Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 8
Á milli þess sem hún með-höndlar líffæri þeysist hún um á mótorhjóli og
stundar lyftingar af kappi.
Ragnheiður segist aldrei hafa
orðið vör við hindranir eða
fordóma vegna þess að hún
er kona en vill þó gjarnan
sjá fleiri konur velja þennan
starfsvettvang.
Ragnheiður er úr Grafar-
voginum, elst þriggja systra.
Hún var ekki há í loftinu þeg-
ar hún ákvað að verða læknir.
Það er þó lítið um lækna í fjöl-
skyldunni.
„Pabbi minn er tónlistar-
maður og var alla sína starfs-
ævi í sinfóníuhljómsveitinni
en hann langaði reyndar allt-
af að verða læknir. Mamma á
ferðaþjónustufyrirtæki. Við
systurnar höfum allar valið
ólíkar brautir í lífinu.“
Ragnheiður kveðst alltaf hafa
verið sterkur námsmaður og átt
auðvelt með raungreinar. „Fög
eins og efnafræði, lífræn efna-
fræði og líffræði hafa legið vel
fyrir mér, hafa alltaf „meikað
sens“ einhvern veginn. Það er
kannski aðeins öðruvísi með
stærðfræðina!“
Eftir útskrift úr MR hóf
Ragn heiður nám í lækna deild
HÍ. „Ég vissi alltaf að ég ætlaði
að verða skurðlæknir, ég vissi
bara ekki hvernig skurðlæknir.
Þegar ég var á öðru ári fór afi
minn í hjáveitu aðgerð og þá
kviknaði hjá mér þessi hug-
mynd, þó svo ég vissi ekki mik-
ið um þessa sérgrein. Þegar ég
var komin á fjórða ár fór ég í
verklegt nám á hjartaskurð-
deildinni og fékk meðal annars
að aðstoða í hjarta aðgerð. Þá
vissi ég hvað ég vildi gera, þá
small þetta einhvern veginn.“
Að loknu námi í HÍ árið 2015
hélt Ragnheiður út í sérnám
til Uppsala í Svíþjóð. Þaðan lá
leiðin til Umeå þar sem hún
fékk stöðu á hjarta- og lungna-
skurðdeildinni á Norrlands-há-
skólasjúkrahúsinu. Í seinasta
mánuði fékk hún síðan starfs-
réttindi. Hún segir margt
heillandi við skurðlækningar.
„Af því að þetta er verklegt
og meira „aktíft“. Þú færð að
vinna meira með höndunum,
þú ert ekki alltaf sitjandi fyrir
framan tölvu að skrifa nótur og
lyfseðla.“
„Við hvað vinn ég
eiginlega?“
Hjartaskurðlækningar eru
ennþá hálfpartinn karla-
stétt,“ segir Ragnheiður en
hún er þó ekki viss hvernig
á því standi. „Þetta er oft
kallað hetjulækningar og það
er kannski einhver ímynd
tengd þessu: Karlar með stórt
egó og góðir með sig af því
að þeir eru alltaf að bjarga
fólki,“ segir hún en bætir við
að blessunarlega séu konur í
dag orðnar mun ákveðnari og
fókuseraðri þegar kemur að
frama í læknastarfinu. „Það
er líka algengt hérna að hjón
eða pör séu bæði læknar, eða
þá annar hvor aðilinn læknir
og hinn hjúkrunarfræðingur.“
Hún segist aldrei hafa orð-
ið vör við fordóma eða tor-
tryggni í sinn garð vegna þess
að hún er kona. „Ég hef frekar
upplifað að það sé verið að ýta
mér áfram. Ég hef alltaf verið
svolítill gaur í mér, á fullu í
ræktinni og keyri mótorhjól.
Kannski hefur það haft ein-
hver áhrif.
Aðspurð um það eftirminni-
legasta frá náminu svarar
hún: „Þegar ég framkvæmdi
fyrstu hjartaaðgerðina, það
var mjög stórt skref. Þá fékk
ég loksins að framkvæma
heila aðgerð frá a til ö og allt
sem ég var búin að læra og
gera kom heim og saman. Að
gera heila aðgerð sjálf var of-
boðslega góð tilfinning.
Það skemmtilegasta við
starfið er að vera inni á skurð-
stofunni. Tíminn einhvern
veginn stöðvast. Ég gleymi
tímanum og spái ekkert í því
sem er að gerast fyrir utan.
Ég er „in the moment“ algjör-
lega. Það eru engir tveir eins
að innan, þó að við séum með
sömu grunn anatómíuna. Það
er alltaf eitthvað óvænt sem
getur komið upp á og þá þarf
maður að vera fljótur að hugsa
og taka ákvarðanir. Maður er
alltaf á tánum.“ Og hún veigr-
ar sér ekkert við að halda á
hjarta í höndunum.
