Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Qupperneq 16
8. MAÍ 2020 DV16 EYJAN E yjan leitaði svara hjá fræðimönnum í mann-fræði, stjórnmálafræði og efnahagsmálum um hvað sé fram undan. Markar djúp spor í sögunni Ólafur Þ. Harðarson er pró- fessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hann segir að áhrif faraldursins verði mikil í pólitíkinni: „Líklegt er að þessi plága muni marka djúp spor í stjórn- mál, menningu og félagsgerð í veröldinni allri. Sennilega verða áhrifin hér svipuð og í nágrannalöndunum, frekar en sér-íslensk. Víða birtist aukin áhersla almennings á samkennd og samvinnu – á kostnað einstaklingshyggju og þröngra eiginhagsmuna. Hug- myndin um mikilvægi sam- félagsins hefur eflst. Þessar áherslubreytingar gætu reynst varanlegar, a.m.k. í nokkra áratugi. Kreppan mikla mótaði heila kynslóð, sem reyndi hana á eigin skinni. Svipað gæti gerst núna. Ef sú verður raunin mun þetta væntanlega hafa áhrif á flesta stjórnmálaflokka, líka á Íslandi. Vinsældir gætu dalað Fleiri en áður segjast stuðn- ingsmenn ríkisstjórnarinnar. Líklegast er að þessar auknu vinsældir ríkisstjórnarinnar verði skammvinnar. Vel heppnuð viðbrögð tryggja ekki endilega góðan árangur í kosningum. Að mati erlendra hagfræð- inga náði ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur glæsilegum árangri við endurreisn efna- hagskerfisins eftir Hrun. Samt voru stjórnarflokk- arnir rassskelltir í kosning- unum 2013. Næstu kosningar verða væntanlega vorið eða haustið 2021. Þá verður efna- hagsáfallið vegna plágunnar í algleymingi. Kannski telur stjórnin að haustkosningar yrðu sér hagstæðari. Það er þó alls ekki ljóst. Gæti breytt utanríkisstefnu Íslands Í plágunni hefur hver þjóð fyrir sig farið eigin leið í við- brögðum. Samt hefur alþjóða- samvinna líka leikið stórt hlut- verk – og mun skipta meira máli við afnám lokana og endurreisn efnahagskerfa. Plágan gæti eflt þjóðernis- BREYTT HEIMSMYND FRAM UNDAN Kórónaveirufaraldurinn er sagður fordæmalaus og áhrif hans talin mikil á umheiminn. Trausti Salvar Kristjánsson traustisalvar@eyjan.is Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði Ólafur Þ. Harðarson reiknar með áhrifum á stjórnmál, meningu og félagsgerð um allan heim. MYND/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.