Bændablaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júní 2020 35
Topigs Norsvin í Noregi:
Sæðisútflutningur
heldur velli
Eitt stærsta fyrirtæki heims í
erfðaefnum grísa, Topigs Norsvin
í Noregi, hefur átt í erfiðleikum
með að flytja út til Bandaríkjanna
vegna alheimsfaraldursins á
meðan Geno, erfðafyrirtæki með
kúasæði, hefur aukið sölu sína
þar í landi á sama tíma. Topigs
Norsvin hefur
starfsstöðvar í 55
löndum og yfir
700 starfs menn og
árlega fjárfestir
fyrirtækið í
rannsóknar- og
þróunar vinnu
fyrir rúmlega
þrjá milljarða
ís lenskra króna.
Á hverju ári
framleiðir Topigs
11 milljónir
sæðis skammta og
um 118 milljónir
sláturgrísa í heiminum hafa
erfðaefni frá fyrirtækinu. Fimmti
hver grís í heiminum hefur
erfðaefni frá fyrirtækinu. Vegna
alheimsfaraldursins á fyrirtækið í
erfiðleikum með Bandaríkjamarkað
þar sem svínarækt á erfitt
uppdráttar. Reiknað er með
að um 7 milljónir grísa þar í
landi verði aflífaðir á öðrum
ársfjórðungi vegna minnkandi
eftirspurnar og tapið hleypur á
um 700 milljónum dollara. Þar
að auki er viðskiptastríðið milli
Bandaríkjanna og Kína ekki til að
bæta ástandið.
Nýir markaðir opnast
Undanfarin 16 ár hefur Topigs sent
norskt svínasæði til Bandaríkjanna
í hverjum mánuði en í dag hafa um
15 prósent grísa í Bandaríkjunum
norskan uppruna. Tap fyrirtækisins
vegna minnkandi eftirspurnar í
Bandaríkjunum er í kringum þrjár
milljónir íslenskra króna og veldur
það forsvarsmönnum fyrirtækisins
ekki enn miklum áhyggjum.
Þær hræðast meira afleiðingar
af því ef viðskiptavinir þeirra í
Bandaríkjunum verða gjaldþrota.
Heildarútflutningur fyrirtækisins
hefur gengið vel það sem af er
ári og nýir markaðir hafa opnast.
Þannig hefur Rússlandsmarkaður
opnast og nú gengur betur að flytja
út til Brasilíu og Tyrklands.
Mikil söluaukning í
Bandaríkjunum
Aðra sögu er að segja um erfða
fyrirtækið Geno sem framleiðir
kúasæði. Fyrirtækið hefur aukið
sölu í Bandaríkjunum þrátt fyrir
kórónukrísuna og er aukning í
aprílmánuði 180 prósent. Það
skýrist í að erfðaeiginleikar Norsk
Rødt Fekynsins leiða til minni
kostnaðar fyrir mjólkurbændur í
lífrænni ræktun, ásamt sjálfbærari
og skilvirkari framleiðslu. Geno
selur eingöngu til dreifingaraðila
erlendis og í dag er Bandaríkja og
Bretlandsmarkaður um 60 prósent
af heildarútflutningsverðmætum
fyrirtækisins. Tyrkland er einnig stór
útflutningsmarkaður ásamt Úkraínu
og Kína. /ehg - Bondebladet
Topigs Norsvin hefur mikil áhrif á svínarækt víða um heim.
30%
afsláttur
SPENNANDI
RAFGIRÐINGAR-
EFNI!
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR í flestar
gerðir dráttarvéla
UTAN ÚR HEIMI
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðar-
dekk skipta gæði, ending og áreiðanleiki
höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur
og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur — hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 590 5280 og kynntu þér kosti
Maxam dekkjanna.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Hagkvæm
dekk fyrir
alvöru kröfur
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237