Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Side 4
4 13. mars 2020FRÉTTIR H vernig skal haga sér í samfélagi þar sem far- aldur geisar? Svarthöfði hefur ekki svörin á reið- um höndum en fagaðilar og sérfræðingar virðast sjálfir ekki öruggir með hvernig best sé að svara þeirri spurningu. Svarthöfði fær þau skilaboð dag- lega að bæði þurfi hann að lifa lífinu án þess að snerta neitt sem aðrir gætu hafa snert, ekki faðma, ekki heilsa með handabandi, ekki fara í margmenni, vinna heima ef hægt er. En á sama tíma fær Svarthöfði líka þau skilaboð að hann eigi að sýna stillingu og yfirvegun og lifa lífinu eins og vanalega. Svarthöfði var hálf- slappur í gær og hringdi í 1700 en var tilkynnt um hæl að hann væri ekki með COVID-19 en skyldi samt forðast heilsugæsluna eins og heitan eldinn þegar hann bað um að fá að koma í sýna- töku. Kannski væri bara best fyrir Svarthöfða að fara í sjálfskipaða sóttkví, heima fyrir veit hann að minnsta kosti hvernig hann á að bera sig að. Svo er RÚV líka að fara að senda út gömlu góðu eró- bik-tímana og hver vill eiginlega missa af því? Svarthöfði getur sýnt stillingu. En lífið er ekkert að ganga sinn vanagang. Það er allt öðruvísi. Það má varla slá inn PIN-númer korta í búðum og enginn er mað- ur með mönnum nema eiga að minnsta kosti átta sprittbrúsa. Svarthöfði heldur að það sem yfirvöld vilja ekki segja berum orðum sé að það sé í fínu lagi að vera hræddur og eðlilegt í ljósi aðstæðna. Hins vegar má ekki láta óttann lama sig heldur láta hann vera hvatningu til góðra verka þegar kemur að hreinlæti og hafa samfélagslega ábyrgð í fyrirrúmi. Hræðslan hefur svo margar leiðir til að brjótast út hjá fólki þegar upplýs- ingar eru misvísandi. Nágrannar eru farnir að horfa tortryggnisaug- um hver til annars og tilkynna fjölmiðlum og yfirvöldum um möguleg lögbrot því „Jón nágranni var á ferðalagi á Tene- rife um daginn og vappar nú um eins og hann sé ekki gang- andi veirusýk- ing“, „Binni nágranni á frænku sem á vinkonu sem er í ein- angrun en mætti samt í vinnuna – handtakið hann strax“. Leyfum okkur að vera hrædd, en leyfum hræðslunni samt ekki að ræna okkur rænu og viti. Það eina sem við höf- um einhverja stjórn á eru okkar eigin gerð- ir, svo þvoum okkur um hendurnar og vonum það fokkin besta. n Svarthöfði Svarthöfði er hræddur Það er staðreynd að… Meðalmanneskja eyðir um sex þúsund krónum á fyrsta stefnumótinu. Bandaríkjamenn borða yfir 10 milljarða kleinuhringja árlega. Aðeins 10–15% jarðarbúa eru örvhent. Heilbrigt hjarta dælir um 2.000 lítrum af blóði á dag. Meðaltími samfara er þrjár til sjö mínútur. Hver er hún n Hún er fædd í ágúst árið 1959. n Hún stundaði nám við Menntaskólann í Hamrahlíð og er með BA-próf í lögfræði. n Hún er fjögurra barna móðir frá Ólafsfirði. n Hún hefur verið lögblind frá bernsku. n Hún tók þátt í söngvakeppninni X Factor árið 2007 og slasaðist þegar upptökur stóðu yfir. SVAR: INGA SÆLAND „Það var komið fram við mig eins og glæpamann“ B andarískur blaðamaður segist hafa orðið fyrir alvarlegri kynþáttamismunun af hálfu starfsmanna á Keflavíkurflugvelli í október síðastliðnum. Maðurinn var leiðinni heim til New York eftir stutt frí á Íslandi. Fullyrðir hann að hann hafi þurft að sæta yfirheyrslu og niðurlægjandi rannsókn eingöngu vegna kynþáttar síns, en maðurinn er af rómönskum uppruna. Málið er til rannsóknar hjá Samgöngustofnun Bandaríkjanna. Í samtali við DV segist maðurinn ekki vilja láta nafns síns getið því mál hans sé enn til meðferðar hjá Samgöngustofnun Bandaríkjanna (DOT). „Ég hafði verið í fríi á Íslandi, ásamt föður mínum. Hann var að fljúga frá Suður-Ameríku til Spánar til að heimsækja ættingja og við ákváðum að hittast á miðri leið, á Íslandi, þar sem við höfðum ekki hist í tvö ár. Við hittumst á Keflavíkuflugvelli og áttum fjóra daga saman á Íslandi,“ segir maðurinn en hann kveðst hafa verið búsettur í New York síðan árið 2007. Hann hafi ferðast víða um heim allt frá því hann var barn og heimsótt allar heimsálfur. Óviðeigandi spurningar Maðurinn átti bókað flug frá Ís- landi til New York þann 4. október síðastliðinn. „Ég var að bíða eftir að inn- rita mig í flug hjá United Airlines á Keflavíkurflugvelli þegar karl- maður kom upp að mér, án þess að kynna sig nokkuð, en hann átti víst að vera starfsmaður á vegum United. Hann fór að spyrja mig alls kyns spurninga, þar á meðal „hvort ég væri ánægður í starfi.