Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Page 18
8. MAÍ 2020 DV18 EYJAN
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
Orður og titlar, úrelt þing, -
eins og dæmin sanna, -
notast oft sem uppfylling
í eyður verðleikanna.
Þannig orti þjóðskáldið Steingrímur Thorsteinsson en sjálfur tók hann
þó síðar við riddarakrossi
Dannebrogsorðunnar. Ís
lendingar eignuðust sitt eigið
heiðursmerki með stofnun
konungsríkis og Kristján
konungur veitti fálkaorðuna
fyrst í heimsókn sinni hingað
til lands 1921.
Orðan hefur verið deiluefni
alla tíð síðan, en þess eru þó
dæmi að þeir sem finni orð
unni flest til foráttu á yngri
árum hafi glaðir þegið hana
síðar. Orðuveiting hefur líka
orðið mönnum til ama. Mon
ika Helgadóttir, húsfreyja á
Merkigili, hlaut riddarakross
1953 en sagðist í blaðaviðtali
hafa verið „öfunduð svo af
þessu að þú getur ekki trúað
því. Ég hafði lítið annað upp
úr þessu, sem átti þó að vera
sæmdarvottur, en ama og ill
mælgi.“
Hégómaskapur?
Reglulega hafa komið fram
tillögur um afnám orðunnar.
Skúli Guðmundsson, þingmað
ur Framsóknarflokks, flutti
tillögu þess efnis á Alþingi
1966, en greinargerðin var í
bundnu máli og endaði svo:
Þó að sumir þrái krossa,
þá munu fleiri mæla,
að enginn Íslendingur
ætti að dýrka þannig glingur.
Bjarni Guðnason, þingmaður
Samtaka frjálslyndra og
vinstrimanna, lagði sömuleið
is fram þingsályktunar tillögu
um afnám orðunnar 1971. Þar
sagði að hvergi „birtist hé
gómaskapurinn jafnberlega
með Íslendingum“ en þegar
kæmi að orðuveitingum.
Stórkross
forsætisráðherrans
Stig fálkaorðunnar eru fimm
talsins. Fyrst kemur ridd
arakoss, næst stórriddara
kross, síðan stórriddakross
með stjörnu og þá stórkross.
Aðeins þjóðhöfðingi getur
borið æðsta stig orðunnar en
það er keðja með stórkross
stjörnu. Forseti Íslands ber
þessa keðju en hann er það
sem kallað er stórmeistari
fálkaorðunnar.
Kristján konungur sótti um
flest fyrirmyndir til Danne
brogsorðunnar en í Dan
mörku er gamall siður að
forsætisráðherra sé veittur
stórkross. Sú venja var sömu
leiðis tekin upp hér á landi.
Nokkrir þeirra hafa þó ekki
veitt orðunni viðtöku. Þeirra á
meðal Ásgeir Ásgeirsson, for
sætisráðhera 1932–1934, sem
þáði engar orður fyrr en hann
varð sjálfkrafa stórmeistari
orðunnar er hann var kjör
inn forseti 1952. Ásgeir hafði
raunar flutt tillögu á Alþingi
1924 þess efnis að aðeins er
lendum mönnum yrði veitt
orðan.
Verðlaun fyrir að „vinna
vinnuna sína“
Hermann Jónasson forsætis
ráðherra tók ekki við stór
krossinum og heldur ekki
sonur hans Steingrímur, sem
leit svo á að hann væri bara
að „vinna vinnuna sína“ og
engin ástæða til að verðlauna
það sérstaklega. Hermann
faðir hans mun hafa haft uppi
svipuð sjónarmið. Hermann
þáði þó orðu frá Frökkum
eftir lok stríðsins fyrir að hafa
staðið á móti óskum Þjóðverja
um flugbækistöð hér á landi.
Hann leit þá orðuveitingu öðr
um augum þar sem verið væri
að sýna honum virðingarvott
fyrir tiltekið framlag.
Frá því að Steingrímur lét
af embætti 1991 hafa þessir
forsætisráðherrar hlotið stór
krossinn: Davíð Oddsson,
Halldór Ásgrímsson, Geir H.
Haarde, Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson og Sigurður
Ingi Jóhannsson. Aftur á
móti hefur Jóhönnu Sigurðar
dóttur, Bjarna Benediktsson
og Katrínu Jakobsdóttur ekki
verið veitt orðan, en Katrín
Jakobsdóttir hafnaði að taka
við stórkrossinum að sögn
aðstoðarmanns hennar en að
öðru leyti kýs Katrín að tjá sig
ekki um málið. Aðstoðarmenn
Bjarna Benediktssonar höfðu
ekki svarað fyrirspurnum um
þetta efni þegar blaðið fór í
prentun.
