Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 16
M aður tekur einn dag í einu. Maður vaknar bjartsýnn, en síðan
hrannast upp verkefnin og
sum eru erfiðari en önnur.
Það er erfiðast að tala við
fólk sem er uggandi um sinn
hag, bæði er varðar heilsu og
efnahag. Maður getur ekki
sagt með fullri vissu hvenær
þetta muni enda, aðeins að
þetta muni enda. Og þá segist
maður ætla að vera til staðar.
Því auðvitað skilur maður
þessar áhyggjur,“ segir Jón
Páll Hreinsson, bæjarstjóri
Bolungarvíkurkaupstaðar.
Veiran á versta stað
Í vikunni hóf Íslensk erfða-
greining að skima fyrir
veirunni í bænum og því mun
koma í ljós síðar í þessum
mánuði hvernig ástandið er
í raun og veru. Veiran barst
nánast strax inn á hjúkrunar-
heimilið Berg þar sem hún
gerði mikinn óskunda, bæði
hjá starfsfólki og íbúum:
„Við áttum ekki von á því að
hún skylli á af slíkum krafti
og bærist inn á allra við-
kvæmasta staðinn okkar. En
allar aðgerðir hafa gengið vel
hjá okkur, starfsfólk og íbúar
hafa brugðist vel við, og ég hef
ekki fengið eitt einasta kvört-
unarsímtal. Fólk hefur verið
mjög samstíga og passað upp
á hvert annað. Þessi styrk-
leiki lítilla samfélaga, sam-
heldnin, kemur berlega í ljós
í svona áföllum, við þekkjum
það allt of vel á Vestfjörðum.
Við stöndum í þessu saman og
við munum komast í gegnum
þetta saman,“ segir Jón Páll.
Verður að ræða hlutina
Hann segist ekki hafa komið
auga á einhver augljós mis-
tök í ferlinu öllu fyrir vestan.
Hann segir hins vegar mikil-
vægt að draga lærdóm af
slíku ástandi sem skapast
hefur: „Við vildum fara eftir
tilmælum yfirvalda eins vel
og við gætum, í stað þess að
efast og spá í hvað hefði getað
orðið ef aðrar leiðir hefðu ver-
ið farnar. Það þjónar engum
tilgangi. Þar með er ekki sagt
að það eigi ekki að gera upp
þetta tímabil,“ segir Jón Páll.
„Það er mikilvægt að við
lærum af áföllum sem þessum.
Nú er ég ekki að segja að eitt-
hvað sérstakt hefði betur mátt
fara, einungis að það verði að
þora að ræða þessa hluti og
gera þá upp. Við munum leggja
áherslu á það. Það verður að
tala um hlutina. Það eru marg-
ir sem eiga um sárt að binda
og það er mikilvægt að við
nálgumst alla í samfélaginu
með opinni umræðu. Það er
enginn 100 prósent undirbúinn
fyrir svona áfall og auðvitað
er eitthvað sem við þurfum að
læra af, þó það nú væri.“
Tekjustofnar munu skerðast
„Þetta mun hafa áhrif á okkur
eins og alla aðra. Það liggur
fyrir að framlög jöfnunar-
sjóðs til sveitarfélaga muni
skerðast, en þau eru um 20
prósent af tekjum okkar.
Kostnaður mun aukast og
tekjurnar minnka, sem er
áhyggjuefni. Við ætlum samt
ekki að skera niður, segja upp
fólki eða draga úr þjónustu,
því við lítum á þetta sem
tímabundið ástand. Við viljum
frekar bæta í framkvæmdir
og aðra þjónustu til að létta
undir með efnahagslífinu.“
Sameining ótímabær
Bolvíkingar hafa ekki viljað
sameinast Ísafjarðarkaup-
stað og hefur Jón Páll barist
gegn sameiningaráformum
samgönguráðherra, um að
skylda sveitarfélög með undir
1.000 íbúa til að sameinast
þeim stærri. Hann óttast
ekki að sameiningarsinnar
noti ástandið sem rök fyrir að
flýta sameiningu, að auðsýnt
sé að efnahagsleg áhrif veir-
unnar kalli á slíkar aðgerðir
og þannig yrðu sveitarfélögin
betur í stakk búin til að takast
á við vandann: „Þegar á heild-
ina er litið eru minni sveitar-
félög oftar en ekki betur stæð
en þau stærri, þannig að þau
rök gilda ekki í þá áttina.“
Framtíðin björt
„Líðandi stund er erfið. En
framtíðin er björt í Bolungar-
vík. Við erum með sterkan
sjávarútveg og það er að hefj-
ast fiskeldi í Ísafjarðardjúpi
og samhliða því er fólksfjölg-
un í kortunum. Það eru líka
spennandi og álitleg verkefni
í pípunum sem munu efla fjöl-
breytni atvinnuvega okkar,
eins og ferðaþjónustu. Þar má
nefna útsýnispallinn á Bola-
fjalli, sem er eitt mest spenn-
andi fjárfestingarverkefnið í
ferðaþjónustu hér á landi að
ég tel. Þá erum við ekki að
horfa til næsta sumars, heldur
tíu ár fram í tímann. Ferða-
mannastraumurinn verður
vonandi kominn á fullt skrið
innan fárra ára og vonandi
munum við áfram njóta góðs
af öllum þeim fjölda skemmti-
ferðaskipa sem komið hafa til
Ísafjarðar.
Vissulega er ástandið krefj-
andi núna, en framtíðin er
björt í Bolungarvík, það er
enginn vafi um það,“ segir Jón
Páll. n
17. APRÍL 2020 DV
ÁSTANDIÐ ER KREFJANDI
EN FRAMTÍÐIN BJÖRT Í BOLUNGARVÍK
Kórónuveirufaraldurinn hefur
reynst Bolvíkingum sérlega erf-
iður. Bærinn telur um 950 íbúa
en um 210 þeirra hafa verið í
sóttkví og hátt í 40 smitaðir þeg-
ar þetta er ritað. Einn er látinn.
Trausti Salvar Kristjánsson
traustisalvar@eyjan.is
Jón Páll er brattur og býst við bjartri framtíð þrátt fyrir áföllin að undanförnu. MYND/AÐSEND
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
16 EYJAN