Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 33
MATUR 33
É g vakna alla daga klukkan 06.30, langbest ef ég næ að fara fram
á undan fjölskyldumeðlimum
og drekka fyrsta kaffibollann
í rólegheitum. Svo er það bara
að koma stelpunum mínum á
fætur og í leikskóla, ég hef
mig til og fer til Reykjavíkur
í vinnu. Við búum á Akranesi,“
segir Eva Laufey.
Eva Laufey starfar hjá Stöð
2 við dagskrárgerð og í út-
varpi. Hún byrjar dagana á
því að útbúa lista fyrir daginn
og reynir eftir fremsta megni
að komast yfir og svara tölvu-
póstum.
„Ég er í almennri þáttagerð
og í Íslandi í dag þannig að ég
skipti því á milli daga. Ég und-
irbý tökur, leita að viðfangs-
efni, fer í upptökur, klippi efn-
ið og kem því frá mér. Ég er
með útvarpsþátt á Bylgjunni
á laugardögum með Svavari
Erni og alla vikuna erum við
að skoða skemmtilegt efni og
ég er því alltaf með augun
opin fyrir viðmælendum og
efni fyrir þáttinn okkar.“
Einhvern tíma yfir daginn
reynir Eva Laufey að koma
hreyfingu að.
„Það er nauðsynlegt fyrir
mig. Stundum í hádeginu ef
ég kemst frá eða á kvöldin
þegar stelpurnar sofna. Ég
sæki svo stelpurnar mínar,
og þá höfum við góðan tíma til
þess að leika og síðan förum
við að útbúa kvöldmatinn. Svo
sinni ég einnig verkefnum á
samfélagsmiðlunum mínum
og reyni daglega að koma
efni þangað inn. Svo er það
bara almennt sjónvarpsgláp
Þetta borðar Eva Laufey
á venjulegum degi
Eva Laufey
Kjaran Her-
mannsdóttir er
Íslendingum að
góðu kunn sem
fjölmiðlakona,
sjónvarpskokk-
ur og vinsæll
bloggari. En
hvað ætli Eva
Laufey borði á
bak við tjöldin?
Eva Laufey Kjaran borðar fjölbreytt og trúir að allt sé gott í hófi. MYND/ERNIR
Mexíkósk panna
Uppskriftin miðast við fjóra
600 g kjúklingabringur, skornar í
litla bita
1 msk. ólífuolía
3 msk. fajitas-krydd
Salt og pipar
½ laukur, skorinn í strimla
½ rauð paprika, skorin í strimla
½ græn paprika, skorin í strimla
5 sveppir, smátt skornir
2 hvítlauksrif, pressuð
3 dl tómata-passata
½ kjúklingateningur
5 msk. rjómaostur
1 dl maísbaunir
Tortillavefjur
Rifinn ostur, bæði pizzaostur og
cheddar
Lárperur
Sýrður rjómi
Kóríander
Forhitið ofninn í 180°C. Hitið olíu
á pönnu, helst pönnu sem þolir að
fara inn í ofn. Steikið kjúklinginn
upp úr olíu, kryddið til með fajitas-
kryddi, salti og pipar. Bætið græn-
metinu út á pönnuna og steikið
áfram þar til mjúkt í gegn. Hellið
tómata passasta saman við og
myljið kjúklingateninginn yfir.
Blandið öllu vel saman og bætið
rjómaostinum saman við í lokin.
Lækkið hitann og leyfið réttinum að
malla við vægan hita í 10 mínútur.
Hellið kjúklingablöndunni í skál,
raðið tortillavefjum í sömu pönnu
en ef þið eruð ekki með pönnu sem
þolir að fara í ofn þá notið þið eld-
fast mót. Fyllið pönnukökurnar með
kjúklingafyllingunni og sáldrið rifn-
um osti yfir og magnið af ostinum
fer eftir smekk. Inn í ofn við 180°C í
10-15 mínútur eða þar til osturinn er
gullinbrúnn.
Fylgstu með Evu Laufeyju Kjaran
á samfélagsmiðlum
Vefsíða: evalaufeykjaran.is
Instagram: @evalaufeykjaran
Facebook: @evalaufeykjaran
Matseðill
Evu Laufeyjar
Morgunmatur
Yfirleitt borða ég ekki fyrr en
um hádegisbil en stundum fæ
ég mér hafragraut með banana,
hörfræjum og smá möndlumjólk.
Millimál nr. 1
Ég elska að fá mér gott búst, og
það er tilvalið millimál og frekar
einfalt. Ef ég fæ mér hafragraut
snemma að morgni er ég yfirleitt
orðin svöng aftur um tíuleytið og
fæ mér þá góðan búst. Stundum
finnst mér líka æðislegt að fá
mér eitt crossaint og kaffi, það
er spari.
Hádegismatur
Gott salat er uppáhaldið mitt í
hádeginu eða góður fiskréttur
með miklu grænmeti, ég vil eitt-
hvað hollt, orkumikið og gott sem
gefur mér góða orku út í daginn.
Ég er ekki hrifin af mjög sveittum
mat í hádeginu því það er bara
ávísun á það að ég verði löt það
sem eftir lifir dagsins.
Millimál nr. 2
Hrökkbrauð með lárperu, tómöt-
um, eða bara osti og smá sultu.
Hummus og grænmeti er líka
frábær kostur og stundum bara
eitt gott egg. Svo stelst ég líka í
súkkulaðibita af og til með kaffi-
bollanum.
Kvöldmatur
Ég er sólgin í fisk og reyni að elda
hann 2-3 í viku, annars er mat-
seðillinn mjög fjölbreyttur. Kjúkl-
ingur, fajitas, góðir pastaréttir og
svo framvegis. Fjölbreytt og gott!
eða lestur og ég reyni að vera
komin upp í rúm fyrir klukkan
23.00.“
Borðar fjölbreytt
Fylgir þú einhverju sérstöku
mataræði?
„Ég fylgi engu sérstöku
mataræði, hef aldrei náð
tökum á því að fylgja ákveðnu
mataræði enda svosem aldrei
gefið því séns. Ég borða mjög
fjölbreytt, bæði hollt og óhollt
inni á milli. Ég trúi því að allt
sé gott í hófi og ég leyfi mér
að borða það sem mig langar
í hverju sinni,“ segir Eva
Laufey.
Ertu mikið í eldhúsinu
heima eða færðu nóg af því í
vinnunni?
„Ég fæ stundum nóg ef ég er
í upptökum í eldhúsinu heima
hjá mér, þá nenni ég yfirleitt
ekki að elda en alla jafna er
ég mikið í eldhúsinu og mér
finnst það geggjað, það er
mín hugleiðsla og mér líður
mjög vel þar. Það er sérstak-
lega skemmtilegt að vera með
stelpunum mínum í eldhúsinu,
þær eru mjög duglegar,“ segir
Eva Laufey.
Uppáhaldsmáltíð
„Það er erfitt að velja eina
uppáhaldsmáltíð – það fer
bara eftir stuðinu hverju
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
sinni. Í gær eldaði ég æðislega
gott humarfyllt ravíólí og ég
myndi segja að það væri ein
besta máltíð sem ég hef eldað,
namm.“
Þitt besta ráð tengt mat og
eldamennsku?
„Að vera óhrædd/ur við að
prófa nýjar uppskriftir og
þora að láta vaða og prófa sig
áfram. Ég trúi því að allir
geti eldað og það þarf bara að
prófa sig áfram.“ n
DV 17. APRÍL 2020