Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1944, Blaðsíða 26

Íþróttablaðið - 01.09.1944, Blaðsíða 26
18 ÍÞRÓTTABLA ÐIÐ ekki út eins mikið og þeir í raun og veru kunna. Öll ráða þau ýfir leikni, en skortir úthald til að geta haldið eðlilegum liraða leikinn út. Hjá Val var framlínan sérstaklega aðgerðarlítil miðað við þá einstaldinga, sem þar voru, og' svipað var um hin liðin. Yfirleitt voru það varnirnar sem báru hitann og þungann af leiknum, en vegna æfingar- leysis voru þær þó ekki nógar í leiknum og létu sér alit.of oft nægja kæruleysisleg langspörk, sem slæmt er fyrir framherja að taka á móti. Eins og nú er, virðast félögin svo jöfn, að ef eittlivert þeirra æfir meira en annað, þá ber það sigur úr býtum. Töluverðar breytingar liafa orðið á þessum liðum og hefur Fram gengið illa að fá lieilsteypta fram- línu, Val enda líka, sérstaklega miðherja og svip- að er um Víkinga að segja. Einstakir leikir fóru eins og hér segir: Valur—V í kingur 2:0 K.R.—F ram 2:1 Víkingur—K.R. 3:0 Valur—Fram 0:0 F ram—Vikingur 2:2 K.R. Valur 1:() Litlar fréttir. Þegar ég byrjaði i vor að skrifa þessa þætti, þá óskaði ég eindregið eftir að fá fréttir af einstök- um mótum og' leikjum félaga utan af landi, en árangurinn af þeim tilmælum hefur orðið sorg- lega lítill. Nú er það óhugsandi, þrátt fyrir allt boltaleysið, að knattspyrna sé að leggjast niður út um land, en þeir sem lesa fþróttablaðið gætu meira en haldið að í henni væri heldur lítið líf nema í Reykjavík. Nú er það vitað mál, að í sum- ar hafa farið fram mót og leikir víðsvegar um land eins og' venjulega. Varla getur hér verið um að ræða hlédrægni, því flest félög óska fremur eftir að þeirra sé getið og þess sem þau gera. Úrslit móta eru að vissu leyti þáttur í iþróttafrásögnum. Auk þess eru margir á fjarlægum stöðum, sem gjarnan vilja fylgjast með árangri félaga, sem sömu íþróttir iðka. Frá mínu sjónarmiði er þetta aðeins sinnuleysi eða áhugaleysi, og er það ansi hart, þar sem t. d. í þessu tilfelli bitnar á félögum eða félögunum sem í hlut eiga og liin mjög svo þráða og kær- komna málgagni íþróttamanna, fþróttablaðinu. A þessu þarf að verða breyting og í því sam- bandi vil ég benda á það, að hvert ráð og liveri íþróttafélag á landinu tilnefndi mann sem sendi íþróttablaðinu mánaðarlega fréttir um það, sem gerist á sviði íþrótta í umdæminu og fylgdist með því að það væri framkvæmt. Reykjavíkurmeistararnir (talið frá v.) Neðsta röð: Guðbjörn Jónsson, Sigurður Jónsson, Haraldur Guðmundsson. Mið- röð: Kjartan Einarsson, Birgir Guðjóns- son, Einar Einarsson, Óli B. Jónsson. Aftasta röð: Ólafur Hannesson, Matthias Jónsson, Hörður Óskarsson, Jón Jónas- son, IJafliði Guðmundsson.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.