„Þú ert auðvitað með líf
fólks í höndunum, bókstaf-
lega. Þegar við erum að sauma
æðar og hjarta þá þurfum við
að færa hjartað til að sauma á
æðar. Þetta hefur aldrei verið
óþægilegt fyrir mig. Þetta
er orðið hálf hversdagslegt.
Stundum ef ég er að koma úr
langri eða krefjandi aðgerð þá
stoppa ég og hugsa: Hvað var
ég eiginlega að gera? Við hvað
vinn ég eiginlega?“ segir hún
síðan og hlær.
Ástin kviknaði í ræktinni
Ragnheiður hefur verið í
sambandi með unnusta sínum
Benjamín Þór Þorgrímssyni
í rúm 13 ár. Hann flutti út til
hennar árið 2016, eftir eins
árs fjarbúð. Þau stefna á að
stækka fjölskylduna á næstu
árum, sem í dag telur þau tvö
og rottweilerhundinn Rambó.
„Við kynntumst 2008, í rækt-
inni. Benni er búinn að vera
í byggingarvinnu hérna úti
seinustu árin. Núna er hann að
reyna að koma sér aftur inn í
ræktina til að þjálfa, hann er
með 20 ára reynslu sem einka-
þjálfari og það væri frábært
ef hann gæti nýtt það hérna
úti. Einkaþjálfun og menning í
kringum það er samt öðruvísi
hér en á Íslandi, það eru færri
sem leyfa sér einkaþjálfara,
þjónustan er dýrari og meira
um að fólk æfi saman í hóp-
um.“ Benni hefur einnig verið
að prófa sig áfram í tónlist og
sækja þau Ragnheiður marga
tónleika saman.
Parið starfar á ólíkum vett-
vangi en Ragnheiður segir að
þau séu um margt mjög lík.
„Ég sagði við hann í fyrradag
að við værum ólík en samt
svo lík. Við erum með sömu
áhugamálin, erum aktíf og á
fullu í ræktinni og eigum bæði
mótorhjól. Við gerum eigin-
lega allt saman.“
Parið hefur byggt sér fal-
legt hús í útjaðri borgarinnar
en þangað fluttu þau fyrir
einu og hálfu ári. Þau eru á
meðal örfárra Íslendinga í
Umeå. „Við erum svolítið ein
á báti hérna. Við erum ekki
miklar bæjarrottur og okkur
finnst gott að vera í næði og
út af fyrir okkur. Við erum
líka með ræktaraðstöðu í bíl-
skúrnum og heitan pott sem er
algjör lúxus. Ég er ofboðslega
þakklát fyrir að vera komin
á svona góðan stað í lífinu.
Maður þarf stundum að klípa
sig í höndina til að átta sig.“
Ef hún væri ekki læknir
gæti hún vel hugsað sér að
vera atvinnukona í íþróttum.
Hún tók þátt í Sterkustu
konu Íslands 2009 og 2010 og
hafnaði í bæði skiptin í öðru
sæti, auk þess sem hún hefur
keppt á Hálandaleikunum.
„Ég hef líka prófað að keppa
á kraftlyftingamótum en það
var Benna að þakka að ég fór
út í þetta allt saman. Hann
kynnti þennan heim fyrir
mér.“
Parið hefur komið sér vel
fyrir í Svíþjóð og er ekki á
leið heim til Íslands. „Það er
margt gott við Svíþjóð. Hús-
næðislánin eru til dæmis
miklu hagstæðari og kaup-
mátturinn meiri, ég er til
dæmis með lægri laun hér
heldur en ég myndi hafa á Ís-
landi en samt get ég leyft mér
miklu meira.“ Ragnheiður
segir lífsgæðakapphlaupið
vera mun minna í Svíþjóð en
á Íslandi. Hún segir til dæmis
að læknarnir í kringum hana
aki um á eldgömlum bílum og
fólk bara fari heim eftir sína
átta tíma og að vinnuálagið sé
vel þolanlegt.
„Það getur allt breyst, að-
stæður hérna eða á Íslandi.
Við lifum bara í núinu, lokum
ekki á neitt og ákveðum ekk-
ert heldur.“ n
HJARTALÆKNIR OPNAR SIG
Auður Ösp
Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Ragnheiður og Benjamín hafa verið saman í yfir áratug og eru búin að koma sér vel fyrir í Svíþjóð.
MYNDIR/AÐSENDAR
Ragnheiður
Martha
Jóhannesdóttir
varð á dög-
unum fyrsta ís-
lenska konan til
að ljúka námi
í hjarta- og
lungnaskurð-
lækningum.
8 FRÉTTIR 17. APRÍL 2020 DV