Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Side 33
MATUR 33 É g vakna alla daga klukkan 06.30, langbest ef ég næ að fara fram á undan fjölskyldumeðlimum og drekka fyrsta kaffibollann í rólegheitum. Svo er það bara að koma stelpunum mínum á fætur og í leikskóla, ég hef mig til og fer til Reykjavíkur í vinnu. Við búum á Akranesi,“ segir Eva Laufey. Eva Laufey starfar hjá Stöð 2 við dagskrárgerð og í út- varpi. Hún byrjar dagana á því að útbúa lista fyrir daginn og reynir eftir fremsta megni að komast yfir og svara tölvu- póstum. „Ég er í almennri þáttagerð og í Íslandi í dag þannig að ég skipti því á milli daga. Ég und- irbý tökur, leita að viðfangs- efni, fer í upptökur, klippi efn- ið og kem því frá mér. Ég er með útvarpsþátt á Bylgjunni á laugardögum með Svavari Erni og alla vikuna erum við að skoða skemmtilegt efni og ég er því alltaf með augun opin fyrir viðmælendum og efni fyrir þáttinn okkar.“ Einhvern tíma yfir daginn reynir Eva Laufey að koma hreyfingu að. „Það er nauðsynlegt fyrir mig. Stundum í hádeginu ef ég kemst frá eða á kvöldin þegar stelpurnar sofna. Ég sæki svo stelpurnar mínar, og þá höfum við góðan tíma til þess að leika og síðan förum við að útbúa kvöldmatinn. Svo sinni ég einnig verkefnum á samfélagsmiðlunum mínum og reyni daglega að koma efni þangað inn. Svo er það bara almennt sjónvarpsgláp Þetta borðar Eva Laufey á venjulegum degi Eva Laufey Kjaran Her- mannsdóttir er Íslendingum að góðu kunn sem fjölmiðlakona, sjónvarpskokk- ur og vinsæll bloggari. En hvað ætli Eva Laufey borði á bak við tjöldin? Eva Laufey Kjaran borðar fjölbreytt og trúir að allt sé gott í hófi. MYND/ERNIR Mexíkósk panna Uppskriftin miðast við fjóra 600 g kjúklingabringur, skornar í litla bita 1 msk. ólífuolía 3 msk. fajitas-krydd Salt og pipar ½ laukur, skorinn í strimla ½ rauð paprika, skorin í strimla ½ græn paprika, skorin í strimla 5 sveppir, smátt skornir 2 hvítlauksrif, pressuð 3 dl tómata-passata ½ kjúklingateningur 5 msk. rjómaostur 1 dl maísbaunir Tortillavefjur Rifinn ostur, bæði pizzaostur og cheddar Lárperur Sýrður rjómi Kóríander Forhitið ofninn í 180°C. Hitið olíu á pönnu, helst pönnu sem þolir að fara inn í ofn. Steikið kjúklinginn upp úr olíu, kryddið til með fajitas- kryddi, salti og pipar. Bætið græn- metinu út á pönnuna og steikið áfram þar til mjúkt í gegn. Hellið tómata passasta saman við og myljið kjúklingateninginn yfir. Blandið öllu vel saman og bætið rjómaostinum saman við í lokin. Lækkið hitann og leyfið réttinum að malla við vægan hita í 10 mínútur. Hellið kjúklingablöndunni í skál, raðið tortillavefjum í sömu pönnu en ef þið eruð ekki með pönnu sem þolir að fara í ofn þá notið þið eld- fast mót. Fyllið pönnukökurnar með kjúklingafyllingunni og sáldrið rifn- um osti yfir og magnið af ostinum fer eftir smekk. Inn í ofn við 180°C í 10-15 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn. Fylgstu með Evu Laufeyju Kjaran á samfélagsmiðlum Vefsíða: evalaufeykjaran.is Instagram: @evalaufeykjaran Facebook: @evalaufeykjaran Matseðill Evu Laufeyjar Morgunmatur Yfirleitt borða ég ekki fyrr en um hádegisbil en stundum fæ ég mér hafragraut með banana, hörfræjum og smá möndlumjólk. Millimál nr. 1 Ég elska að fá mér gott búst, og það er tilvalið millimál og frekar einfalt. Ef ég fæ mér hafragraut snemma að morgni er ég yfirleitt orðin svöng aftur um tíuleytið og fæ mér þá góðan búst. Stundum finnst mér líka æðislegt að fá mér eitt crossaint og kaffi, það er spari. Hádegismatur Gott salat er uppáhaldið mitt í hádeginu eða góður fiskréttur með miklu grænmeti, ég vil eitt- hvað hollt, orkumikið og gott sem gefur mér góða orku út í daginn. Ég er ekki hrifin af mjög sveittum mat í hádeginu því það er bara ávísun á það að ég verði löt það sem eftir lifir dagsins. Millimál nr. 2 Hrökkbrauð með lárperu, tómöt- um, eða bara osti og smá sultu. Hummus og grænmeti er líka frábær kostur og stundum bara eitt gott egg. Svo stelst ég líka í súkkulaðibita af og til með kaffi- bollanum. Kvöldmatur Ég er sólgin í fisk og reyni að elda hann 2-3 í viku, annars er mat- seðillinn mjög fjölbreyttur. Kjúkl- ingur, fajitas, góðir pastaréttir og svo framvegis. Fjölbreytt og gott! eða lestur og ég reyni að vera komin upp í rúm fyrir klukkan 23.00.“ Borðar fjölbreytt Fylgir þú einhverju sérstöku mataræði? „Ég fylgi engu sérstöku mataræði, hef aldrei náð tökum á því að fylgja ákveðnu mataræði enda svosem aldrei gefið því séns. Ég borða mjög fjölbreytt, bæði hollt og óhollt inni á milli. Ég trúi því að allt sé gott í hófi og ég leyfi mér að borða það sem mig langar í hverju sinni,“ segir Eva Laufey. Ertu mikið í eldhúsinu heima eða færðu nóg af því í vinnunni? „Ég fæ stundum nóg ef ég er í upptökum í eldhúsinu heima hjá mér, þá nenni ég yfirleitt ekki að elda en alla jafna er ég mikið í eldhúsinu og mér finnst það geggjað, það er mín hugleiðsla og mér líður mjög vel þar. Það er sérstak- lega skemmtilegt að vera með stelpunum mínum í eldhúsinu, þær eru mjög duglegar,“ segir Eva Laufey. Uppáhaldsmáltíð „Það er erfitt að velja eina uppáhaldsmáltíð – það fer bara eftir stuðinu hverju Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is sinni. Í gær eldaði ég æðislega gott humarfyllt ravíólí og ég myndi segja að það væri ein besta máltíð sem ég hef eldað, namm.“ Þitt besta ráð tengt mat og eldamennsku? „Að vera óhrædd/ur við að prófa nýjar uppskriftir og þora að láta vaða og prófa sig áfram. Ég trúi því að allir geti eldað og það þarf bara að prófa sig áfram.“ n DV 17. APRÍL 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.