Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1944, Síða 27

Íþróttablaðið - 01.09.1944, Síða 27
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 19 Þorsteinn Einarsson: Trapr liástökk§aðferðir Persónulegir (líkamlegir og andlegir) eiginleikar stökkmanns leiða í ljós haganlegustu aðferð- ina. Hún á ekki að vera ákveðin af einhverjum öðrum, né hermd eftir aðferð einhvers góðs stökk- manns í öllum atriðum. Hver stökkmaður liefir sína séreigin- leika, til þess að framkvæma á eðlilegan hátt hreyfingaröðina í stökkinu. Kennari eða félagi, sem æfir með þér, getur sagt til og ráðlagt ýmislegt viðvíkj- andi skekkjum, t. d. í uppstökki, af fljótum holvindum eða fót- lyftum. Ungur maður, sem stekk- ur 1.60 m. býr yfir einhverjum góðum eiginleikum. Á þeim eig- inleikum verður að byggja stökk- aðferð og efla stokkgetu. Sniðstökk.*) Það er haft eftir Boyd Com- stock, sem er þekktur amerískur þjálfari, og þjálfaði t. d. ítalina undir seinustu Olympíuleika, að stökkva skuli þannig: „Með þessu stökklagi hleypur þú að ránni, stekkur beint upp og svo snýrðu þér“. Hann mælti af reynslu, því hann hafði séð alltof marga *) Samanber sniðglímu með hægri fæti á lofti. Þá er snúningur fótleggj- ar (hællinn upp) hinn sami og snún- ingur sveiflufótar í ]>essari stökkað- ferð. Skástökk er rangnefni, þvi að i öðrum aðferðum er einnig stokkið á ská. — Að saxa hefir verið leitt orð um fótaskiptinguna. í stað þess mætti nota orðin: sníða eða að snið- ganga. stökkmenn snúa sér of fljótt i uppstökkinu. Þú hleypur í atrennunni beint að, eða sem algengara er með þessu stökklagi, á ská í 45° stefnu á rána. Eftir því sem atrennan er skásneiddari, verður flugið vfir rána lengra. Skásneiddari at- rennu en 45° er því ekki heppi- legt að nota.Ástæðan til þess, að hlaupið er á ská er sú, að þá er hægt að stökkva upp nær ránni. Ef þú stekkur upp af vinstra fæti, þá hleypur þú til frá hægri því að þú stekkur upp af fætin- um, sem f jær er ránni, með þessu stökklagi. í uppstökkinu á fóturinn að snúa beint fram — livorki út- eða innskeifur. Uppstökks-f jarlægð frá ránni er mjög hæfileg 4—4% fet. Það hafa verið til afreks- stökkmenn í sniðstökki, sem náð hafa góðum árangri með þvi að sveifla lausa fætinum beinum upp, með öflugu sparki. Þetta er samt galli, — (reyndu það sjálf- ur) — því að ef sveiflan er of há, hindrar hún fráspyrnu stöklc- fótarins. Flestir sniðstökksmenn stökkva upp með hárri hnélyftu sveiflu- fótar (1. mynd 1) og fóturinn réttist ekki fyrr en hann er á móts við rána. Örmunum er og sveiflað upp, til þess að auka lyftinguna og lialda jafnvægi i stökkinu. Líkaminn verður að vera beinn og teygt úr öllum liðamótum stökkhliðarinnar og þungamiðjan lóðrétt yfir stökk- fætinum, þegar hann sleppir jörðu (1. mynd 1). I stökki af vinstra fæti er vinstra handlegg sveiflað upp á undan. Nú ríður mikið á, að stökkfæt- inum sé livorki of seint né of fljótt sveiflað upp í jafnhæð við Hástökk með sniðstökksaðferð. Myndasamstæðan uf Willy Ward þekktum stökkmanni í Bandaríkjnnnm. Hann stekkur npp af vinstra fæti.

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.