Bændablaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júní 202046
Stundum fer ég í leiðangur með
vissa tegund bíla í huga til að
prufukeyra og var í þannig hug-
leiðingum að leita að litlum sport-
legum fjórhjóladrifnum bíl sem
væri brúklegur í nánast alla vegi
og vegslóða.
Eftir stutta leit fann ég álitlegan
kost í Heklu H/F. Nýr Mitsubishi
ASX kom seint á síðasta ári töluvert
breyttur frá fyrri bílum með sama
nafn.
Lipur í akstri og fínn kraftur
Mitsubishi ASX er gott að keyra,
fótapláss með ágætum, útsýni fram
á við mjög gott og hliðarspeglar
með þeim stærstu (allavega miðað
við stærð á bíl, vinur lýsti hliðar-
speglunum þannig: „Næstum eins
og eyrun á Mikka mús.“
Sætin þægileg og öllum
stjórntækjum komið þannig fyrir
að aldrei þarf að taka augun af
veginum við notkun þeirra.
Þá skilar 2000 rúmsentímetra
(cc) bensínvélin 150 hestöflum,
einfaldlega mokar bílnum upp í
umferðarhraða á mettíma.
Fjöðrunin er góð, sama hvort
ekið er á malbiki eða á holóttum
malarvegi. Þó er hann ekki alveg
gallalaus því umhverfishljóð inni
í bílnum mældist yfir þeim hávaða
sem ég set viðmiðið, sem er 72db.
Samkvæmt mínum mælingum þá
mældist hávaðinn inni í bílnum
73,2db. á 90 km hraða.
Með því að læsa drifinu
fær maður „rallígrip“
Fyrir nokkrum árum prófaði ég
eins bíl og munurinn er mikill,
vélin hefur stækkað úr 1.6 í 2.0 l
vél, er nú 150 hestöfl í stað 122 hö
og dráttargetan hefur aukist um 100
kg og nú 1300 kg.
ASX kemur með fimm gíra
beinskiptingu eða sex þrepa stig-
lausri CVT (Continuous Variable
Transmission) sjálf skiptingu og
fæst bæði með fram- og fjórhjóla-
drifi.
Þegar maður setur fjórhjóla-
drifna bílinn í gang er hann í sídrifi,
en með því að ýta tvisvar á takk-
ann sem er fyrir drifið þá er bíllinn
komin í framhjóladrifið. Þar með
ætti hann að eyða aðeins minna
eldsneyti. Munurinn er það mikill
í fjórhjóladrifi og ekki sama hvort
það er á malbiki eða malarvegi að
persónulega mundi ég alltaf hafa
bílinn í fjórhjóladrifinu. Vilji maður
hámarksgrip á möl þá læsir maður
bílnum í fjórhjóladrifinu og maður
er þá komin með „rallígrip“.
Öryggisbúnaður góður
og fáir mínusar
Í bílnum er akreinalesari,
blindhorns vari, viðvörun ef ekið
er of nálægt næsta bíl á undan og
ýmis annar öryggisbúnaður.
Þakglugginn kemur vel út (en
muna að loka fyrir sólarljós ef
það er mikil sól því annars verður
óþægilega heitt þegar sest er inn í
bílinn. Þessu gleymdi ég og hitinn
var óbærilegur eftir upphitun
sólarinnar.
Til að vera löglegur í umferð
þarf að snúa ljósatakkanum og
stilla á ljós til að fá afturljósin
á, en þegar maður yfirgefur bíl-
inn segir mælaborðið manni að
slökkva ljósin. Þessi skilaboð á
að hunsa því þegar maður lokar
hurðinni slokkna ljósin eftir nokkr-
ar sekúndur.
Stærsti mínusinn er að í bílinn
vantar varadekkið, en undir hler-
anum er gert ráð fyrir varadekki
og því óskiljanlegt að þar sé bara
eitthvert hringlaga frauðplast með
fullt af litlum hólfum en ekki
varadekk.
Gott verð á skemmtilegum
sportlegum jeppling
Uppgefin eyðsla er 6,3–6,5 lítrar
á hundrað kílómetra, en ég var
ekki í neinum sparakstri þessa
rúmlega 100 km sem ég ók bílnum.
Samkvæmt aksturstölvu var hann
að eyða 9,1 lítra á hundraðið.
Verðið er breytilegt eftir hvort
tekinn er Mitsubishi ASX eindrifs
eða fjórhjóladrifinn og val á
innréttingu. Verðið er frá 3.990.000
og upp í 5.490.000 krónur, sem er
verðið á bílnum sem var prófaður.
Fyrir þá sem vilja fræðast meira
um Mitsubishi ASX er best að fara
inn á vefsíðu Heklu á vefslóðina
www.hekla.is eða að hafa beint
samband við sölumenn Mitsubishi.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
lipur og kraftmikill
Mitsubishi ASX. Myndir / HLJ
Hliðarspeglarnir eru þægilega stórir.
Hliðarspeglarnir eru það góðir að maður þarf næstum ekki að vera með
annars ágæta bakkmyndavélina.
Valið er 225,55,18 eða 215,70,16 felgur og dekk, en varadekkslaus, þá er betri
kostur 16 tomman sem minnkar líkur á að höggva hlið úr dekki.
Hefði viljað láta taka þetta frauðplast í burtu og varadekk í staðinn.
Með ljósin kveikt allan hringinn má hunsa þessa skipun því ljós slokkna
þegar hurðinni er lokað.
Hávaðamælingin var í hærri kantinum við hefðbundna mælingu.
Þyngd 1.498 kg
Hæð 1.640 mm
Breidd 1.770 mm
Lengd 4.350 mm
Helstu mál og upplýsingar