Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Qupperneq 16
16 FÓKUS 13. mars 2020
VELDU ÚR MEÐ SÁL
Karlpungar
með kippur af
Stellu í orlofi
Kátínuna vantar ekki í Síðustu veiðiferðina
E
f það er eitthvað sem ekki hefur vantað í flóru ís-
lenskra kvikmynda, eru það sögur úr sveit af mið-
aldra, hvítum karlpungum sem hella sig blindfulla í
miðjum kaflaskilum á æviskeiði þeirra. Útúrsnún-
ingur Síðustu veiðiferðarinnar er annars vegar sá að Ís-
lendingar fá sjaldnast að njóta slíkra sagna þar sem fram-
setningin einkennist af yfirgnæfandi hressleika og glensi,
ólíkt þeirri eymd sem er löngu orðin að móðurmáli okkar í
sambandi við listaverk. Að mati undirritaðs er miður hversu
lengi allsráðandi húmor hefur vantað í okkar bíómyndir og
liggur við að hverjum sem býður upp á slíkt megi líkja við
himnasendingu.
Í Síðustu veiðiferðinni er lauslega sóttur innblástur í
Stellu í orlofi með nokkrum skotum af bragðefnum frá The
Hangover (eða jafnvel Grown Ups, ef út í það er farið). Sex
einstaklingar leggja af stað í hina árlegu veiðiferð með það
að markmiði að sinni að eiga sér hófstillt glens. Eins og ger-
ist þó, þegar fáeinir vínkassar eru opnaðir og dólgurinn far-
inn að gefa frá sér gleðismit í pylsupartíinu, siglir allt í ansi
óútreiknanlega ferð framundan. Þó um aðeins eina helgi sé
að ræða verður fljótlega orðið ljóst að allir úr hópnum munu
skilja við ferðina gjörbreyttir menn, innan gefinna marka.
Lítið um kjöt eða rembing
Það ku vera alveg gildislaus staðreynd í augum neytand-
ans að kvikmyndin hafi verið gerð án opinberra styrkja, en
miðað við útkomuna, þekktu leikarana og slípuðu vinnu-
brögðin eru engin auðsjáanleg merki um neinn „indí“
keim. Leikstjórarnir, Örn Marinó Arnarson og Þorkell S.
Harðarson, eru reyndir í ýmsu (og gerðu meðal annars
hina frábæru heimildamynd um HAM; Lifandi dauðir) og
byggja efniviðinn á fjölda reynslusagna úr veiðiferðum.
Annars vegar virkar húmor myndarinnar á blaði eins og
ódýr tímaskekkja; allt frá kúk- og pissbröndurum til dýra-
níðs- og „gay-panic“-brandara. Einhvern veginn tekst þó,
með einhverjum töfrandi bræðingi, hjá leikstjórunum og
leikhópnum að selja farsann og gera hann trúverðugan,
sannfærandi og ofar öllu jarðbundinn.
Persónusköpun er ekki alveg í fyrirrúmi og hefði
myndin getað grætt óhemju mikið á aukinni mannúð,
frekar en að gera helstu persónur að gríntýpum sem ein-
kennast af hegðun þeirra og prófíl. Þá stendur eftir ein af
þeim myndum þar sem áhorfandi tengir hvern karakter
við annaðhvort nafn leikarans sem sér um túlkunina eða
yfirborð hvers og eins. Allir félagarnir sem hér veiða og
sumbla saman bera eflaust einhver skírnarnöfn en þykir
ekki ólíklegt að yfirlitið samanstandi af yfirstéttarsnobb-
inu (sem Þorsteinn Bachmann leikur), töffaranum góða
(Hilmir Snær Guðnason), fátæka kæruleysingjanum
(Þröstur Leó Gunnarsson), meðvirka pabbanum (Halldór
Gylfason), hinum peningalausa manni (Hjálmar Hjálm-
arsson) og óvænta gestinum með enn óvæntari fortíð (Jó-
hann Sigurðarson, sem stundar það grimmt út myndina
að hnupla hverri senu).
Auk lykilhópsins, sem slær á allar réttu nóturnar, er hér
að finna stórfínt hlaðborð af aukaleikurum, jafnvel þótt
myndin dragi aðeins kraftinn úr fjörugri lokasenu með
því að afhjúpa leynigest myndarinnar með nafni í upp-
hafstextanum.
Það leyndi sér þó alls ekki að bíósalurinn var í húrr-
andi hláturskasti á sýningunni sem undirritaður sótti. Síð-
asta veiðiferðin er gamanmynd sem leggur allt undir fyrir
ákveðna stemningu og skilar hún sér með prýði. Myndin
tikkar í þau box sem hún þarf og er það í raun aukaat-
riði hvort hún sé skondin annað slagið eða sprenghlægi-
leg. Brandararnir eru oftar en ekki í fyrirsjáanlegri kantin-
um, en lykilatriðið er að framsetningin heldur flottu flugi,
dýnamík leikaranna gefur frá sér gott stuð og rúllar fram-
vindan frá A til B án nokkurrar fitu, tilgerðar eða rembings.
Á meðan gamanið fær að halda sér í gamanmynd, sérstak-
lega þegar hún rétt slagar í 80 mínútur, telst mest allt ann-
að til of mikillar krufningar. Á óhressandi tímum má ým-
islegt verra gera en að hlæja að fáeinum rasshausum. n
Í stuttu máli: Brattur, hlægilegur og merkilega
jarðbundinn farsagangur. Myndin kemur hressandi
inn á óhressandi tímum.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Sjáðu þessa ef þú kannt að meta