Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1944, Blaðsíða 35

Íþróttablaðið - 01.09.1944, Blaðsíða 35
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 27 landi, seni aðstöSu liafa til að sýna kvikmyndir skal ráðlagt að fá hana að táni, svo og aðrar íþróttakvik- myndir, sem Í.S.Í eða einstök íþrótta- félög hafa látið gera. Má oft allmikið af myndum þessum læra, enda þótt enn vanti góða íþróttakennslumynd, en vonandi fæst hún áður en langt líður. Tvö afrek. Síðari hiuta miðvikudagsins 19. júlí s.l. lagði lítill árabátur af stað frá Akureyri austur yfir Pollinn. í bátn- um voru Jóhann Gislason, símritari Sit/rrín Sigtryggsdóltir. frá Reykjavík, en hann liafði komið lil Akureyrar með sundflokki K.R. og starfaði nú á landsimastöðinni þar. Auk Jóhanns voru í bátnum' tveir unglingspiltar, sendlar á stöðinni, dóttir stöðvarstjór&ns og starfsstúlka á heimili hans, Sigrún Sigtryggsdóttir frá Breiðabóli á Svalbarðsströnd, 15 ára gömul. Sigrún réri alla leið yfir Pollinn, ýmist annarri árinni eða báðum, en er austur yfir kom, skemmti fólkið sér við sund, en var i sólbaði á milli. Þegar leið á daginn var farið að hyggja til heimferðar og kl. 5.30 var íólkið tilbúið að leggja af stað vestur yfir. Sigrún stakk sér þá til sunds og synti i áttina til bæjarins. Fannst henni svalt í sjónum, eftir sólbaðið og hana sveið í hörundið, svo lnin synti rösklega vestur á leið, en bát- urinn kom á eftir með hitt fólkið. Ekki hafði Sigrún áformað eð synda nema einhvern spöl frá landi, en henni fannst hún ekki þreytast neitt að marki og hélt áfram sundinu alla leið til Torfunefsbryggjunnar á Ak- ureyri, uppörfuð af glaðværð og eggj- unarorðum samferðafólksins. Var kl. 6.40 e. h. er hún kom að bryggjunni. Eftir sundið var Sigrún hin bratt- asta, aðeinshokkuð þreytt i öxlunum og taldi hún það stafa af róðrinum aðal- lega, því'hún var óvön slikum starfa. Veður var gott, en þó var lítilsháttar norðan bára og eins var óþægilegt að hafa sólina beint í augun alla leiðina, Sigrún lærði sund i sundlaug Sval- barðsstrandar og hefir hún miklar mætur á sundi og leikfimi, enda er hún hraustbyggð og efnileg stúlka. Hinn 28. júlí s.l. vildi það slys til, að vörubíll rann ofan í Hafralónsá, sem er skammt frá Þórshöfn, ásam 3 mönnum. Tveim þeirra var bjargað, en sá þriðji sökk og varð ekki náð, þar sem enginn nærstaddur var synd- ur. Skömmu síðar bar þar að bíl l’ra Akureyri, og var í honum m. a. Páll A. Pálsson, verzlunarm. frá Akureyri. Var honum sagt frá slysinu, og brá hann skjótt við, stakk sér i ána, og synti á staðinn þar sem maðurinn Páll .4. Pálsson. sökk, sem var á all miklu dýpi. Tókst Páli að ná taki á manninum, þar sem hann lá i botni, koma honum upp á yfirborðið og synda með hann i land. voru þá liðnar 10 mín. frá því að maðurinn sökk. Strax og á land koin, hóf Páll lífg- unartilraunir á manninum en sendi þegar eftir lækni til Þórshafnar. Hélt Páll lífgunartilraunum áfram þar til læknirinn kom, en það voru um 20 mín. Var þá komið lífsmark með manninum, og náði hann brátt fullri rænu. Hefur Páll sýnt með þessu frábært snarræði og kunnáttu, bæði í sundi og lífgun drukknaðra. Páll lærði sund í Laugaskóla vetur- inn 1931—32, og hefur oft tekið þátt í kappsundi á Akureyri. Hann var í mörg ár markvörður i meistarafl. Knattspyrnufélags Akureyrar, og hef- ur m. a. tvívegis keppt á kappleikjum í Reykjavík. Þessi ungmenna- og íbróttasam- bönd hafa gengið í I.S.Í.: U.M.S. Borgarfjarðar gekk endan- lega í sambandið í júní, en í því eru þessi 6 ungmennafélög: Baula, félagat. 40, Björn Hídælakappi, félagat. 40, Borg, félagatal 30, Brúin, félagat. 45, Dagrenning, félagat. 54 og Egill Skallagrímsson, félagat. 47. Áður voru í Í.S.Í. félög í Borgarfirði, en alls eru félögin 11 með 624 félagsmenn. For- maður er Björn Jónsson frá Deildar- tungu. U.M.S. Skagafjarðar hefur gengið í sambandið. í því eru 8 félög með 311 félagsmenn. Formaður er Guð- jón Ingimundarson. Nú eru sambandsfélög f.S.Í. 175 að tölu með yfir 20 þús. félagsmenn. Golfksppni. Úrslitakeppnin í meistaraflokki Golf- móts íslands 1944, fór fram i júlí að Völlum í Skagafirði, milli þeirra Jó- hannesar Helgasonar og Gísla Ólafs- sonar, beggja úr Reykjavik. Lauk henni þannig, að Gísli vann með 4 hol- um fram yfir, joegar 3 voru eftir. Gísli heldur því titli sínum „Golfmeistari íslands“. Er þetta í þriðja skipti í röð, sem Gisli vinnur þánn titil.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.