Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Blaðsíða 14
8. MAÍ 2020 DV
H eimilisofbeldi er of-beldi sem einstakl-ingur verður fyrir
af hálfu einhvers sem er
honum nákominn, skyldur
eða tengdur, eins og maki,
barn, foreldri, barnsfaðir,
systkini eða forráðamaður. Í
umfjöllun hér á síðunni sem
er byggð á efni frá Kvennaat-
hvarfinu er talað um „maka”
en það getur verið núverandi
eða fyrrverandi eiginmaður/
eiginkona, kærasti/kærasta
eða sambúðaraðili. Þolandi
og gerandi þurfa hvorki að
búa saman né vera gift til að
ofbeldið flokkist sem heimil-
isofbeldi. Heimilisofbeldi þarf
heldur ekki að vera bundið við
heimili geranda eða þolanda.
Sérstaða heimilisofbeldis
felst í því að gerandi og þol-
andi tengjast nánum böndum
sem gerir ofbeldið enn sárs-
aukafyllra en ella, auk þess að
gera þolanda erfiðara um vik
að slíta tengslum við ofbeldis-
manninn.
„Heimilisofbeldi getur
verið af margvíslegum toga
og í hverju tilfelli er oft er um
fleiri en eina tegund ofbeldis
að ræða. Ofbeldið getur verið
líkamlegt, andlegt, kynferðis-
legt, fjárhagslegt og stafrænt
auk ýmiss konar hegðunar
sem felur í sér ógn, hótun,
stjórnun og/eða þvinganir.
Formi og aðdraganda of-
beldisins má oft lýsa sem
ákveðnum ofbeldishring, þar
sem spennan í sambandinu
magnast upp, endar með ein-
hvers konar sprengingu, svo
fellur allt í dúnalogn og allt er
frábært. Síðan byrjar spennan
aftur að byggjast upp,” segir á
vef Kvennaathvarfsins. n
ERTU Í OFBELDISSAMBANDI?
NEYÐARTILFELLI
Í neyðartilfellum skal
alltaf hafa samband við
112
AÐSTOÐ FYRIR ÞOL-
ENDUR OG GERENDUR
HEIMILISOFBELDIS
Kvennaathvarfið
Athvarf fyrir konur og börn sem
geta ekki dvalið á eigin heimili
vegna ofbeldis.
Kvennaathvarf.is
Stígamót
Grasrótarsamtök sem veita að-
stoð fyrir fólk sem hefur verið
beitt kynferðisofbeldi.
Stigamot.is
Drekaslóð
Fræðslu- og þjónustumiðstöð
fyrir þolendur ofbeldis.
Drekaslod.is
Heimilisfriður
Meðferðar- og þekkingarmiðstöð
sem veitir gerendum sérhæfða
meðferð.
Heimilisfridur.is
Bjarmahlíð - Akureyri
Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.
Bjarmahlid.is
Bjarkarhlíð
Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.
Bjarkarhlid.is
Hjálparsími Rauða krossins
Sími 1717
Einnig boðið upp á
netspjall á 1717.is
LÍKAMLEGT OFBELDI
Dæmi um líkamlegt ofbeldi í nánu sambandi er ef maki þinn:
• Heldur þér í gíslingu.
• Kemur í veg fyrir að þú nærir þig.
• Kemur í veg fyrir að þú náir
almennilegum svefni.
• Skaðar þig með t.d. hnífi,
belti, byssu eða barefli.
• Sparkar/kýlir í hluti, hendir
og/eða skemmir hluti.
• Kemur í veg fyrir að þú getir
farið og/eða komið þegar þú
vilt.
• Slær, kýlir, lemur, klórar,
bítur, skallar, klípur, sparkar
í, rífur í hár, hrindir, brennir,
drekkir, kæfir, eða tekur þig
kverkataki.
ANDLEGT OFBELDI
Dæmi um andlegt ofbeldi í nánu sambandi er ef maki þinn:
• Öskrar á þig.
• Uppnefnir þig.
• Gerir lítið úr þér.
• Hótar og/eða ógnar þér.
• Segir þig ruglaða(n)/geðveika(n).
• Einangrar þig frá vinum og
fjölskyldu.
