Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 6
17. APRÍL 2020 DV B andaríski Hollywood-leikarinn Ezra Miller hefur gert tilboð í sögu- frægt hús Hrafns Gunnlaugs- sonar leikstjóra á Laugar- nesinu. Heimili Hrafns vekur ávallt athygli enda engu líkt. Miller hefur mikið dálæti á Íslandi og hefur meðal annars mikið dálæti á Bíó Paradís og vill láta breyta bíóinu í einka- bíóklúbb. „Hann birtist bara allt í einu fyrir utan hjá mér, bankaði upp á og kynnti sig og var voða elskulegur. Hann færði mér alls konar gjafir, gaf mér til dæmis ríkulegt magn af þessum malaríutöflum frá Ameríku. Hann sagðist eiga sér þann draum að eignast þetta hús. Hann labbaði í marga hringi og skoðaði þetta. Hann bankaði sem sagt upp hjá mér fyrsta daginn og svo kom hann aftur daginn eftir og þar á eftir. Hann vildi líklega sannfæra mig um að honum væri fúlasta alvara. Hann sagðist vera búinn að horfa á margar af myndunum mínum og hann virtist vera mjög hrifinn af kvikmyndinni Hrafninn flýgur. Þetta kom mér allt svolítið spánskt fyrir sjónir, en ég hafði bara gaman af þessu,“ segir Hrafn sem lét Ezra að sjálfsögðu ekki fara tómhentan heim og gaf honum fjölmargar af myndunum sín- um á dvd. „Hann sagðist ætla að láta lögfræðinginn sinn útbúa skriflegt tilboð, ég ætla nú ekki að gefa svar fyrr en ég er búinn að sjá þetta á pappír. Hann sagðist ætla að koma hingað aftur þegar þessi far- aldur er búinn. Þetta er eins og sagt er „everything has a price ticket“. Hann sagðist vera tilbúinn að borga fyrir þetta tvær milljónir dollara. Mér finnst það alveg ásætt- anlegt verð. Mér skildist á honum að hann gæti nú bara borgað út í hönd,“ segir Hrafn síðan og hlær hátt en tvær milljónir dollara eru um 285 milljónir íslenskra króna. Björk bjó í húsinu Saga hússins nær aftur til loka seinni heimsstyrjaldarinnar: það var byggt á braggagrunni og að mestu leyti úr kassa- fjölum. „Upphaflega bjuggu hérna fjórar fjölskyldur, veit ég. Mér hefur verið sagt að Björk hafi orðið ófrísk að syni sínum í þessu húsi, hún bjó hérna um tíma með mömmu sinni. Þegar ég keypti húsið á sínum tíma þá stóð víst til að rífa það,“ segir Hrafn. Hann keypti húsið árið 1983. „Í fyrstu þá keypti ég það til að smíða þar leikmyndir, margar af þeim standa ennþá hérna við húsið. Svo fór ég smám saman að taka ástfóstri við staðinn.“ Við heimili Hrafns er hörg- urinn, hof sem er öllum opið. Hrafn segir Ezra hafa verið sérstaklega hrifinn af hörgn- um, sem er hlaðinn úr grjóti í fjörunni og var blessaður af Hilmari Erni Hilmarssyni allsherjargoða á sínum tíma. „Ég held sjálfur ofboðslega mikið upp á hörginn. Hörg- urinn er trúarhús ásatrúar- manna. Það mega allir koma og skoða þetta, ég lít á þetta sem fólkvang. Fólki er frjálst að litast um og kíkja inn í hellinn og tala við líkneskið af Frey. Það hafa mörg hjón komið hingað með Hilmari og gift sig. Minjavernd hefur lýst þetta hof helg vé.“ Húsið vekur ávallt mikla at- hygli þeirra sem eru á ferðinni um Sæbraut og Laugarnesið og nánast daglega bankar fólk upp á. „Það er oft alveg geysi- lega mikil umferð af fólki hérna. Stundum hafa verið að koma hingað heilu rúturnar af túristum. Ég er orðinn löngu vanur þessu og ég læt þetta ekkert fara í taugarnar á mér. Ég hef svo gaman af fólki og það er bara skemmtilegt að spjalla við hina og þessa.“ Tarantino og Cohen hrifnir Fjölmargir frægir einstakl- ingar hafa sótt Hrafn heim í gegnum árin. „Quentin Tar- antino, hann kom í heimsókn og var ofboðslega hrifinn af staðnum. Leonard Cohen, ég tók við hann sjónvarpsvið- tal á sínum tíma og hann var heillaður af húsinu. Þáverandi kínverski sendiherrann hélt líka mikið upp á þennan stað, hann fékk sér oft göngutúr frá sendiráðinu og heilsaði upp á mig og við vorum miklir vinir. Sænski sendiherrann hefur líka komið hingað með marga þekkta Svía. Svíarnir halda mikið upp á Hrafninn flýgur. Það eru margir listamenn, evrópskir og bandarískir, sem koma hérna og eru „inspí- reraðir“ af staðnum. Monthy Python-gengið kom einu sinni í heimsókn hingað, mér skilst að Erik the Viking myndin sé innblásin af verkunum mín- um.“ Árleg „fimmtudaginn fyrir verslunarmannahelgi“ partí Hrafns eru landsþekkt en þá fyllist húsið af tónlistarmönn- um, rithöfundum, myndlistar- mönnum og ýmsum þekktum einstaklingum. „Það er alltaf voða vel sótt, fólk sem hefur verið með mér í skóla eða leikið í myndunum mínum til dæmis. Litskrúðugur söfn- uður.“ Ezra Miller er heldur ekki sá fyrsti sem sýnt hefur áhuga á því að kaupa húsið. „Það hefur oft komið hingað fólk í þeim pælingum, sérstaklega Ameríkanar, en ég hef ekk- ert verið í þeim stellingum að vilja selja. Ég er orðinn samgróinn þessu umhverfi, þetta væri eins og að rífa sjálfan sig upp með rótum.“ Hrafn er orðinn 72 ára. Hann hefur sagt skilið við kvikmyndagerðina, allavega í bili, enda ferillinn orðinn langur og afkastamikill. En hvert myndi Hrafn flytja ef af kaupunum yrði? „Það veit ég ekki. Ég á nú reyndar tvær fjölskyldur á Kúbu. Ég tek þessu nú öllu með hægð- inni. Menn fá stundum hug- ljómanir, en hvort það verður að veruleika, það er annað mál. Það væri kannski best ef ég fengi að klára lífsbaráttuna hér, svo gætu kannski einhver góð samtök, tónlistarmenn eða tónlistarsamtök sest hér að og gert þetta að einhverju fyrir almenning.“ n HOLLYWOOD-STJARNA GERÐI HRAFNI 285 MILLJÓNA TILBOÐ Hollywood-stjarnan Ezra Miller hefur undanfarin ár farið með burðarhlutverk í stórmyndum á borð við Justice League, We Need To Talk About Kevin og Fantastic Beasts. Hann vill festa kaup á heimili Hrafns sem sést á innfelldu myndinni MYNDIR/AÐSENDAR Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Ezra Miller bankaði upp á hjá Hrafni Gunnlaugssyni, gaf honum malaríutöflur og bauð sér í heimsókn. 6 FRÉTTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.