Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 40
17. apríl 2020 | 15. tbl. | 111. árg
dv.is/frettaskot askrift@dv.is 550 7000
Boltaást
Sara Björk Gunnarsdóttir,
fyrirliði íslenska landsliðsins
í knattspyrnu, hefur fundið
ástina í örmum Árna Vil-
hjálmssonar, atvinnumanns
í knattspyrnu. Sara er búsett
í Þýskalandi og leikur með
Wolfsburg. Árni leikur í
Úkraínu en samband þeirra
er nýtilkomið. Sara verður
þrítug seinna á þessu ári en
Árni er fjórum árum yngri.
Bæði léku með Breiðabliki
áður en þau héldu í atvinnu-
mennsku í fótbolta. Sara var
áður í sambandi með sjúkra-
þjálfara Wolfsburg. Árni
var áður í sambandi með
Ástrós Traustadóttur, hún
gerði garðinn frægan í Allir
geta dansað. Samband þeirra
endaði undir lok síðasta árs
en Árni fann ástina aftur hjá
Söru. Sannkölluð boltaást.
Ekki hægt að gifta
sig með rafrænum
skilríkjum
Í dag eru rafrænar undir-
skriftir, umsóknir og skil-
ríki orðin algeng leið til að
afgreiða ýmis stór málefni
í lífi fólks. Þú getur sótt um
íbúðalán rafrænt, þú getur
framvísað rafrænum skil-
ríkjum til að fá afgreidd lyf
í apótekum, til að skrá þig í
sambúð og til að skipta um
nafn. Til að mega ganga í
hjónaband þarf aftur á móti
að fylla út eyðublað og skila
því inn. Hjónaband verður
að eiga sér stað í viðurvist
tveggja votta og vígslu-
manns. Í reynd innihalda
hjúskaparlög ekki eina ein-
ustu tilvísun til tölvu, tækni
eða rafræns fyrirkomulags
enda eru lögin að verða þrí-
tug og hafa ekki verið upp-
færð til samræmingar við
upplýsingaöldina.
SAND KORN
LOKI
Aldrei má
maður ekki
neitt…
Hefur þú verslað í vefverslun Epal?
Yfir 9 þúsund vörur; gjafavörur, húsgögn og ljós
eftir frægustu hönnuði heims.
Njóttu þess að versla heima í stofu. Frí heimsending.
www.epal.is
epal Harpa / Skeifan 6 / Kringlan / Laugavegur 70 / 5687733
Íslensk hönnun: Sigurður Már · Íslensk framleiðsla
Íslensk hönnun: Sigurður Már · Íslensk framleiðsla