Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Page 31
FÓKUS 3113. mars 2020
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
10 leiðir til
að koma
auga á
lygar
1 Komdu á óvartManneskja sem reynir að blekkja þig hefur að líkind-
um reynt að undirbúa sig fyrir þær spurningar sem þú gætir
spurt. Jafnvel gæti lygarinn hafa gengið svo langt að undirbúa
svörin fyrirfram. Prófaðu að spyrja viðkomandi óvæntra spurn-
inga og sjáðu hvernig þeim tekst að svara þeim.
2 Endurteknar spurningarEf viðmælandi þinn endurtekur spurninguna sem þú beindir til
hans þá gæti það verið merki um að hann sé að vinna sér tíma á með-
an hann semur svarið.
3 Hlustaðu meira en þú talarÞeir sem segja ósátt eiga það til að tala af sér. Það er tilhneiging hjá
þeim til að tala meira en þeir sem segja satt í viðleitni til að selja lyg-
ina. Þeir gætu líka notað óþarflega nákvæmar atvikalýsingar eða flóknari
setningar. Hafðu huga að það hvernig fólk talar getur litast af andlegu
ástandi þess. Streita lætur fólk tala hraðar og hærra og með hærri
tíðni.
4 Ræskingar og hóstiEf viðmælandi þinn hóstar eftir að hann
svarar spurningu þá er ekkert grunsam-
legt við það. Hins vegar getur ræsking eða
hósti ÁÐUR en spurningu er svarað verið
merki um óþægindi, kvíða, og þar með
mögulega lygi.
5 Hvernig er nei-iðEin góð leið til að bera
kennsl á lygar er að veita því
athygli hvernig viðkomandi seg-
ir „nei“. Manneskja sem beitir blekk-
ingum gæti sagt nei og litið undan, sagt
nei en kinkað kolli, sagt mjög langt nei, hikað áður en
hún segir nei eða hálf sungið nei-ið.
6 Já eða nei spurningJá eða nei spurningar kalla á já eða nei svör. Þegar
fólk getur ekki eða vill ekki svara með já eða nei þá get-
ur það gripið til málalenginga. Eins ef viðkomandi hefur
svar við slíkri einfaldri spurningu með „sko“ þá getur það
verið merki um að verið sé að gefa svar sem spyrjandi var ekki
að búast við.
7 Af hverju ætti ég að trúa þér?Þegar fólk er að segja sannleikann þá á það í engum vandræðum
með að svara þessari spurningu með „Vegna þess að ég er að segja
satt“. Lygarar eiga aftur á móti erfiðara með slíkt svar og eru líklegri til
að svara með setningum á borð við „Því ég er heiðarleg manneskja“, „Þú
þarft ekki að trúa mér frekar en þú vilt“, „Ég græði ekkert á því að ljúga“ ,
„Til hvers ætti ég að ljúga?“.
8 Biddu um að fá söguna á afturábakÞeir sem segja satt eiga það til að bæta við smáatriðum og muna
fleiri staðreyndir þegar þeir endurtaka sögu sína. Lygarar hins vegar
hafa lagt tilbúna sögu á minnið og reyna að halda henni eins. Ef þig
grunar að einhver sé að ljúga, biddu þá viðkomandi að rekja at-
burðarásina í öfugri tímaröð.
9 AugnsambandiðÞað er útbreiddur misskiln-
ingur að lygarar eigi erfiðara
með að halda augnsambandi
en aðrir. Þvert á móti reyna
þeir sem eru að selja lygi oft
alveg sérstaklega að viðhalda
miklu augnsambandi til að
virka sannfærandi.
10 Varirnar og háls-inn
Þegar við þrýstum vörum okkar saman
þá er það oft merki um að eitthvað neikvætt sé
að eiga sér stað. Að snerta á sér hálsinn, sérstaklega
miðjuna á viðbeininu, er merki um stress, kvíða eða
hræðslu. Manneskjur eiga það til að fela þetta með
því að laga á sér bindið eða fikta í hálsmeni.
Er verið að
ljúga að þér?
M
arga lesendur hefur eflaust
dreymt um að geta lesið
hugsanir eða hafa innbyggð-
an lygamæli, þó svo sömu
lesendur vonist efalaust líka til þess að aðrir
búi ekki yfir þessum eiginleikum. Lygar eru
hluti af lífinu og hafa sumir gert sér starfsferil úr
því að reyna að bera kennsl á lygar eða blekkingar.
Þá einkum aðilar á sviði löggæslu. Nokkrir fyrrver-
andi starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar, CIA,
og alríkislögreglunnar, FBI, hafa tekið sig til og gefið út
bækur um hvernig bera megi kennsl á lygar, sennilega
vegna þess hversu marga dreymir um
að geta það. DV tók saman nokkur ráð
sem hafa birst í þeim ritum. Þó er vert að
hafa í huga að sérfræðingum ber saman um
að það sé engin 100% áreiðanleg leið til að bera
kennsl á lygara. Eftirfarandi upptalning er því að-
eins í dæmaskyni en ef viðmælandi þinn sýnir mörg
af þessum einkennum þá máttu líklega með réttu efast
um orð hans. Eins gætir þú, ef þú áformar að ljúga, nýtt
þér þennan lista til að vita hvað þú ættir ekki að gera, þó
svo við ráðum lesendum að sjálfsögðu frá því.