Bændablaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júní 202032 ÍSLAND ER LAND ÞITT Ekta íslenskur matur um allt land Nýverið fór í loftið ný heima- síða, EKTA – Icelandic Food Exper ience, sem ætlað er að auð velda ferðalöngum, jafnt íslensk um sem erlendum, að finna veitingastaði hér- lendis sem leggja áherslu á íslenska matar menningu og mat úr héraði. Heimasíðan er meistaraverk efni Guðnýjar Hilmarsdóttur í menningar- stjórnun við Háskólann á Bifröst og er mjög aðgengileg og sett upp á skýran hátt. „Ég hef verið að vinna í ferða­ þjónustunni í rúman áratug en þó ég sé með grunnmenntun í ljósmyndun, þá leiddist ég inn í heim ferðamennskunnar vegna spænskukunnáttunnar. En ég nam í Barcelóna, ílengdist þar og bjó þar að lokum í 15 ár. Eiginmanni og tveimur börnum ríkari, fluttist ég svo til Íslands árið 2013 og hér viljum við vera,“ segir Guðný en leið­ beinandi hennar á Bifröst var Anna Hildur Hildibrandsdóttir. Hluti af menningartengdri ferðaþjónustu Verkefnið var valið til þátt­ töku í Virkjum hugvitið á vegum Íslenska ferðaklasans, atvinnuvegaráðuneytisins, Icelandic Startups, Nýsköpunar­ miðstöðvar Íslands og Ferðamálastofu. „Frá árinu 2013 hef ég verið að vinna hjá Íslenskum fjalla­ leiðsögumönnum og aðallega verið í ferðahönnun undir sérferðamerkinu þeirra, Iceland Rovers. Þar er ég að skipuleggja ferðir frá A­Ö og gjarnan á allt að vera innifalið. Jafnt við vinnu mína sem og á ferðalögum hefur mér fundist vanta upplýsingar um veitingastaði með ekta íslenskum mat og fólk endar oftar en ekki á vegasjoppum. Það er auðvitað allt í lagi og gott að hafa slíka þjónustu þegar fólk er á hraðferð, en það er bara svo mikið til af góðum veitingastöðum utan þjóðvegarins og krefst oft ekki nema nokkurra mínútna aukaaksturs,“ útskýrir Guðný og segir jafnframt: „Haustið 2018 ákvað ég að bæta við mig menntun og hóf meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Það tók ég í fjarnámi ásamt vinnunni og lagði áherslu á menningartengda ferðaþjónustu þar sem ég hafði kost á. Þar kviknaði þessi hugmynd og varð svo úr að lokaverkefnið mitt var viðskiptaáætlun fyrir EKTA Icelandic Food Experience (Ekta íslensk matarupplifun). Upphaflega langaði mig að gera app en það er mjög kostnaðarsamt og einnig hafa forsendur breyst vegna aðstæðna í þjóðfélaginu núna. Ég setti því EKTA í loftið sem vefsíðu og enn sem stendur er hún eingöngu á íslensku þar sem hér eru nær eingöngu Íslendingar að ferðast í augnablikinu. Hún mun þó fljótlega fá þýðingu yfir á fleiri tungumál. Hvetur veitingastaði til að hafa samband Síðan er tiltölulega nýfarin í loftið og er Guðný enn þá að byggja upp sambönd við aðstandendur veitingastaða en hún hvetur fólk til að hafa samband við sig ef það er með ábendingar varðandi veitingastaðaval og annað á info@ektaiceland.com „Hvað framtíðin ber í skauti sér veit enginn, en ég á ekki von á öðru en að hér komi fljótlega aftur ferðamenn sem muni nýta sér vefinn eins og Íslendingar. En það væri gaman ef EKTA gæti orðið að eins konar gæðastimpli.“ EKTA er á Instagram: https://www.instagram.com/ ektaiceland/ Einnig á og Facebook:. https://www.facebook.com/ EktaIceland/ /ehg Guðný Hilmarsdóttir. Beituskúrinn, Neskaupstað. Mynd / Guðný Kaffi Loki, Reykjavík. Mynd / Kaffi Loki Sjávarpakkhúsið, Stykkishólmi. Mynd / Sjávarpakkhúsið Móðir Jörð, Vallanesi. Mynd / Móðir Jörð Gott, Vestmannaeyjum. Mynd / Gott Fisherman, Suðureyri. Mynd / Fisherman 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is Drifsköft, drifskaftshlífar og drifskaftshlutir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.