur aðeins stikla á þeim orðum sem vantar þýðingu á. Megnið af talinu kemst til skila án þess að skjátextinn sé lesinn.1 Það þýðir þá aftur á móti að „erlendar“ kvikmyndir, það er myndir sem eru á öðru tungumáli en ensku, verða enn erfiðari áhorfs þegar áhorfandi sem er óvanur að lesa allan skjátextann þarf að treysta alfarið á hann til að skilja talið í myndinni. Að því leyti er munurinn á skjátextun og talsetningu mikilvægur en í talsetningarlöndum fá allar kvikmyndir sömu stöðu innan málsamfélagsins, hvort sem þær voru upprunalega á ensku eða hindí, og eru því jafnaðgengilegar óháð frummáli. Það þýðir þó ekki að Eftir Gunnar Tómas Kristófersson T HÆFILEIKINN TIL AÐ TALA um talsetningu kvikmynda „Verhaften Sie die üblichen Verdächtigen!“ Casablanca „Nun fragst Du Dich, ob heute Dein Glückstag ist? Ist heute dein Glückstag, Punk?“ Dirty Harry Darth Vader: Obi-Wan hat dir nie erzählt, was wirklich mit deinem Vater geschehen ist! Luke: Er hat mir genug erzählt! Er hat mir gesagt, dass Sie ihn umgebracht haben! Darth Vader: Nein! Ich bin dein Vater!! The Empire Strikes Back eða talað yfir hæfileika alsetning er ekki hátt skrifuð á Íslandi og gagnrýni á hana á vissulega rétt á sér. Þeir sem eru henni ekki vanir eru líklegir til að hafna henni alfarið sem arfaslakri leið til að þýða hljóð- og myndmiðla. Að gagnrýna hið óþekkta gengur hins vegar í báðar áttir. Hef ég kynnst því í Þýskalandi, þar sem ég bý, að fólk segist ekki vilja „lesa“ kvikmyndir og á þá við að þurfa að lesa skjátextann á milli þess sem það lítur upp til að aðgæta hvaða myndrænu skilaboð kvikmyndin er að færa. Mun betra sé að geta horft á kvikmynd og notið hennar sjónrænt án þess að hafa skjátextann fyrir. Getur verið að talsetning sé ekki svo slæm eftir allt saman og að skjátextun sé léleg hækja til að styðjast við í miðli sem byggir fyrst og fremst á sjónarspili? ,,Í talsetningarlöndum fá allar kvikmyndir sömu stöðu innan málsamfélagsins, hvort sem þær voru upprunalega á ensku eða hindí, og eru því jafnaðgengilegar óháð frummáli.”

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.