Íþróttablaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 13
íþróttir og hollusto:
örvandi og róandi i senn!
— hljómar sem þversögn, en engu oð síður rétt
Þegar menn heyra talað um Finnland,
dettur þeim gjarnan í hug orðið SANUA.
Engin furða þótt þetta nafn sé orðið
svo nátengt nafni landsins, því í allt að
1000 ár hefur Finnland átt þessar heiisu-
gjöfulu baðstofur, sem á seinni tímum
hafa orðið öðrum þjóðum fordæmi, fólki
til heilsubótar, gleði og gagns.
Fyrir ævaiöngu hafa aðrar þjóðir lært
það af Finnum að bað innanfrá og útá-
við getur hreinsað og hresst allan lík-
amann, en ekki einungis húðina. Finnar
hafa átt sínar baðstofur svo lengi sem
raun ber vitni um, og þær eru þeim
svo mikilvægar, að oft hefur það kom-
ið fyrir að gufuboðstofa hefur verið
byggð á undan íbúðarhúsinu!
Hér á landi er talsvert farið að bera
á því að fólk láti teikna gufubaðstofu,
þegar teikning er gerð að húsi, sumir
jafnvel hola gufubaðstofu í kjallara, eða
í bílskúr, og eigendur þessara heilsu-
stöðva eru á einu máli um að einmitt
þetta herbergi hússins sé hið mikilvæg-
asta.
En hvernig líta Finnarnir, upphafs-
mennirnir sjálfir, á þessa uppfinningu
sína? Maður að nafni Elmar Erkkila
lýsir því hvernig finnskt baðstofulíf er:
Sá sem hefur reynslu af því hvernig
á að fá sér finnskt baðstofubað, veit
■hversu hollt og hressandi það er. Sann-
leikurinn er sá, þó hann hljómi nánast
sem þversögn, að það er bæði róandi
og örvandi í ,senn!
Erkkila segir að sá sem fái sér sauna-
bað fyrir svefninn, sofi svo vært og vel
að rúmið sé eins og nýuppbúið að
morgni. Hann tekur dæmi um mann,-
sem kemur þreyttur heim að kvöldi, vill
fara í saunabað og síðan í rúmið. Jú, það
passar allt ágætlega. En eins og fyrr
segir þá eru tvær hliðar á saunabaðinu,
allt eftir því hvað maður vill, örvandi
eða róandi. Nú vill konan kannski
skemmtilegt kvöld einhvers staðar úti?
Jú, þá verða viðbrögðin þau að sauna-
baðið virkar örvandi, þreytunni er sem
blásið út í buskann, maðurinn er í full-
komnu jafnvægi, hress og kátur, og nýt-
ur kvöldstundarinnar eins og best verð-
ur á kosið.
Annar sauna-aðdáandi lýsir iþessu
töfrabragði á eftirfarandi hátt:
Roðaglóð leikur um líkamann og eitt-
hvað friðsælt og gott kemur yfir mig.
Ég fer þreyttur, úfinn og uppstökkur
inn í baðstofuna. Ot kem ég í fullkomnu
jafnvægi, rólegur og hress.
Jafnvel þeir sem óvanir eru böðunum
hafa sömu sögu að segja, þeir hafa fund-
ið slökun, nýtt fjör hefur fæðst með
Þeim, nýr lífsþróttur hefur færst í þá
í hinum þurra, rakasnauða hita þeirra
Finnanna. Já, þurra hita, því ekki má
rugla finnsku saunabaði saman við
venjulegt tyrkneskt gufubað. Þessi þurri
hiti, sem er nánast eins og inni í ofni,
gerir það að verkum að hans verður
ótrúlega lítið vart, og menn Þola hátt
hitastig án þess að verða óþæginda var-
ir. Gufubað, sem er mjög rakamettað
getur hins vegar verið nokkuð óþægi-
legt.
Saunabaðinu er komið fyrir í litlu og
gluggalausu herbergi. Veggir eru ómál-
aðir, en úti í einu horninu er rafmagns-
ofn með grind og á henni eru glóandi
heitir steinar. Hitinn í herberginu getur
verið frá 80—95 gráður á Celsíus. Þeir
13