Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1944, Blaðsíða 34

Íþróttablaðið - 01.09.1944, Blaðsíða 34
26 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ jmwrm féíöa LU1 \ Þú áttir strax í æskn l>að, sem allt vll leysa úr banni, og gjarnan kemur gó'ðu af stað og gjörir strák að manni. Svo áköf var J)in unga þrá til alls er vex og lifir, að bæri þig að söltmn sjá þú syntir bara y.fir. Og þánnig varð l)ín æfi öll ein islenzk hetjusaga: af þroskans leið þú fluttir fjöll í fangi alla daga. Þér varð það heilagt hjartans mál að herða þína samtíð svo eigi þryti andlegt stál í okkar miklu framtíð. Og einmitt þoli þvílíks stáls má þakka beinni línu, að eyjan vor er orðin frjáls á afmælinu þínu, — Ef enginn hefði hent sér út án hiks i kaldan sæinn, þá norpaði ennþá niðurlút og nærsýn þjóð nm bæinn. Þú áttir hugsjón alla tíð — og enn mun skap þitt velja hið þyndarlausa, þögla stríð gegn þeim er lífið selja. — Og eins ég vildi óska í dag, þótt ei sé mark að draumum: að sjá þig- fram á sólarlag á sundi í nýjum straumuin. Jóhannes úr Kötlum. Heillaóskir skeggi þínu og skalla skröltu lengi meðal vorra hvera. Verða munt þú elztur allra kalla ef engir t'antar taka þig og skera. Kristmann Guðmnndsson. Þú hefur lengi, Lárus Rist, lýðnum unga sundið kennt. þróist æ þin likamslist, landinu í, sem höfuðmennt. Guðmiindur og Karl Finnbogasgnir. Ný met. Á Innanfélagsmótum Reykjavikur- félaganna í frjálsum íþróttum hafa Innilegar hamingjuóskir á 65 ára afmælinu. Friður og farsæld fylgi þér aldur þins um ófarinn veg. Orni þér gömlum á æfikvöldi hugljúfar minn- ingar horfinna daga. Skátastúlkur á Akranesi. Þegar ég las kveðjurnar, þá tók Lárus það fram, að sér þætti sérstaklega vænt um skeyti skáta- stúlknanna frá Akranesi. Það var eins og kveðja frá æskuvin- um og æskustöðvum. Með for- eldum sumra þessara stúlkna liafði hann, sem smádrengur leik ið sér á Akranesi. Um flúðir og fjörur liöfðu þau farið í leit að skeljum og kuðungum, og í fjöru- lónum og við Flösina höfðu þau siglt fyrstu skipunum. Saman höfðu þau dvalið í þessum leikj- um í löndum æfintýranna. Nú eru skipin sokkin og hinir gömlu æfintýrahlutir sokknir í sand. Ný æska leikur sér og dreymir drauma og vinnur heit. Heitasta ösk afmælisbarnsins er að ís- land megi ávallt eiga æsku, sem á sér hugsjónir og segir með sjálfri sér „ég skal“ og efnir heitið. Hann óskar þess einntg' að saman fari orka og' andi, og að æska landsins hafi hugfastar ljóðlínur þjóðskáldsins: Mundu að léð er lýði land fyrir kraft og anda. íþróttablaðið óskar Lárusi Rist lil hamingju með afmælið. þessi met verið sett. Hjá K.R.: íslands- met i 4x1500 m. boðhlaupi á 18:05,4 mín. og 4x800 m. boðhlaupi á 8:45,0 mín. I sveitunum voru: Páll Halldórs- son, Brynj. Ingólfsson, Indriði Jóns- son og Haraldur Björnsson. Ennfrem- ur ný drengjamet í 1000 m. hlaupi 2:40,6. — Páll Halldórsson þrístökk án atrennu — 8,37 m. — Björn Vilmund- arson og 1000 m. boðhlaupi - 2:11,7 min. Hjá Í.H.: íslandsmet i 300 metra hlaupi 37,1 sek. — Kjartan Jó- hannsson. Tvö met í stangarstökki. A þjóðhátíð Vestmanneyinga 4. ág. s.l. voru sett tvö met i stangar- stökki. Guðjón Magnússon, Tý, stökk 3,55 m. og bætti þar við ísl. metið sitt um 2 cm., en Torfi Bryngeirsson, Þór, setti nýtt drengjamet með því að stökkva 3,33 m. Fyrra drengjamet- ið, 3,31 m., átti Þorkell Jóhannesson, F.H. Staðfest íslandsmet. 3. júlí staðfesti stjórn Í.S.Í eftirfar- andi íslandsmet: 1. Hástökk án at- rennu: Árangur 1,51 m. Sett af Skúla Guðmundssyni (K.R.) 3. júní 1944. 2. Hástökk með atrennu. Árangur: 1,93 m. Selt af Skúla Guðmundssyni (K.R.) 19. júni 1944. 3. Kúluvarp betri hendi. Árangur: 15,32. Sett af Gunn- ari Huseby (K.R.) 19. júní- 1944. íþróttakvikmynd. Glímufélagið Ármann lét fyrir nokk- uru búa til kvikmynd af fimleika-, sund- og glímuflokkum sínum og hef- ur sýnt myndina bæði í Reykjavík og víðsvegar um land við mikla aðsókn og vinsældir. Sumir þæltir myndar- innar eru mjög fallegir. og. geta verið undirstaða að úrvals íþróttakvikmynd. Nokkur hluti myndarinnar er tekinn í litum. Kvikmyndarinn var Kjartan O. Bjarnason prentari. Félög'um úti á

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.