Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 32
32 MATUR
Þ órdís Ólöf Sigurjóns-dóttir hefur verið grænkeri síðan 2016.
Hún heldur úti vinsæla
matarblogginu Grænkerar. is
og samnefndri Instagram-
síðu. Hún deilir með okkur
nokkrum uppskriftum sem er
tilvalið að útbúa fyrir kaffið
um helgina. Það er gott að æfa
sig í heimboðsbakstri þar sem
það styttist í að sam komu-
banni ljúki.
KARAMELLUOSTAKAKA
Þessi karamelluostakaka er
syndsamlega góð. Þetta er
svona kaka sem maður stelst
í um miðja nótt þegar enginn
sér til. En þrátt fyrir hvað
kakan er dásamlega bragðgóð
er hún líka svo holl! Kakan er
næringarrík og saðsöm en
helsta hráefnið eru hnetur.
Fyllingin er mild, létt og ör-
lítið loftkennd þannig að hún
bráðnar í munninum. Kremið
efst er aftur á móti bragð-
mikil karamella sem allir
ættu að falla fyrir. Auðvelt
er að breyta uppskriftinni í
glútenlausa paleo köku með
því að sleppa rjómaostinum
en kakan er líka mjög góð án
hans.
Í flestum sambærilegum
uppskriftum er talað um að
láta kasjúhnetur liggja í bleyti
í fleiri klukkustundir eða yfir
nótt. Ég hef persónulega aldr-
ei haft þolinmæði í það og
set þær því vanalega beint í
blenderinn. Það tekur örlítið
lengri tíma að ná silkimjúkri
áferð en annars finn ég engan
mun. Mér finnst mikilvægt
að nota bragð- og lyktarlausa
kókosolíu í uppskriftina, ann-
ars getur kókosolíubragðið
orðið mjög afgerandi.
Til að fyllingin stífni al-
Karamelluostakaka í
kaffiboðið sem klikkar ekki
Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir sýnir hvernig er hægt að gera ostaköku án ostsins. MYNDIR/ARON GAUTI SIGURÐARSON
Klikkuð karamelluostaterta
Botn
1 dl pekanhnetur
2 dl möndlur
6 ferskar döðlur, muna að taka
steinana úr
2 tsk. kókosolía, bragð- og lyktar-
laus
Salt
Setjið hneturnar í matvinnsluvél og
blandið þar til þær eru nokkuð fín-
malaðar. Bætið döðlum, kókosolíu
og salti út í og blandið þar til deigið
festist saman. Leggið smjörpappír
í botninn á hringlaga smelluformi.
Þrýstið deiginu vel niður í formið svo
það þeki allan botninn. Geymið botn-
inn í kæli meðan fyllingin er útbúin.
Fylling
3 dl kasjúhnetur
8 ferskar döðlur
½ dl hlynsíróp, minna ef vill
1 dl kókosolía
1 dl rjómaostur, t.d. Oatly-smur-
osturinn
2 dl kókosmjólk í dós, þykki hlutinn
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. sítrónusafi
Salt
3 dl vatn
1 tsk. agar-agar duft
Kælið kókosmjólkina en þá skilur
hún sig og þykki hlutinn situr efst en
þunnur vökvi neðst. Setjið vatn og
agar-agar duft í pott og hitið að suðu.
Setjið hin hráefnin í matvinnsluvél og
blandið þar til silkimjúkt. Þetta getur
tekið nokkrar mínútur. Hellið næst
agar-agar blöndunni út í og blandið
áfram í smástund. Hellið fyllingunni
yfir botninn og geymið í kæli meðan
karamellukremið er útbúið.
Karamellukrem
½ dl hlynsíróp
½ dl kókossykur eða hrásykur
½ kókosolía
1½ dl kókosmjólk í dós, þykki hlut-
inn
1 tsk. vanilludropar
Salt
Setjið öll hráefnin í pott og sjóðið í
um 10-15 mínútur þar til karamellan
hefur dökknað og þykknað. Gott er
að setja örlítið af karamellunni í glas
og inn í frysti til að athuga hversu
stíf hún er orðin. Smyrjið karamellu-
kreminu yfir fyllinguna og skreytið.
Ég notaði saxaðar pekanhnetur.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Þessi kaka er
tilvalin með
kaffinu eða
hvenær sem
er. Hún hentar
vel fyrir græn-
kera og sælkera
sem eru sólgnir
í eitthvað hollt
og gott.
mennilega (og fái dásamlega
áferð) nota ég töfraefnið agar-
agar. Ég uppgötvaði þetta frá-
bæra duft fyrir um ári og nota
það núna oft í viku.
Kakan er ótrúlega falleg
og sómir sér vel í veislum. Ef
afgangur verður af kökunni
mæli ég með að skera hana
í sneiðar og geyma í frysti.
Það er svo þægilegt að geta
gripið sneiðar úr frystinum
en þær þurfa nokkrar mín-
útur til að þiðna. Mér finnst
kakan langbest með þeyttum
vegan rjóma (t.d. frá Soyatoo)
og ferskum jarðarberjum og
skornum banönum. n
Þessi karamellu-
ostakaka er synd-
samlega góð.
17. APRÍL 2020 DV