Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Blaðsíða 19
Iðnaður um allt land 13. mars 2020 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is GARÐAÞJÓNUSTA ÍSLANDS: Rótgróið garðaþjónustu- fyrirtæki í Garðabænum Garðaþjónusta Íslands er rótgróið alhliða skrúðgarðyrkjufyrirtæki og hefur verið starfandi í ellefu ár. „Við sjáum um allt sem viðkemur garðyrkju, umhirðu og garðaþjónustu. Við erum mikið í almennum garðstörfum svo sem garðslætti, áburðardreifingu, trjáklippingum o.fl. Einnig erum við stórir í viðameiri garðlausnum svo sem hellulagningu, pallasmíði og skjólveggjum. Svo tökum við líka í gegn lóðir af öllum stærðum og gerðum frá grunni,“ segir Róbert Bjargarson, sem rekur fyrirtækið. „Ég er með fjölda starfsmanna sem eru hoknir af reynslu í ýmiss konar garðyrkjustörfum og búnir að starfa með fyrirtækinu til fjölda ára og sjálfur er ég garðyrkjumenntaður,“ segir Róbert. Komdu í áskrift í árstíðabundinni umhirðu Garðaþjónusta Íslands veitir alhliða þjónustu í garðaþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög. „Þá erum við með stóran hóp fastra viðskiptavina sem við sinnum árlegu viðhaldi fyrir. Margir hverjir hafa verið hjá okkur frá upphafi. Starfsmenn okkar mæta þá á staðinn og sinna öllum árstíðarbundnum garðverkum. Núna er til dæmis nauðsynlegt að huga að trjáklippingum, grisjun og formun. Í vor fara starfsmenn fyrirtækisins í áburðardreifingu og í lok vors og snemma í sumar fer garðslátturinn í gang. Við sinnum garðverkum allt árið og á veturna sjáum við t.d. um hálkueyðingu og snjómokstur.“ Tökum á móti tilboðum núna Það er alltaf mikið að gera í garðyrkjubransanum og mælir Róbert með að fólk hafi samband sem fyrst. „Það er æskilegt að panta skoðun hjá okkur sem allra fyrst sérstaklega þeir einstaklingar sem eru að huga að framkvæmdum, þ.e. minni eða stærri breytingum. Eftirspurnin er mikil eftir góðum garðyrkjumönnum og við tökum á móti tilboðum núna.“ Garðaþjónusta Íslands er staðsett að Norðurtún 7, 225 Garðabæ. Sími: 866-9767 Nánari upplýsingar má nálgast á gardathjonustaislands.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.