“ Algjörlega óviðeigandi, og þetta átti sér stað fyrir framan aldraðan föður minn, sem var á leið í flug með öðru flugfélagi. Eftir að hafa spurt mig fjölmargra spurninga, sem aðallega tengdust einkalífi mínu og starfi leyfði starfsmaðurinn mér loksins að tékka mig inn.“ Maðurinn segir að stuttu seinna, við brottfararhliðið, hafi síðan annar starfsmaður nálgast hann og byrjað að yfirheyra hann í návist annarra farþega. „Síðan tjáði kvenkyns starfsmaður mér að ég hefði verið valinn af handahófi í nánara eftirlit. Þetta var algjör lygi, þar sem ég hafði séð hana og hinn starfsmannninn benda í átt að mér og gefa hvort öðru merki á mjög augljósan hátt, beint fyrir framan mig.“ Maðurinn segist því næst hafa verið yfirheyrður í þriðja skiptið á innan við klukkutíma. „Ég var auk þess beðinn um að tæma vasana og þá voru skórnir mínir, sokkarnir, fartölvan mín, jakkinn, beltið og hendurnar á mér rannsakaðar, fyrir framan hina farþegana. Það var komið fram við mig eins og glæpamann, af engri ástæðu. Eftir þessa niðurlægingu fékk ég loksins að fara um borð í vélina og ég tók eftir því að sumir af farþegunum voru tortryggnir í minn garð,“ segir maðurinn og bætir við að flugferðin heim hafi verið „hræðileg.“ Buðu 750 dollara í sáttagreiðslu Maðurinn kveðst hafa sent kvörtunarbréf til United Airlines um leið og hann var kominn heim til New York. Þá tilkynnti hann málið einnig til Samgöngustofnunar Bandaríkjanna og bandarískra flugyfirvalda (TSA). Í svarbréfi United Airlines, sem DV hefur undir höndum, kemur fram að starfsmennirnir sem höfðu afskipti af manninum þennan dag hafi ekki verið á vegum flugfélagsins, heldur á vegum samstarfsaðila þess á Keflavíkurflugvelli. Maðurinn segist þá hafa sent tölvupóst á þjónustufulltrúa Isavia og í kjölfarið fengið þau svör að öryggiseftirlit við innritun sé krafa af hálfu TSA, fyrir allt flug til Bandaríkjanna. Í bréfinu kemur einnig fram að rætt hafi verið við stöðvarstjóra United Airlines á Keflavíkurflugvelli sem muni „ræða við starfsfólk sitt.“ Þá segir maðurinn að í janúar síðastliðnum hafi United Airlines boðist til að að greiða honum 750 dollara gegn því að loka málinu. Hann hafi hafnað því boði. Í tölvupósti United Airlines til mannsins, frá 13. febrúar síðastliðnum, kemur meðal annars fram: „… Við drögum það ekki í efa að þetta hafi verið ekki verið ánægjuleg reynsla og við biðjumst enn og aftur afsökunar …“ Þá kemur fram að rætt hafi verið við viðkomandi starfsmenn flugvallarins sem áttu samskipti við manninn þennan dag. Þá ritar fulltrúi flugfélagsins að kvartanir mannsins séu teknar til greina, en engu að síður sé ekki talið að hann hafi „sætt mismunun á grundvelli uppruna síns.“ Þá kemur fram í bréfinu að flugfélagið „geti ekki greitt bætur í samræmi við persónulega upplifun hvers og eins.“ Mál mannsins er enn til rann- sóknar hjá Samgöngu stofnun Bandaríkjanna. Maðurinn bendir á að hann hafi ferðast um allan heim fram til þessa og því ætti ekki að vera erfitt fyrir flugfé- lagið að nálgast upplýsingar um hann. „Það er ekkert sem afsak- ar þessa vanvirðingu í minn garð, sem er eingöngu sprottin af því að hvernig ég lít út, af rómönsk- um uppruna og dökkur á hörund. Ég vil deila minni sögu og ég vona að við getum opnað á umræðuna um kynþáttafordóma og mis- munun. Þetta fallega land á ekki að hafa þennan blett á sér.“ n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.