Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Side 18
8. MAÍ 2020 DV18 EYJAN Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason Orður og titlar, úrelt þing, - eins og dæmin sanna, - notast oft sem uppfylling í eyður verðleikanna. Þannig orti þjóðskáldið Steingrímur Thorsteins­son en sjálfur tók hann þó síðar við riddarakrossi Dannebrogsorðunnar. Ís­ lendingar eignuðust sitt eigið heiðursmerki með stofnun konungsríkis og Kristján konungur veitti fálkaorðuna fyrst í heimsókn sinni hingað til lands 1921. Orðan hefur verið deiluefni alla tíð síðan, en þess eru þó dæmi að þeir sem finni orð­ unni flest til foráttu á yngri árum hafi glaðir þegið hana síðar. Orðuveiting hefur líka orðið mönnum til ama. Mon­ ika Helgadóttir, húsfreyja á Merkigili, hlaut riddarakross 1953 en sagðist í blaðaviðtali hafa verið „öfunduð svo af þessu að þú getur ekki trúað því. Ég hafði lítið annað upp úr þessu, sem átti þó að vera sæmdarvottur, en ama og ill­ mælgi.“ Hégómaskapur? Reglulega hafa komið fram tillögur um afnám orðunnar. Skúli Guðmundsson, þingmað­ ur Framsóknarflokks, flutti tillögu þess efnis á Alþingi 1966, en greinargerðin var í bundnu máli og endaði svo: Þó að sumir þrái krossa, þá munu fleiri mæla, að enginn Íslendingur ætti að dýrka þannig glingur. Bjarni Guðnason, þingmaður Samtaka frjálslyndra­ og vinstrimanna, lagði sömuleið­ is fram þingsályktunar tillögu um afnám orðunnar 1971. Þar sagði að hvergi „birtist hé­ gómaskapurinn jafnberlega með Íslendingum“ en þegar kæmi að orðuveitingum. Stórkross forsætisráðherrans Stig fálkaorðunnar eru fimm talsins. Fyrst kemur ridd­ arakoss, næst stórriddara­ kross, síðan stórriddakross með stjörnu og þá stórkross. Aðeins þjóðhöfðingi getur borið æðsta stig orðunnar en það er keðja með stórkross­ stjörnu. Forseti Íslands ber þessa keðju en hann er það sem kallað er stórmeistari fálkaorðunnar. Kristján konungur sótti um flest fyrirmyndir til Danne­ brogsorðunnar en í Dan­ mörku er gamall siður að forsætisráðherra sé veittur stórkross. Sú venja var sömu­ leiðis tekin upp hér á landi. Nokkrir þeirra hafa þó ekki veitt orðunni viðtöku. Þeirra á meðal Ásgeir Ásgeirsson, for­ sætisráðhera 1932–1934, sem þáði engar orður fyrr en hann varð sjálfkrafa stórmeistari orðunnar er hann var kjör­ inn forseti 1952. Ásgeir hafði raunar flutt tillögu á Alþingi 1924 þess efnis að aðeins er­ lendum mönnum yrði veitt orðan. Verðlaun fyrir að „vinna vinnuna sína“ Hermann Jónasson forsætis­ ráðherra tók ekki við stór­ krossinum og heldur ekki sonur hans Steingrímur, sem leit svo á að hann væri bara að „vinna vinnuna sína“ og engin ástæða til að verðlauna það sérstaklega. Hermann faðir hans mun hafa haft uppi svipuð sjónarmið. Hermann þáði þó orðu frá Frökkum eftir lok stríðsins fyrir að hafa staðið á móti óskum Þjóðverja um flugbækistöð hér á landi. Hann leit þá orðuveitingu öðr­ um augum þar sem verið væri að sýna honum virðingarvott fyrir tiltekið framlag. Frá því að Steingrímur lét af embætti 1991 hafa þessir forsætisráðherrar hlotið stór­ krossinn: Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson, Geir H. Haarde, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Sigurður Ingi Jóhannsson. Aftur á móti hefur Jóhönnu Sigurðar­ dóttur, Bjarna Benediktsson og Katrínu Jakobsdóttur ekki verið veitt orðan, en Katrín Jakobsdóttir hafnaði að taka við stórkrossinum að sögn aðstoðarmanns hennar en að öðru leyti kýs Katrín að tjá sig ekki um málið. Aðstoðarmenn Bjarna