• Treystir þér ekki í kringum
aðila af hinu kyninu.
• Fylgist með ferðum þínum –
hefur eftirlit með þér.
• Gagnrýnir þig
og/eða gerir
l í t ið úr af-
rekum þínum
eða vinnu.
• Er móðgandi/
særandi þegar hann er
undir áhrifum áfengis/fíkniefna.
• Áreitir þig stanslaust t.d.
með skilaboðum, símhring-
ingum og/eða heimsóknum.
STAFRÆNT OFBELDI
Dæmi um stafrænt ofbeldi í nánu sambandi getur verið ef maki þinn:
• Skráir sig inn á samfélagsmiðla
á þínu nafni.
• Stýrir því hver má vera vinur
þinn t.d. á facebook og hver ekki.
• Er með upplýsingar um stað-
setningu þína, t.d. í gegnum
símann.
• Stýrir því hverja þú mátt tala við
gegnum samfélagsmiðla eða í
síma.
• Þrýstir á þig að senda sér nekt-
ar/kynlífsmyndir og/eða mynd-
bönd af þér.
• Skoðar símann þinn reglulega.
• Sendir þér nektar/kynlífsmyndir
og/eða myndbönd af sér, gegn
þínum vilja.
• Heimtar að fá lykilorð þín til að
geta skráð sig inn á samfélags-
miðla eða bankareikninga.
• Hótar að bir ta opinberlega
nektar/kynlífsmyndir og/eða
myndbönd af þér, eða senda til
ættingja, vina eða vinnufélaga.
KYNFERÐISLEGT OFBELDI
Ofbeldið getur birst sem:
• Kynferðisleg árás; eins og
að þvinga viðkomandi til að
stunda með sér einhvers
konar kynmök, hvort sem
um er að ræða varin eða
óvarin.
• Kynferðislegt áreiti; getur
verið bæði andlegt og lík-
amlegt áreiti af kynferðis-
legum toga.
Dæmi um kynferðislegt
ofbeldi í nánu sambandi
getur verið ef maki þinn:
• Gerir þig út í vændi.
• Krefst kynlífsathafna
sem þú kýst ekki.
• Lætur þig stunda kynlíf
með (mörgum) öðrum.
• Notar líkamlegt afl, vald,
samvisku eða neyð þína
til að eiga við þig kynmök.
FJÁRHAGSLEGT OFBELDI
Dæmi um fjárhagslegt ofbeldi í nánu sambandi getur verið ef maki þinn:
• Bannar þér að vinna.
• Tekur launin þín af þér.
• Skammtar þér peninga.
• Skráir skuldir á þig en
eignir á sig.
• Kemur í veg fyrir að þú
veljir þér starfsframa.
• Eyðileggur persónulega
muni þína viljandi.
• Heldur upp-
lýsingum um
stöðu fjármála
frá þér.
• Ráðstafar sam-
eiginlegum fjár-
munum í óþarfa eins og áfengi/
fíkniefni eða eigin áhugamál án
þess að ráðfæra sig við þig.
ÖRYGGISÁÆTLUN
Afleiðingar heimilisofbeldis geta verið mjög hættulegt og þá mikilvægt
að vera með öryggisáætlun.
• Hvert er öryggisnet mitt – stuðn-
ingur frá fjölskyldu eða vinum –
gæti ég forðað mér þangað?
• Ákveða „leyniorð“ sem börnin,
fjölskylda og vinir vita að þýðir
að hringt sé á lögreglu.
• Kenna börnunum hringja í 112.
• Segja börnunum frá áætluninni.
• Vera búin að hugsa flóttaleið –
hvernig kemst ég fljótt og örugg-
lega út – hvaða hurð/glugga/
stiga/lyftu er best að nota?
• Hafa skilríki og vegabréf á ör-
uggum stað
MYND/GETTY
Heimilisofbeldi getur verið af margvíslegum toga. Sérstaða þess felst í að gerandi og
þolandi tengjast nánum böndum sem gerir ofbeldið enn sársaukafyllra en ella.
Heimilisofbeldi
þarf heldur ekki
að vera bundið
við heimilið.
HEIMILD: KVENNAATHVARFID.IS
14 PRESSAN