Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Síða 8
8. MAÍ 2020 DV8 FRÉTTIR
ársbyrjun 2020. Fram kemur
í auglýsingunni að umsækj-
andi „þurfi að gera grein fyrir
reynslu sinni af ferðaþjónustu,
gera grein fyrir sýn sinni á
rekstur tjaldsvæðisins, hafa
reynslu af rekstri, vera reglu-
samur, vera í skilum með op-
inber gjöld og lífeyrisiðgjöld
starfsmanna“. Því skal haldið
til haga að Guðmundur hefur
hlotið dóm fyrir fjárdrátt,
skattalaga- og bókhaldsbrot.
Sjö árum síðar tók síðan
við rekstri í umboði sveitar-
félagsins en samkvæmt
fyrirspurnum blaðamanns
er Guðmundur verktaki hjá
sveitarfélaginu.
Ekki er skýrt hvort Guð-
mundur uppfyllir þær mennt-
unar- og hæfniskröfur sem
settar voru fram þegar
sveitarstjórn Gríms nes- og
Grafningshrepps auglýsti
eftir rekstraraðila. Aðspurður
um málið segir Guðmundur:
„Fyrst þegar ég sótti um
var ekki óskað eftir reynslu
í ferðamennsku en svo var í
ár og ég hef þá reynslu enda
búinn að reka tjaldsvæðið í
þrjú ár.“
Segir fólk þekkja sig
Í fyrra skiptið var Guðmundur
tekinn fram yfir einn um-
sækjanda og í seinna skiptið
var hann tekinn fram yfir tvo.
Þegar leitað var eftir svörum
hjá Ingibjörgu Harðardóttur
sveitarstjóra, sem samdi við
Guðmund í umboði sveitar-
stjórnar, um hvernig staðið
hefði verið að vali þess sem
fengi að leigja svæðið og
hvort til væru opinber gögn
um hverjir aðrir sóttust eftir
svæðinu svaraði hún: „Ekkert
eitthvað sérstaklega. Skiptir
það einhverju máli?“
Þegar Ingibjörg var spurð
hvort óskað hefði verið eftir
sakavottorði þeirra sem sótt-
ust eftir rekstrinum svaraði
hún: „Það voru sótt öll þau
gögn sem sóst var eftir og
þau stóðust þær kröfur sem
við gerðum. Bókunin stendur
bara eins og hún stendur.“
Aðspurð hvað Guðmundur
hefði haft umfram hina um-
sækjendurna svaraði hún:
„Það skiptir bara engu máli,
þetta var niðurstaða sveitar-
félagsins.“ Ingibjörg kvaðst
engar frekari upplýsingar
myndu veita um málið með
orðunum: „Þú getur gleymt
því að ég gefi upp nokkrar
upplýsingar um nokkuð til
DV.“ Hún sleit síðan símtalinu
fyrirvaralaust.
Guðmundur sjálfur segist
vera með hreint sakavottorð
en lögum samkvæmt hverfa
brot af sakaskrá eftir til-
tekinn tíma, eftir alvarleika
brots. Hins vegar fyrnist
sakaskrá ekki. Aðspurður
hvort hann hafi orðið fyrir
aðkasti sökum fortíðar sinn-
ar svarar Guðmundur: „Nei,
aldrei.“ Spurður hvort hann
telji að gestir svæðisins viti
hver hann sé og þekki hans
fortíð segir hann: „Það veit
nákvæmlega hver ég er.“
Athygli vakti að viðtal birt-
ist á vefsíðu Ríkisútvarpsins
síðastliðinn sunnudag þar sem
Guðmundur er spurður út í
tjaldsvæðið og áhrif kóróna-
veirunnar á starfsemina sök-
um fjöldatakmarkana.
„Hann hringdi hingað og
spurði mig hvort hann mætti
spyrja mig nokkurra spurn-
inga um tjaldsvæðið og ég var
svona óviss hvort ég ætti að
vera að svara því. Hvort það
færi þá ekki bara að koma
einhverju enn og aftur af stað.
Sem mér heyrist það vera að
gera.“
Engin mynd birtist með en
útlit Guðmundar hefur tölu-
vert breyst frá Byrgisárunum.
Guðmundur er nú með stutt
hár og ýmist kallaður Gummi
eða Mummi ef marka má um-
sagnir á Facebook-síðu tjald-
svæðisins.
Hann segist ekki halda að
bakgrunnur hans fæli fólk frá
svæðinu enda sé þetta aðal-
lega eldra fólk. „Yfirleitt er
þetta fólk sem hingað kemur
í eldri kantinum. Ekki ungar
stúlkur sem þyrftu að ótt-
ast það að ég myndi ráðast á
þær. Enda nauðgaði ég engum
konum,“ segir Guðmundur.
Oddviti sveitarstjórnar seg-
ist engar kvartanir hafa feng-
ið undan Guðmundi. DV hafði
ítrekað samband við oddvita
sveitarstjórnar og óskaði eftir
skýrari svörum og upplýsing-
um um aðra umsækjendur. Við
því var ekki orðið. n
Frá tjaldsvæðinu á Borg í Grímsnesi. MYND/GRÍMSNES- OG GRAFNINGSHREPPUR:GOGG.IS
Hann hringdi hingað og
spurði mig hvort hann mætti
spyrja mig nokkurra spurn-
inga um tjaldsvæðið og ég
var svona óviss hvort ég ætti
að vera að svara því.
Borg í Grímsnesi er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Þar er
tjaldsvæði, sundlaug, íþróttahús og verslun. MYND/PJETUR
Ég er með hreint
sakavottorð.