Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Page 28
28 MATUR 8. MAÍ 2020 DV B abyshower, barnasturta eða steypiboð – hvað sem þið kjósið að kalla þessar sykruðu og lit ríku sam- komur, þá eru þær vissulega skemmtilegar og kærkomin gleði fyrir oft ansi þreyttar konur. Nú eru án efa margar þrútnar og félagsþyrstar, óléttar konur að skríða undan sam komubanni. Hvernig væri að henda í eitt sykursjokkerað partí eftir að samkomubanni lýkur, fyrir góða vinkonu? Ég hef svo góðar konur í kring um mig að ég fékk slíkt leyni boð í bæði skiptin sem ég var ólétt og get með sanni sagt að þau glöddu mig ákaf- lega mikið. Sjálf hélt ég slíkt boð um daginn og þá kom í ljós að fæstum af gestunum hafði verið boðið í slíkt boð áður og ekki var vitneskjan um skipulagninguna mikil. Hér koma því nokkrir punkt- ar. n Samkomubann út og steypiboð inn! Nú styttist í að bjóða megi í gott partí. Hér er farið yfir allt sem þú þarft að vita fyrir boðið. Þorbjörg Marínósdóttir tobba@dv.is SKIPULAGNINGIN 1 Boðið er háleynilegt! Komist verðandi móðir að því að þetta standi til mun hún án efa reyna að skipta sér af og koma sér í stressandi hlutverk! 2 Útbúið gestalista Gætið þess að vinkonur úr vinnu, æsku og kvenkyns fjölskyldumeð- limir séu á listanum. Gott er að fá maka og/eða systkini viðkomandi til að fara yfir listann og sjá hvort ein- hvern vantar. Oftast dugar að gera Facebook event og hringja í þá sem ekki eru á Facebook eins og ömmu. Auðvitað má bjóða karlmönnum en oftar en ekki eru þetta kvenna- hittingar þar sem konur deila sinni reynslu af styttingu legháls og til- fallandi pissi í sjónvarpssófann. 3 Staðsetning Finnið einhvern í hópnum sem er til í að halda boðið en um leið þarf þetta að vera á heimili sem auðvelt er að plata viðkomandi á. Til dæmis þykjast vera að mæta í bröns eða sækja barn þangað. 4 Veitingar Langauðveldast er að biðja alla um að koma með eitthvert smá- ræði. Sniðugt er að gera lista og biðja fólk að skrá hvað það ætlar að koma með svo ekki komi allir með það sama. Sjá dæmi um lista hér til hliðar. Veitingarnar eru yfir- leitt í brönsstíl. 5 Gjöf Hagstæðast og oft skemmtilegast er að allir sem vilja taka þátt í gjöf leggi til dæmis 2.500 krónur inn á ein hvern einn af gestunum sem sér um að kaupa gjöf. Þannig er hægt að safna dágóðri fjárhæð og kaupa eit t hvað veglegt. Gaman er að kaupa eitthvað handa bæði móður og barni. Hugmyndir að gjöfum má sjá hér til hliðar. Úr þeim potti má þá taka smá peninga til að kaupa skraut. 6 Skraut Eftir góðan bæjarrúnt má með sanni segja að bestu kaupin séu líkl ega í Søstrene Grene, eða Systra greninu eins og eiginmaður vinkonu minnar kallar verslunina. Eins er gaman að lána á milli ef einhverjar vinkonur eiga skraut. Skrautið þarf ekki að vera mikið. Nokkrar blöðrur, skilti með kyni barnsins, skrautborðar til að hengja á veggi eða pappírsdúsk- ar og fall egar servéttur. Ekki missa ykkur á Pinte rest! Þar eru margar góðar hugmyndir en það er óþarfi að gera þetta að brúðkaupsveislu! Þá eru líka minni líkur á að fólk nenni að standa í þessu aftur. Þessi stund snýst jú um samveru, gleði – jú, og auðvitað gúmmulaði! Einnig er skemmtileg hugmynd að hafa krukku á staðnum og dreifa mið um og biðja fólk að skrifa hug- myndir að barnanöfnum og stinga í krukkuna. Það er svo skemmtilegt að lesa oft ansi skrautlegar nafna- hugmyndirnar sem koma upp úr krukkunni. Hugmyndir að veitingum • Brauð • Salöt • Pestó • Heitir réttir • Fersk ber • Melónusalat • Rjómaís • Ostar • Kaffi • Safi • Sódavatn • Mímósur • Vegleg kaka í fallegum pastellit • Aðrar kökur / gúmmulaði • Freyðivín til að skála í – það fæst æðislegt freyðandi te á Coocoo‘s Nest Gjafahugmyndir Fyrir mömmuna • Gjafabréf í dekur, til dæmis nudd eða fótsnyrtingu • Kampavínsflaska • Bók • Náttsloppur / náttföt • Gjafabréf á veitingahús • Snyrtivörur / spa-pakki, svo sem krem, skrúbbur, maski, naglalakk eða eitthvað slíkt • Skartgripur – eins handa móður og barni Fyrir barnið Spyrjið endilega m a k a / m ó ð u r viðkomandi hvað vanti á heimilið. • Fatnaður • Gjafabréf í barnavöruverslun • Sæng (ef slíkt er ekki til) • Rúmföt • Kerrupoki • Tuskudýr með „white noise” hljóði MYNDIR/TM Klassískar súkkulaðibollakökur 1 ²/³ bolli sykur eða hrásykur 1 ¾ bolli hveiti ¾ bolli ósætt kakó 1 ½ tsk. lyftiduft 1 ½ tsk. matarsódi 1 tsk. salt 2 egg 1 bolli mjólk ½ bolli olía (ég notaði kókosolíu) 2 tsk. vanilludropar 1 bolli soðið vatn Forhitið ofninn í 175 gráður. Smyrjið kökumótið með smjöri eða olíu. Annaðhvort má gera eina væna tertu eða bollakökur. Í stóra skál skal blanda saman sykri, hveiti, kakói, matarsóda, lyftidufti og salti. Hrærið saman. Næst fara egg, mjólk, olía og vanilla saman við. Hrærið vel. Að lokum fer vatnið út í. Deigið verður nokkuð þunnt. Hellið deiginu í formið eða formin og bakið sirka 15 mínútur fyrir bollakökur en 35-40 mínútur ef þið gerið tertu. Baksturinn fer eftir þykkt tertunnar. Gott er að nota prjón eða tannstöngul til að stinga í tertuna. Hún er tilbúin þegar prjónninn kemur deiglaus út. Kælið kökuna í 10 mínútur áður en hún er tekin úr mótinu. Látið tertuna kólna alveg áður en kremið er sett á, en það má nota nánast hvaða kremuppskrift sem er. SVONA HELDUR ÞÚ „babyshower“ Ófáar óléttar konur hafa lýst yfir dálæti á smjörkremi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.