Benediktssonar höfðu ekki svarað fyrirspurnum um þetta efni þegar blaðið fór í prentun. Jafnaðarmenn fúlsuðu við orðum Jóhönnu var boðin fálkaorða að minnsta kosti í þrígang en hafnaði henni, á þeim for­ sendum að um væri að ræða tildur sem hún kærði sig ekki um. Ólafur Ragnar Grímsson forseti mun hafa sótt fast að henni að þiggja orðuna eftir að hún lét af embætti, en hún gaf sig ekki. Jafnaðarmenn um víða ver­ öld höfðu áður fyrr þá venju að þiggja hvorki nafnbætur né orður og skáru sig því úr í opinberum samkvæmum. Svo er að sjá sem ýmsir aðrir for­ ingjar jafnaðarmanna hér hafi fylgt þessu fordæmi, þeirra á meðal Gylfi Þ. Gíslason, Bene­ dikt Gröndal, Hannibal Valdi­ marsson og sonur hans Jón Baldvin. Fyrsti íslenski jafn­ aðarmaðurinn á stóli forsætis­ ráðherra, Stefán Jóhann Stef­ ánsson, þáði þó stórkrossinn og sömuleiðis Emil Jónsson, þó svo að hann sæti aðeins í embætti forsætisráðherra í fáeina mánuði. Margir hafa hafnað orðunni Orðunefnd berst fjöldi til­ nefninga á hverju ári ásamt greinargerðum (oft löngum) um verðleika þeirra sem til­ nefndir eru. Gjarnan hafa þá ýmsir málsmetandi menn ver­ ið fengnir til að rita undir til­ nefninguna. Orðunefnd kannar sannindi þess sem fram kemur í greinargerðum þessum og gengur úr skugga um að verð­ andi orðuþegi sé vammlaus og ráðvandur. Á endanum er það þó forseti Íslands, stórmeist­ ari fálkaorðunnar, sem tekur ákvörðunina og þess eru ýmis dæmi að orður séu veittar að frumkvæði forseta eins. Þá er til langur, óbirtur listi fólks sem hefur afþakkað orðuna. Enginn algildur mælikvarði er til um þann skerf sem borg­ ararnir leggja til samfélags­ ins og orðuveiting hlýtur því alltaf að byggjast á huglægu mati. Fróðlegt verður að sjá hverja forseti kýs að krossa 17. júní næstkomandi. Ekki kæmi á óvart að hann hefði í huga einhverja sem staðið hafa í ströngu „í vinnunni“ undanfarið í farsóttinni. Um leið getur orðið skemmtilegur samkvæmisleikur að velta því fyrir sér hverjir hafi á sama tíma mögulega hafnað orð­ unni. n KATRÍN HAFNAÐI STÓRKROSSINUM Steingrímur Hermannsson og Jóhanna Sigurðardóttir neituðu líka að taka við stór- krossinum. Katrín Jakobsdóttir vill ekki tjá sig um ástæðuna fyrir ákvörðun sinni. Stórkross veittur forsætisráðherrum síðustu 50 árin Jóhann Hafstein 1970-1971 Stórkross 1971 Ólafur Jóhannesson 1971-1974, 1978-1979 Stórkross 1972 Geir Hallgrímsson 1974-1978 Stórkross 1975 Benedikt Gröndal 1979-1980 Ekki stórkross Gunnar Thoroddsen 1980-1983 Stórkross 1980 Steingrímur Hermannsson 1983-1987, 1988-1991 Ekki stórkross Þorsteinn Pálsson 1987-1988 Stórkross 1987 Davíð Oddsson 1991-2004 Stórkross 1991 Halldór Ásgrímsson 2004-2006 Stórkross 2005 Geir H. Haarde 2006-2009 Stórkross 2006 Jóhanna Sigurðardóttir 2009-2013 Ekki stórkross Sigm. Davíð Gunnlaugsson 2013-2016 Stórkross 2014 Sigurður Ingi Jóhannsson 2016-2017 Stórkross 2016 Bjarni Benediktsson 2017 Ekki stórkross Katrín Jakobsdóttir 2017 Ekki stórkross HEIMILD: ORÐUHAFASKRÁ FORSETAEMBÆTTISINS. Talsverða athygli vakti þegar Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni var veittur stórkross 13. desember 2014, en forsetaembættið tilkynnti ekki sérstaklega um veitinguna og það var ekki fyrr en hálfum mánuði síðar að fjölmiðlar komust á snoðir um málið. MYND/EYÞÓR Orðan hefur verið deiluefni allt frá því að hún var stofnuð 1921, en þess eru þó mörg dæmi að þeir sem amast hafa við orðunni hafi glaðir þegið hana síðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.