Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1944, Síða 10

Íþróttablaðið - 01.05.1944, Síða 10
2 ÍÞRÓTTABLAÐÍÐ Þorsteinn Einarsson: llugrsjonir rætast. I. Eggert Ólafsson lætur þess á einum stað getið í Ferðabókinni, livað landsmönnum megi verða dásamleg not af laugum og liver- um, þegar reist hafa verið vist- leg hús fyrir þá, sem til haða sækja og svo ekki sízt til þess að viðhalda og efla sundlistina, sem hann telur vera 'að falla i gleymsku. Þeir Eggert og Bjarni lýsa nokkrum baðlaugum, en hvergi er lýsing á sundlaug að finna. Margar lýsingar þeirra á baðlaug- unum eru nákvæmar hæði iivað snertir sögu þeirra, fyrirkomu- lag og gæði vatnsins. Hér er ekki rúm að rekja þetta nánar og heldur ekki tilgangur þessarar greinar, en eitt þykir rjett að drepa á og það er aldur þessara baðlauga, sem enn varð- veitast á 3 stöðum. Ein er að lík- indum hyggð um 960, önnur til árið 1000 og sú þriðja nefnd á 14. öld. II. Víða um landið rekur maður sig á rústir af sundlaugum. Ég liefi á ferðum mínum komið að nær 30 slíkum rústum. Allflestar eru þær frá tímabilinu frá 1820. Rúst er til, sem talin er að vera af sundlaug, sem sonur Guð- hrands biskups Þorlákssonar reisti. Þúst ein, nærri sundskál- anuin í Sælingsdal, minnir á laug þá er Kjartan Ólafsson gekk til. Árið 1874 er talað um að skýli sé reist við sundpoll að Laugar- landi syðra í Eyjafirði. Líklegt er að það sé fyrsta sundskýlið, sem reist er. Eigi veit ég með vissu hvenær eða hvar fyrsta steinsteypta laugin er byggð, en eftir því, sem ég kemst næst mun það hafa verið einna fvrst á Reykjanesi við Djúp, sem veggir laugar eru steyptir, en sundlaug- arnar við Laugalækinn i Reykja- vík er líkast til fyrsta Iaugin, sem er laus við jarðveg i hotni og veggjnm. Athyglisvert atvik má það teljast í sögu iþrótta- mannvirkjanna hér á landi, að þegar klefar eru bvggðir við sundlaugarnar í Revkjavík, þá er um leið dregið af kaupi sund- kennarans, Páls Erlingssonar. Fvrstu yfirbyggðu sundlaug- arnar taka til starfa að Sælings- Hafnarfjarðar. dalslaug, Svarfaðardal, Reykja- hverfi, Álafossi og ná fullkomn- un með byggingu Sundhallar Reykjavíkur. Jarðhitinn er ekki allstaðar til afnota og því er á hinum „köldu“ stöðum leitað á náðir kola og rafmagns. Fyrsta kolahitaða laug- in er byggð 1934 í Bolungarvík, því næst í Vestmannaeyjum og Keflavík. Rafmagn er notað ásamt kol- um við upphitun sundlaugar Núpsskóla, en nú eigum við sundhöll að Eiðum, sem raforka hitar, hæði laug, baðvatn og loft. Kolin eru dýr og raforkan víða líka og af skornum skammti og þvi er leitað til nýrra hjálpar- meðala. 1939 bvggja Siglfirðing- ar sundlaug, sem fær kælivatn ljósavélar til laugarinnar, og til

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.