Íþróttablaðið - 01.11.1974, Síða 46
HJÓLBARÐAR, allar stærðir.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR
kl. 8-22.
A sunnudögum er opið kl. 10—19.
Hagstætt vöruverð og fljót afgreiðsla.
Hjólbarðavið^erðin Múla v^Snðnrlandsbraut
Þorkell Kristinsson Sími 32960
HÚSBYGGJENDUR —
BYGGINGAVERKTAKAR
Leigjum út jarðýtur og stórvirk tæki ÝTUTÆKNI H.F.
til hvers konar jarðvegsframkvæmda. Trönuhrauni 2,
Hafnarfirði
SELJUM FYLLINGAREFNI Sími 52222.
hringurinn
Framhald af bls. 27
undan Sólheimajökli, en þessi leið eins
og svo margar á þessum slóðum verður
að kanna áður og spyrja kunnuga menn
um ástand leiðanna. Enn einn skemmti-
legan stað er rétt að benda á það er
Seljavallalaug. Farið er af þjóðvegin-
um hjá Þorvaldseyri og síðasti spölurinn
genginn.
Vestan Markarfljóts fer að færast lif
i hlutina. Hringferð um Fljótshlíðina er
skemmtilegur akstur, og sama má segja
um Landeyjarnar. Þaðan er fjallasýn
frá sveitahringnum stórkostleg. Vest-
an við Eystri-Rangá er komið á mik-
46
inn hringveg. Þetta er 165 km hringur
og rétt, að benda 'á hann fyrir þá sem
ekki vilja leggja í stóra hringinn, hring-
veginn um landið, sem er um 1500 km.
langur.
Ef við gerum ráð fyrir'að ferðamað-
urinn hafi ekið austur að Rangá hina
venjulegu þjóðleið, mundi hann aka
til baka þá leið, sem nú skal rakin:
Ekið er fyrst upp að Keldum, þaðan um
Gunnarsholt og inn Rangárvelli að nýrri
brú á Ytri-Rangá skammt frá Galtalæk.
Þá upp Landssveit að Þjórsárvirkjun og
til Þjórsárdal. Óþarfi er að fjölyrða um
hvað þetta landssvæði, í næsta nágrenni
Heklu, hefur upp á að bjóða. Svo liggur
leiðin niður Gnúpverjahrepp, framhjá
félagsheimilinu Árnesi að vegamótum
hjá Sandlæk. Þaðan er ekinn vegurinn
upp Hrunamannahrepp, framhjá Flúð-
um og Hruna að Hvítárbrú á Brúar-
hlöðum að Gullfossi. Síðan nýja veg-
inn að Geysi. Enn liggur leiðin með fjöll-
um að Laugarvatni, um Reyðarbarmsveg
að Þingvöllum og loks Mosfellsheiði til
Reykjavikur.
Þessi „litli hringur" er ágæt 2ja daga
leið, en gæti hæglega dugað vikuna,
því þarna ber margt forvitnilegt fyrir
sjónir.