Jafnaðarmenn fúlsuðu við
orðum
Jóhönnu var boðin fálkaorða
að minnsta kosti í þrígang
en hafnaði henni, á þeim for
sendum að um væri að ræða
tildur sem hún kærði sig ekki
um. Ólafur Ragnar Grímsson
forseti mun hafa sótt fast að
henni að þiggja orðuna eftir að
hún lét af embætti, en hún gaf
sig ekki.
Jafnaðarmenn um víða ver
öld höfðu áður fyrr þá venju
að þiggja hvorki nafnbætur
né orður og skáru sig því úr í
opinberum samkvæmum. Svo
er að sjá sem ýmsir aðrir for
ingjar jafnaðarmanna hér hafi
fylgt þessu fordæmi, þeirra á
meðal Gylfi Þ. Gíslason, Bene
dikt Gröndal, Hannibal Valdi
marsson og sonur hans Jón
Baldvin. Fyrsti íslenski jafn
aðarmaðurinn á stóli forsætis
ráðherra, Stefán Jóhann Stef
ánsson, þáði þó stórkrossinn
og sömuleiðis Emil Jónsson,
þó svo að hann sæti aðeins í
embætti forsætisráðherra í
fáeina mánuði.
Margir hafa hafnað orðunni
Orðunefnd berst fjöldi til
nefninga á hverju ári ásamt
greinargerðum (oft löngum)
um verðleika þeirra sem til
nefndir eru. Gjarnan hafa þá
ýmsir málsmetandi menn ver
ið fengnir til að rita undir til
nefninguna. Orðunefnd kannar
sannindi þess sem fram kemur
í greinargerðum þessum og
gengur úr skugga um að verð
andi orðuþegi sé vammlaus og
ráðvandur. Á endanum er það
þó forseti Íslands, stórmeist
ari fálkaorðunnar, sem tekur
ákvörðunina og þess eru ýmis
dæmi að orður séu veittar að
frumkvæði forseta eins. Þá er
til langur, óbirtur listi fólks
sem hefur afþakkað orðuna.
Enginn algildur mælikvarði
er til um þann skerf sem borg
ararnir leggja til samfélags
ins og orðuveiting hlýtur því
alltaf að byggjast á huglægu
mati. Fróðlegt verður að sjá
hverja forseti kýs að krossa
17. júní næstkomandi. Ekki
kæmi á óvart að hann hefði
í huga einhverja sem staðið
hafa í ströngu „í vinnunni“
undanfarið í farsóttinni. Um
leið getur orðið skemmtilegur
samkvæmisleikur að velta því
fyrir sér hverjir hafi á sama
tíma mögulega hafnað orð
unni. n
KATRÍN HAFNAÐI STÓRKROSSINUM
Steingrímur Hermannsson og Jóhanna Sigurðardóttir neituðu líka að taka við stór-
krossinum. Katrín Jakobsdóttir vill ekki tjá sig um ástæðuna fyrir ákvörðun sinni.
Stórkross veittur forsætisráðherrum síðustu 50 árin
Jóhann Hafstein 1970-1971 Stórkross 1971
Ólafur Jóhannesson 1971-1974, 1978-1979 Stórkross 1972
Geir Hallgrímsson 1974-1978 Stórkross 1975
Benedikt Gröndal 1979-1980 Ekki stórkross
Gunnar Thoroddsen 1980-1983 Stórkross 1980
Steingrímur Hermannsson 1983-1987, 1988-1991 Ekki stórkross
Þorsteinn Pálsson 1987-1988 Stórkross 1987
Davíð Oddsson 1991-2004 Stórkross 1991
Halldór Ásgrímsson 2004-2006 Stórkross 2005
Geir H. Haarde 2006-2009 Stórkross 2006
Jóhanna Sigurðardóttir 2009-2013 Ekki stórkross
Sigm. Davíð Gunnlaugsson 2013-2016 Stórkross 2014
Sigurður Ingi Jóhannsson 2016-2017 Stórkross 2016
Bjarni Benediktsson 2017 Ekki stórkross
Katrín Jakobsdóttir 2017 Ekki stórkross
HEIMILD: ORÐUHAFASKRÁ FORSETAEMBÆTTISINS.
Talsverða athygli vakti þegar Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni var veittur stórkross 13. desember 2014, en forsetaembættið tilkynnti ekki
sérstaklega um veitinguna og það var ekki fyrr en hálfum mánuði síðar að fjölmiðlar komust á snoðir um málið. MYND/EYÞÓR
Orðan hefur verið deiluefni allt
frá því að hún var stofnuð 1921,
en þess eru þó mörg dæmi að
þeir sem amast hafa við orðunni
hafi glaðir þegið hana síðar.