Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1944, Blaðsíða 32

Íþróttablaðið - 01.05.1944, Blaðsíða 32
24 ÍÞRÓTT ABL AÐIÐ Iauga. Í.S.Í. og U.M.F.Í. fengu hvort um sig kr. 30.000.00. í. S. í. fékk enn- fremur vegna útgáfu reglna og leik- ákvæfSa kr. 11.000.00. Skíðaskóli Isfirðinga. Skólanum lauk um páska, eftir 1 Vi mánaða starf. Nemendur voru 8 af Vestur- og Austurlandi og úr Reykja- vík. Nemendur róma kennsluna og eiga góðar endurminningar frá dvöl sinni í skólanum. Vonandi veita fleiri skólanum atliygli, því að hver byggð landsins eða réttara livert félag, verð- ur að eignast mann, sem getur kennt á skiðum. Fáir útlærðir skíðamenn komast ekki yfir að kenna samtímis um allt land. Islenzkur knattspyrnumaður erlendis. Tvö brezk blöð „Evening Ne\vs“ og „Evening Dispatc“ gera að umtals- efni í íþróttadálkum sínum knatt- spyrnuleik ungs íslendings, Ottós Jónssonar frá Dalvík, sem nú dvelur við nám i Edinborg. Keppti Ottó í liði hins fræga skozka knattspyrnu- félags Hearts og er látið vel af leik hans. Ottó hefur undanfarin tvö sumur keppt hér heima í liði knattspyrnu- félagsins Fram, en áður keppti hann með Knattspyrnufélagi Akureyrar og í liði Menntaskólans á Akureyri. „Evening Dispatc“ segir m. a. um leik hans: „íslenzki útherjinn lét snemma mikið á sér bera og vakti athygli fyr- ir það, hve sniðugur liann var að komast í gegnum vörn Aherdeen- manna, en þar mætti hann hinum á- gæta bakverði Couper og lék venju- lega á hann. Skemmti slikt áhorf- endunum mjög vel.“ Hearts skoruðu fyrsta markið, en nokkru siðar jöfnuðu Aberdeenmenn. En eftir það hertu Heartsmenn enn sóknina og sást þá mjög góður leikur hjá Ottó. Munaði þá mjög litlu að hann skoraði mark með skalla, en bakvörð- ur fékk bjargað á síðasta augnabliki, eftir að markmaðurinn hafði misst af knettinum. Gekk Hearts betur það sem eftir var hálfleiksins, en hann endaði með 1:1. Hearts tapaði leiknum með 1:2, eft- ir að þeir liöfðu þó haft meiri sókn, og kennir sá, er um leikinn ritaði, því um, að Ottó hafi ekki fengið knöttinn nógu oft í síðari hálfleikn- um. Tron Kirk, íþróttafregnritari Even- ings News segir um Ottó meðal ann- ars: „Hearts hafa bætt við sig skemmtilegum nýiiða — íslending, sem stundar bókmennta- og listanám í Edinborg. Nafn hans er Ottó Jóns- son. Hann mun verða við nám sitt í Edinborg í þrjú til fjögur ár. Hann var mjög glaður, er honum var boðið að leika með Hearts, því auðvitað er hann áhugamaður (Hearts er atvinnufélag, en á þessum tímum, og reyndar annars, fá áhugamenn oft að leika með slíkum félögum). Var honum mjög umhugað um að standa sig sem bezt í fyrsta leik sínum, og olii lionum það nokkurra vonbrigða, að hann fékk spark í legginn, sem gerði það að verkum, að liann lék ekki alveg eins vel og hann getur. Jónsson ræddi við mig um knatt- spyrnu á íslandi og kvað þar aðal- iega skorta þjálfara og æfingaskil- yrði. Efast ég ekki um að hann geti lært margt og mikið í knattspyrnu þau ár, sem hann dvelur hér, og að honum hafi verið þær móttökur, sem hann fjekk hér mikil uppörfun." (Morgunblaðið). Yfir landið þvert. Um páskana gengu sex Reykvíking- ar yfir þveran Hofsjökul og niður að Haukadal í Biskupstúngum. Voru þeir 10 daga á leiðinni, þar af 2% dag veðurtepptir á jökli. Alls gengu þeir 117 km. leið. Höfðu ])eir meðferðis tvö tjöld og sleða og allan útbúnað sem beztan. Menn þessir eru úr Litla Skíðafélaginu, en þeir eru: Magnús Andrésson verzlunarfulltrúi, Gunnar Guðjónsson forstjóri, Árni Haraldsson verzlunarmaður, Stefán Björnsson skrifstofustjóri og bræðurnir Kjart- a'n og Björn Hjaltested. Badmintonfélag á Fáskrúðsfirði. Nýlega var stofnað badmintonfélag á Fáskrúðsfirði. Félagar eru fjórir en formaður Baldur Björnsson. Aðstaða til badmintoniðkana er mjög góð í leikfimisal barnaskólaris. Félagarnir liafa ekki iðkað badininton áður, en eru mjög hrifnir af liinni nýju íþrólt. Islenzkt róðrarfélag í Khöfn. íslendingar, búsettir í Kaupmanna- höfn hafa stofnað róðrarfélag og á- kveðið að kaupa kappróðrarbát. Áður voru íslendingar í róðrarfélagi Fær- eyinga í Khöfn og fengu þar tánaða báta eitt kvöld í viku. Formaður hins íslenzka róðrarfélags er Jón Hetgason stórkaupm. Leikvangur í Hafnarfirði. íþróttafélögin i Hafnarfirði og bæj- arstjórn Hafnarfjarðar kusu s.l. liaust sérstaka íþróttanefnd til að vinna að bættum skityrðum til útiíþróttaiðkana í bænum. Hefur nefndin ákveðið að festa kaup á einliverju lieppilegu landi í eða við Hafnarfjarðarbæ. í fjáröfl- unarskyni hefur nefndin efnt til liapp- drættis. Heiðraði kaupandi! Nú er 8. árgangur íþróttablaðsins fallinn í gjalddaga og treysti ég yður til að senda mér andvirði blaðsins sem allra fyrst, í ábyrgðarbréfi, póst- ávisun eða með greiðslu beint til mín á Haðarst. 10 eða Grettisg. 28B. Sömuleiðis bið ég yður að láta mig vita ef þér hafið bústaðaskipti eða verðið fyrir vanskilum á blaðinu, svo ég geti strax bætt úr því, Með iþróttakveðju. Þórarinn Magnússon, afgreiðslumaður, Haðarstíg 10. !---------------------------------- ÍÞRÓTTABLAÐIÐ. Útgefandi: íþróttablaðið h/f. Ritstjóri: Þorsteinn Jósepsson. Ritnefnd: Benedikt Jakobsson, Þorsteinn Einarsson. Blaðstjórn: Ben. G. Waage, Kristján L. Gestsson, Jens Guð- björnsson, Sigurjón Pét- ursson, Þorst. Einarsson. Afgreiðslum.: Þórarinn Magnússon, Haðarstíg 10. Utanáskrift: íþróttablaðið, Póst- hólf 367, Reykjavík. Verð: Kr. 20.00 pr. árg. Kr. 2.50 pr. tbl. Herbertsprent —----------------------------------1

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.