Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1944, Blaðsíða 28

Íþróttablaðið - 01.09.1944, Blaðsíða 28
20 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ rána, — og þá kemur að vanda- samasta atriðinu, sem gerist á næsta augnabliki, að ná mjöðm stökkfótarins (vinstri) yfir rána. Undfr eins og' mjöðmin er i ráar- hæðinni, sveiflufóturinn kominn vfir og krafturinn frá viðspyrnu og lyftingar ér liættur að verka (knýja upp og áfram), þá er hnykkt á, — mjöðminni linvkkt upp með' eldsnöggu átaki bol- og Iiryggvöðva (1. mynd 4). Sveiflu- fætinum er slegið snöggt út og niður á við, um leið og hælnum er snúið upp, til þess að auð- velda bolvinduna inn að ránni og pá fyi-st fylgir á eftir liörð uppsveifla fótarins (1. mynd 5). Sveifla sveiflufótarins út og niður á við með hælsnúningnum var til jiess að greiða fyrir þvi, að mjöðmin lyftist, og sveifla vinstra arms aftur (ef stokkið er af vinstra fæti; annars öfugt) í sambandi við það, að hælnum á sveiflufætinum er snúið upp, hvetja (mynda) bolvinduna, svo stökkmaðurinn fer yfir rána hlið- hallur (til vinstri). Hreyfingin, frá jiví uppstökk- inu og lyftingunni lauk, þvi eins- konar fjaðurmagnaður hnykkur. Fótskiptingin verður að gerast eld- snöggt og í réttri andrá. Alltof ai- gengt er, að fótskiptingin byrji of snemma, þ. e. a. s. áður en upp- stökkinu er lokið, og hreyfinga- liðandinn verður skakkur við ])að; fótleggjunum er sveiflað of náið vfir rána, í staðinn fyrir: Fyrst sveiflufóturinn og honum snúið — svo stökkfóturinn. Án nokkurrar tafar er vinstra fótiegg sveiflað yfir rána og niður á við. Við þessa lireyfingu myndast hálf l)olvinda og lyftir hægri mjöðm- inni burtu frá ránni. Mjaðmavind- an er einnig stvrkt af aftur- og niðursveiflu liægri arms og bæl- snúningi sveiflufótarins. Stökkið endar svo með því, að hægri fótleggur sveiflast aftur og upp, með hælinn aftan við sitjandann, en samtímis réttist vinstri fótur beint niður og tekur fallið af stökkmanni í sandgryfj- unni. Veltustökk: í veltustökki er atrennan á ská í stefnunni 40—45° horni að ránni eða beint að henni, og upp- stökkið er tekið með 3—3% fela fráviki frá ránni. Stökkmaðurinn byrjar atrenn- una með léttum, stuttum skref- um. Seinustu 3—5 atrennuskref- in verða, samfara mikilli mýkt, lengri og hraðari. 1 uppstökkinu er sveiflufótur- inn (liægri) boginn um hnéð, sveiflað upp í stefnu atrenn- unnar (2. mynd 2). Sé stokkið af vinstri fæti, er atrennan frá vinstri hlið, og stokkið af fætinum, sem nær er ránni. Þetta er einn kostur þess- arar aðferðar. Undir eins og líkaminn stígur upp og sveiflufóturinn er kom- inn í ráarhæð (2. mynd 3), og líkaminn liallast til vinstri, er bognuin stökkfætinum lyf t að brjóstinu. Um leið og sveiflu- liliðin réttist, réttist úr öllum lík- amanurn (2. mynd 4). Líkaminn liggur nú teygður, með stökkhlið- ina niður, — láréttur meðfram ránni. Stökkfóturinn liefir á með- an með hnénu náð sinni mestu hæð, og færir, meðan á líkams- réttingunni stendur, vinstri — neðri — mjöðmina dálítið upp á við. (Stökkmaður, sem sveiflar fæt- inum með beinu hné, er dálítið seinni að ná stökkfætinum frá jörðu heldur en sá, sem sveiflar honum með bognu hné). Hástökk með veltustökksaðferð (séð aftan frá). Myndasamstæða af Harold Osbourne. Hann var i nokkur ár hetmsmethafi í hástökki. Hann stekknr upp af vinstra fæti.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.