Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Page 2
2 13. mars 2020FRÉTTIR Á þessum degi, 13. mars 1610 – Galileo Galilei gaf út niðurstöð­ ur fyrstu athugana sinna með sjónauka í ritinu Sidereus Nuncius. 1876 – Alexander Graham Bell hóf fyrstu tilraunina til úthringingar með símanum. 1922 – Mahatma Gandhi var handtek­ inn á Indlandi fyrir uppreisnaráróður. 1942 –Bandaríski söngvarinn Scat­ man John fæddist. 1979 – Maurice Bishop framdi valda­ rán á Grenada. snertilausar leiðir til að heilsast í veirufaraldri Fótabandið fræga Íbúar í Wuhan­héraði tóku fljótt upp á því að heilsast með því að slá saman skóm enda í miðpunkti veirufaraldursins. Sú aðferð kallast „Wuhan­handa­ bandið“ og hefur vakið athygli og lukku á veraldarvefnum. Loftfimman Þessi nálgun hefur löngum þótt sígild. Loftfimman telst þó ekki með ef fjarlægð milli einstaklinganna er meiri en níu metrar. Allt með látbragði Það er hægt að gefa knús án þess að knúsast, takast í hendur án snertingar, en þú þarft að finna látbragðsleik­ arann í þér og vona að manneskjan á móti sé í sama gír. Það getur brugðið til beggja vona. Heilsaðu eins og Vúlkani Nú kemur sér vel að vera Trekkari og kunna rétt táknmál. Þetta er merki sem án nokkurra orða seg­ ir: Lifðu vel og lengi. Persónu­ legra getur það ekki orðið. Segðu bara hæ Stundum þarf ekkert flækja hlutina. Þarna er best og áhættuminnst að nota munninn frekar en faðmlag eða handaband. En sé spennan óbærileg eða viðkomandi ekki sést í háa herrans tíð, er mælt með hoppi. Fleyg orð „Ég hef gengið í gegnum margt skelfilegt í mínu lífi, sumt af því gerðist í raun og veru.“ – Mark Twain Uppistand fyrir einn n Þórhallur Þórhallsson býður upp á uppistand í gegnum Skype n Gleður fólk í sóttkví Þ órhallur Þórhallsson, uppistandari með meiru, auglýsti þjónustu sína á samfélagsmiðlum á dögunum og býðst til þess að vera með uppistand í gegn- um veraldarvefinn, sérstaklega ætlað þeim sem eru í sóttkví. „Það eru allir uppistandar- ar búnir að lenda í því að uppistandi sé frestað og samkomur settar á ís,“ segir Þórhallur í samtali við DV. „Það er um að gera að nýta tæknina og reyna að gleðja einhvern í gegnum tölvuskjá- inn, hvort sem það er Skype eða FaceTime. Það hlýtur að vera hundleiðinlegt til lengdar að vera fastur heima í sóttkví.“ Á undanförnum dögum hafa skemmti- kraftar verið afbókaðir í hrönnum vegna þess að hætt hefur verið við ýmsa viðburði og skemmtanir. Á meðal þeirra sem hafa lent í slíku eru Margrét Erla Maack, Björk Jakobs- dóttir, Svavar Knútur og Atli Viðar Þorsteins- son. Um er að ræða gríðarlegt tekjutap fyrir suma en Margrét Erla vakti athygli á mikil- vægi þess að skipuleggjendur og skemmti- kraftar næðu einhvers konar samkomulagi við skyndilega afbókun viðburða, til dæmis að borgað væri inn á laun skemmtikraftsins og hóað í hann þegar að COVID-19 faraldur- inn væri afstaðinn. Í þræði Margrétar Erlu sagðist söngkonan Kristjana Stefánsdóttir hafa misst mánaðartekjur vegna faraldursins og tónlistar maðurinn Svavar Knútur tók í sama streng. Rithöfundurinn Gunnar Helga- son blandaði sér einnig í umræðurnar og hrósaði HS Orku, sem greiddi laun eiginkonu hans, skemmtikraftsins Bjarkar Jakobsdóttur, að fullu vegna veislu sem átti að halda næst- komandi laugardag en var aflýst. „Til hreinnar fyrirmyndar! Björk lofaði að vera til taks þegar kallið kæmi seinna,“ skrif- aði Gunnar. Beðið eftir bókun Þórhallur segist ekki enn vera kominn með uppistandspantanir gegnum netið, en hann bíður spenntur eftir vendingu í þeim málum. „Það gæti verið pínu vandræðalegt að vera með uppistand fyrir einhvern einn á skjánum. Það er yfirleitt betra að hafa stærri áhorfenda- hóp,“ segir Þórhallur hress, en hann þiggur allar áskoranir. Í lok nóvember á síðasta ári fór Þórhall- ur ásamt þeim Helga Steinari Gunnlaugssyni og Bjarna Baldvinssyni til Kína með það að markmiði að skemmta fólki. Ein af borgunum sem þremenningarnir heimsóttu var Wuhan þar sem COVID-19 veiran, sem nú skekur heimsbyggðina, er talin eiga upptök sín. Þór- hallur fullyrðir að hann sé ekki smitaður, enn sem komið er, og að stemningin í Wuhan hafi verið þrælgóð. „Þegar við vorum með sýninguna voru íbú- ar í Wuhan allavega enn í góðu skapi. Við vor- um þarna bara korteri áður en veiran fór að breiðast út, liggur við. Ég hef oft talað um það hvað ég er kvíðinn og það fór að sjálfsögðu allt á flug í mínu kerfi þegar fréttirnar byrjuðu að berast af faraldrinum, en ég virðist hafa slopp- ið,“ segir Þórhallur. n Tómas Valgeirsson tomas@dv.is Erfiður tími Margrét Erla er vinsæll skemmti­ kraftur en nú hefur mörgum viðburðum verið aflýst vegna COVID­19.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.