Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Qupperneq 30
Edda Hermannsdóttir, hagfræðingur og yfir-maður markaðs- og samskiptasviðs Íslandsbanka, gaf nýverið út bókina Fram- koma, þar sem farið er yfir ýmis hagnýt ráð varðandi framkomu. „Þegar ég byrjaði í fjöl- miðlum fór ég að taka saman punkta sem voru að gagnast mér vel og hef undanfarin ár þjálfað starfsfólk bankans í framkomu. Ég hef leitað í erlent efni um framkomu en fannst vanta efni á íslensku og að það væri til nokkurs konar handbók með ráðum og æfingum fyrir þá sem eru að koma fram.“ Hefði viljað æfa framkomuna Edda er hagfræðingur að mennt en fékk snemma áhuga á fjölmiðlum. 25 ára gömul endaði hún sem spyrill í spurningakeppninni Gettu betur, án nokkurrar fjöl- miðlareynslu. En þarna fékk hún fjölmiðlabakteríuna og eftir Gettu betur gerðist hún blaðamaður og síðar aðstoð- arritstjóri á Viðskiptablaðinu áður en hún færði sig yfir til Íslandsbanka. Lærð eða meðfædd? Framkoma er oft talinn einn af þessum hæfileikum sem einstaklingar eru annaðhvort fæddir með eða ekki. Edda segir það ekki svo. „Við gefum okkur oft að þetta sé meðfæddur hæfi- leiki og hugsum það þegar við fylgjumst með þjóðarleið- togum eða öflugum fyrirles- urum flytja erindi af miklu öryggi. En þar að baki eru oftast stífar æfingar, en auð- vitað verðum við betri því oftar sem við komum fram. Það er hins vegar vel hægt að þjálfa upp þessa hæfileika en það krefst tíma og vinnu. Ég myndi segja að rétt blanda af æfingum og réttum þanka- gangi komi manni lengst. Maður þarf alltaf að muna hvers vegna við erum að segja þessa sögu og hvað við viljum skilja eftir okkur.“ Styrkleikar í atvinnuumsókn Atvinnuleysi og uppsagnir hafa verið áberandi í sam- félaginu síðustu mánuði og því líklega fleiri Íslendingar en nokkru sinni áður í virkri atvinnuleit. Í bókinni fer Edda yfir ýmis hagnýt atriði hvað varða gerð ferilskráa og hvernig skuli bera sig að í at- vinnuviðtali. „Í bókinni er farið yfir mikilvægi þess að leggja áherslu á styrkleika okkar í atvinnuumsókn og við eigum að hugsa ferilskrá á þann hátt að hún gefi skýra mynd af því sem við erum góð í. Við þurf- um auðvitað að vera heiðarleg en algeng mistök eru að byrja að afsaka okkur og segja frá því sem við erum ekki nógu góð í eða gætum verið betri í.“ Edda bendir á að einnig þurfi að aðlaga ferilskrá sína því starfi sem sótt er um, og ekki sé nauðsynlegt að tína til atriði sem hafi enga þýð- ingu fyrir starfið. „Það getur verið að sumarstarfið fyrir 15 árum eigi mögulega alls ekki neitt sérstaklega vel við þessa atvinnuumsókn.“ Ef allt gengur vel og um- sækjandi kemst í atvinnuvið- tal segir Edda að gott sé að vera búin að undirbúa sig vel. „Það er gott að vera búin að skrifa niður þá þætti sem við viljum koma að og passa að hafa það ekki nema nokkur atriði. Þá hjálpar mikið að taka sértæk dæmi þar sem þessir kostir hafa komið vel að notum og fara þá líka yfir það sem hefði betur mátt gera. Gott tengslanet skiptir máli Í bókinni er einnig fjallað um mikilvægi góðs tengslanets, sem getur skipt máli bæði í leik og starfi. „Við Eva Laufey, systir mín og fjölmiðlakona, höfum oft gert grín að því að besta leiðin til að tengjast fólki sé bara að senda því tölvupóst og segjast vera systkini þess en þannig kynntumst við á unglingsárunum. En kannski er betra að leggja það ekki of mikið í vana sinn.“ Edda bendir á að í dag er auðveldara en nokkru sinni fyrr að byggja upp tengsla- net. Það þarf bara að gefa sér tíma í það. „Það hafa líklega aldrei verið til jafn margir hópar og félagasamtök fyrir þá sem hafa áhuga á slíku. Það er líka gott að gefa sér tíma til að mæta á viðburði sem tengjast áhugasviði og fagi og reyna þar að hitta og kynnast fólki. Það þarf að passa að tala ekki aðeins við þá sem maður þekkir heldur vera móttækilegur fyrir nýjum samtölum. Það góða við Ísland er líka að það er auðvelt að nálgast flesta og ef maður hefur áhuga á einhverju verkefni eða við- fangsefni sem einhver er að fást við þá á maður ekki að hika við að senda tölvupóst eða reyna að tengjast þeirri manneskju.“ Það nægir þó ekki að mynda tengslin því þeim þarf að viðhalda líka. „Við þurfum síðan að gefa okkur tíma til að rækta tengslanetið og taka frá tíma í það. Einn morgunbolli fyrir vinnu og af til, hádegis- matur eða hittast eftir vinnu. Ég myndi segja að rétt blanda af því að gefa sér tíma, sýna öðrum áhuga og vera forvitin, samhliða því að vilja styðja og efla fólk í kringum sig skili góðu tengslaneti.“ Framkoma sem saga Eddu finnst mikilvægt að hugsa um framkomu sem nokkurs konar sögu. „Við erum alltaf að segja ein- hverja sögu og við viljum að fólk hlusti, eða muni eftir því sem við segjum. Þá skiptir miklu máli að búa yfir sann- færingarkrafti. Í dag er mik- ið offramboð af efni og því er krefjandi að ná athygli fólks og það skiptir gríðarlegu máli að koma efni frá okkur á hnit- miðaðan hátt. Við verðum líka alltaf að spyrja okkur hvers vegna þetta efni skipti máli, við hverja erum við að tala og hvers vegna skiptir það máli núna?“ Með því að spyrja sig þess- ara spurninga er svo hægt að koma skilaboðum sínum betur til þeirra sem hlusta. „Ráðið sem ég gef öllum sem koma fram er að ákveða fyrir fram hvaða 3-4 atriði skipta mestu máli. Við viljum oft segja frá svo ofboðslega mörgu og miklu en þegar við stígum á svið eða förum í fjölmiðlaviðtal til dæmis þá gleymum við aðalatriðunum. Einblínum alltaf á það sem skiptir mestu máli.“ n Ekki afsaka þig í atvinnuviðtali Listin að koma fram er ekki öllum í blóði borin og mörgum vex hún í augum. Fyrir þá sem vilja tileinka sér hana er nú komin út bókin Framkoma. Edda Hermannsdóttir kennir Íslendingum framkomu. MYND/AÐSEND Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is Það góða við Ís- land er líka að það er auðvelt að nálgast flesta. 30 FÓKUS 8. MAÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.